
Byggingarfélagið Bestla hefur hafið vinnu við að grafa fyrir undirstöðum undir fjölbýlishúsið að Þjóðbraut 3. Það er fyrirtækið Snókur verktakar ehf. sem sér um uppgröftinn. Áætlað er að þeirri vinnu ljúki fyrir jól og að uppsteypa hússins hefjist strax eftir áramót. Gert er ráð fyrir að íbúðir í húsinu verði tilbúnar til afhendingar sumarið 2022.…Lesa meira








