Fréttir

true

Ráðinn þjálfari Kára

Knattspyrnufélag Kára hefur ráðið Ásmund Haraldsson sem þjálfara liðsins og tók hann við liðinu í gær, 1. desember. Ásmundur er reynslumikill, bæði sem leikmaður og þjálfari. Hann hefur leikið með KR, Þrótti R, ÍR, Gróttu, Skínanda, KFG og SR. Þá hefur hann stýrt Gróttu úr 3. deild í 1. deild, þjálfað Skínanda, verið aðstoðarþjálfari kvennalandsliðsins…Lesa meira

true

EM í seilingarfjarlægð hjá stelpunum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu sigraði Slóvakíu í síðustu viku og Ungverjaland í dag í síðustu leikjum liðsins í undankeppni EM 2022.  Leikur Íslands og Ungverjalands fór ágætlega af stað og íslenska liðið var án efa sterkari aðilinn. Þær náðu þó ekki að klára færin sín og skildu liðin markalaus í hálfleik. Íslensku stelpurnar komu í seinni…Lesa meira

true

Ekki spilað meira á árinu

„Í ljósi ákvörðunar heilbrigðisráðherra um framlengingu sóttvarnarráðstafana til 9. desember er öruggt að ekki verður keppt frekar í körfubolta 2020,“ segir í tilkynningu frá KKÍ. „Vonir standa til að keppni geti hafist snemma í janúar, en framhaldið ræðst algjörlega af stöðu faraldursins og þeim takmörkunum sem gilda hverju sinni. Skrifstofa KKÍ vinnur að breyttu leikjadagatali,…Lesa meira

true

Jóladagatal Grundarfjarðarbæjar

Grundarfjarðarbær telur dagana fram að jólum með skemmtilegum hætti. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember birtist mynd af jólaglugga dagsins en glugginn getur verið hvar sem er í bænum. Það er svo bæjarbúa að finna út úr því hvar glugginn er staðsettur og eru þeir hvattir til að fara í göngutúr og taka…Lesa meira

true

Áfram sömu takmarkanir til 9. desember

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að framlengja gildandi reglugerðir um takmarkanir á samkomum og skólastarfi til 9. desember næstkomandi. Er þetta gert í samræmi við tillögur sóttvarnarlæknis sem mælir gegn því að slakað sé á sóttvörnum núna í ljósi þess hvernig faraldurinn hefur verið að þróast síðustu daga. Sóttvarnarlæknir sendi heilbrigðisráðherra minnisblað 25. nóvember með…Lesa meira

true

Átján voru greindir með veiruna í gær

Átján innanlandssmit kórónuveirunnar greindust í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is, og þar af voru ellefu í sóttkví. Nú eru 199 í einangrun á landinu vegna veirunnar og 689 í sóttkví. 40 liggja á sjúkrahúsi og þar af tveir á gjörgæslu. Einn lést síðasta sólarhringinn vegna Covid og hafa nú 27 látist hér á landi…Lesa meira

true

Rafmagnsleysi eftir hádegi í dag í Dölum

Rafmagnslaust verður í Hvammssveit, á Fellsströnd, Skarðsströnd og í Saurbæ í Dölum í dag frá klukkan 13:00-15:00 vegna vinnu við háspennudreifikerfið. Nánari upplýsingar er hægt að finna á heimasíðu Rarik, www.rarik.is/rof   Lesa meira

true

Veitur hyggjast snjallvæða mælakerfi raf,- hita- og vatnsveitu

Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, hafa gert samning við slóvenska fyrirtækið Iskraemeco um kaup á framsækinni lausn til að snjallvæða mæla raf,- hita- og vatnsveitu í húsum. Samningurinn hljóðar upp á um tvo milljarða króna og felur í sér kaup á mælum og hugbúnaðarkerfum ásamt aðlögun þeirra að rekstri Veitna. Um er að ræða rafmagnsmæla og…Lesa meira

true

Dagur reykskynjarans er í dag

Fyrsti desember ár hvert er dagur reykskynjarans. Þá er gott að skipta um rafhlöðu í skynjaranum og prófa, eða í tilfelli skynjara með innbyggða rafhlöðu að prófa. „Það er mikilvægt að hafa reykskynjara í öllum svefnherbergjum vegna þess að það eru komin t.d. hleðslutæki í herbergin og hjá börnum og unglingum eru gjarnan tölvur, leikjatölvur,…Lesa meira