Fréttir

true

Kynnti frumvarp um bættan hag og samþætta þjónustu við börn

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, kynnti í dag frumvarp um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Frumvarpið er afurð víðtæks samstarfs fjölda aðila með samþættingu þjónustu í þágu barna að markmiði, sem og að auka samvinnu og bæta samfellu þjónustu við börn og að hagsmunir barna skuli ávallt hafðir í fyrirrúmi. „Verkefnið er umfangsmikið…Lesa meira

true

GRun lætur gott af sér leiða fyrir hátíðirnar

Í dag sendi útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið G.Run hf. í Grundarfirði frá sér tæp þrjú tonn af ýsu. Fiskurinn er sendur að gjöf til Fjölskylduhjálpar Íslands. Flutningafyrirtækið Ragnar og Ásgeir ehf. sá svo um að koma farminum frítt suður. Eigendur GRun vona að gjöfin komi að góðu notum, en áætla má að þarna sé um að…Lesa meira

true

Aðskotahlutur í mexikóskri kjúklingasúpu

Matvælastofun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af mexíkóskri kjúklingasúpu merkt Krónunni vegna aðskotahlutar (glerbrots). Fyrirtækið með hjálp heilbrigðiseftirlitsins hefur innkallað súpuna. Matvælastofnun fékk upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu í Reykjavík um innköllunina. Innköllunin á eingöngu við um Mexíkóska kjúklingasúpu í eins lítra umbúðum, vörunúmer: 14335, sem framleidd var 6. nóvember 2020 og merkt “best fyrir” 6.…Lesa meira

true

Kveikt á jólatrénu á Akranesi

Mikil stemning var á Akratorgi á Akranesi í morgun þegar kveikt var á ljósum jólatrésins. Börn streymdu að úr tveimur elstu árgöngum leikskólanna á Akranesi, sum komu gangandi og önnur á rútum. Mikill spenningur lá í loftinu og skein gleðin úr augum barnanna. Torginu var skipt í fjögur aðskilin svæði og hafði hver leikskóli sitt.…Lesa meira

true

Átta greindust með veiruna í gær

Átta voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim átta sem greindust voru þrír í sóttkví. Í dag eru 187 í einangrun á landinu vegna veirunnar og 716 manns í sóttkví. 41 er nú á sjúkrahúsi og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú…Lesa meira

true

Grettislaug og leikskólalóð meðal framkvæmda

Sveitarstjórn Reykhólahrepps afgreiddi samhljóða á fundi sínum í liðinni viku fjárhagsáætlun fyrir næsta ár. Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir á Grettislaug en laugin þarfnast endurbóta. Eftir lagfæringar er gert ráð fyrir að sá kostnaður sem fer í að reka laugina gæti lækkað umtalsvert. Þá verður farið í framkvæmdir á leikskólalóð og nauðsynlegar hafnarframkvæmdir sem þegar…Lesa meira

true

Sitja í toppsæti riðilsins

Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik sigraði Kósovó glæsilega í forkeppni heimsmeistaramótsins 2023 í gær. Íslendingum gekk ekki vel í upphafi leiks og Kósovó var með yfirhöndina. Íslenska liðið náð sér svo á strik undi lok fyrsta leikhluta og skoraði tíu stig á síðustu tveimur mínútum leikhlutans. Íslenska liðið hélt uppteknum hætti í öðrum leikhluta og þegar…Lesa meira

true

Eiga kost á sálrænum stuðningi

Landbúnaðarráðherra, formaður Bændasamtaka Íslands og fulltrúar sveitarfélaga í Skagafirði hafa undirritað samkomulag við Kristínu Lindu Jónsdóttur sálfræðing, um að veita sauðfjárbændum sálrænan stuðning og ráðgjöf vegna riðuveiki sem greinst hefur í Skagafirði. Kristín Linda er klínískur sálfræðingur og rekur eigin sálfræðistofu, Huglind ehf. Í verkefninu felst að heimilisfólki á þeim búum þar sem riðuveiki hefur…Lesa meira

true

Gul viðvörun í kvöld og fram á nótt

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun um mestallt land í kvöld. Frá kl. 19:00 við Faxaflóa og 20:30 við Breiðafjörð er spáð suðaustan hvassviðri eða stormi 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu. Þetta snýst í rigningu um eða fyrir miðnætti og akstursskilyrði verða erfið.Lesa meira

true

Viðskipti með húsnæði á Vesturlandi í október

Þjóðskrá Íslands tekur mánaðarlega saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi þinglýstra fasteignakaupasamninga í október á Vesturlandi var 52 og velta í þeim viðskiptum alls 1.854 milljónir króna. Það gerir meðalverð í hverjum viðskiptum upp á 35,6 milljónir. Í þessum viðskiptum skiptu 20 sérbýli um eigendur, 20 viðskipti voru með…Lesa meira