Fréttir

true

Bíll situr fastur og ekki hægt að afferma Baldur

Þegar Breiðafjarðarferjan Baldur lagðist að bryggju í Stykkishólmi um nónbil í dag, og byrjað var að afferma skipið, reyndist það ekki hægt. Ástæðan var sú að of mikil fjara var sem orsakaði það að of bratt var fyrir fulllestaðan flutningabíl að aka brúna upp á bryggjuna. Situr bíllinn því fastur og hamlar sömuleiðis för annarra…Lesa meira

true

Töluferð fjölgun í sóttkví á Akranesi

Samkvæmt upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi eru nú fjórir í einangrun vegna Covid-19 í landshlutanum, allir á Akranesi. þá eru nú 94 í sóttkví á Vesturlandi, þar af eru 90 á Akranesi, tveir í Borgarnesi, einn í Ólafsvík og einn í Stykkishólmi. Þessa miklu fjölgun fólks í sóttkví á Akranesi má rekja til þess að…Lesa meira

true

Litakóði samþykktur vegna Covid-19

Ríkisstjórnin hefur samþykkt tillögu almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og embættis landlæknis að Covid-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum líkt og veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands. Viðvörunarkerfinu er ætlað að auka fyrirsjáanleika til lengri tíma varðandi þær aðgerðir sem grípa þarf til í baráttunni við faraldurinn og lágmarka þannig heildarskaðann sem hann veldur í samfélaginu. Kerfið verður kynnt á næsta…Lesa meira

true

Piparkökuhúsakeppni í Reykhólaskóla

Í Reykhólaskóla er haldin piparkökuhúsasamkeppni þar sem nemendur hanna, baka, líma og skreyta húsin. „Mjög gaman er að fylgjast með krökkunum, en veitt verða verðlaun fyrir flottasta húsið en hin húsin fá sömuleiðis viðurkenningu,“ segir Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir kennari sem sendi meðfylgjandi myndir. Á morgun verður svo niðurstaðan kynnt í keppninni.Lesa meira

true

Tólf voru greindir með kórónuveiruna í gær

Tólf voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Allir þeir sem greindust voru í sóttkví. 212 eru nú í einangrun hér á landi vegna veirunnar og 679 í sóttkví. 38 liggja á sjúkrahúsi og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú 45,8 en var í…Lesa meira

true

Fjallvegir að opnast

Vetrarfærð er víða á vegum landsins og ófærð einkum á Norður- og Austurlandi. Vegagerðin er nú búin að ryðja snjó af Bröttubrekku og er vegurinn sagður fær, en unnið að breikkun akstursleiðar. Búið er að opna veginn um Holtavörðuheiði, en þar er hálka og skafrenningur. Hálka, snjóþekja og þæfingur er á veginum um Heydal, sem…Lesa meira

true

Hluti nemenda og starfsfólks í sóttkví eftir að smit var greint

Covid-19 smit hefur verið greint í starfsmanna- og nemendahópi Grundaskóla á Akranesi. Í tilkynningu frá skólanum nú í morgun segir: „Nú stöndum við frammi fyrir því að Covid-19 smit hefur komið upp hjá starfsmanni skólans og hjá nemanda á unglingastigi. Nokkrir starfsmenn og nemendur skólans þurfa að fara í sóttkví fram á mánudag. Þetta varðar…Lesa meira

true

Mikið frost inn til landsins á morgun

Í dag er spáð norðan 13-23 m/s og að hvassast verði austantil á landinu með snjókomu, éljum og skafrenningi. Á vesturhelmingi landsins verður úrkomulaust að kalla. Dregur úr vindi og léttir til fyrst vestantil og kólnar í veðri. Í kvöld verður norðlæg átt, víða 5-13 m/s og bjartviðri. Frost 2 til 14 stig og mildast…Lesa meira