Fréttir

true

Ótímabundin heimild til búnaðarkaupa fyrir fólk með sykursýki-1

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að Sjúkratryggingum Íslands sé eftirleiðis heimilt að ákveða að innkaupaheimildir gildi ótímabundið fyrir einstaklinga með ævilangt sjúkdómsástand, eins og t.d. fyrir einstaklinga með sykursýki 1. Þessi heimild var aðeins gefin út með 5 – 10 ára gildistíma en nú er búið að breyta til hagræðis fyrir alla sem hlut eiga að máli.…Lesa meira

true

Alltof mörg heimili eru berskjölduð fyrir eldsvoðum

Ný könnun Gallup um eldvarnir á heimilum sýnir að alltof mörg heimili eru vanbúin nauðsynlegum eldvarnabúnaði og þar með berskjölduð fyrir eldsvoðum. „Það er brýnna en nokkru sinni að hvetja fólk til að efla eldvarnir heimilisins, ekki síst í ljósi þess að það sem af er ári hafa fleiri látist í eldsvoðum hér á landi…Lesa meira

true

Hafa leigt kvóta á fiskveiðiárinu fyrir þrjá milljarða

Frá 1. september til og með 17. nóvember, þegar liðnir eru tveir og hálfur mánuður af fiskveiðiárinu, hafa alls tæp nítján þúsund tonn af veiðiheimildum verið leigð milli útgerða fyrir tæpa 2,9 milljarða króna. Um helmingur viðskiptanna er með veiðiheimildir í þorski, rúmur 1,4 milljarður, en að magni til er þorskur aðeins um 5.700 tonn…Lesa meira

true

Dregur hratt úr útbreiðslu Covid – tólf veikir á Vesturlandi

Fjögur ný innanlandsmit greindust í gær af Covid-19 á landinu og höfðu tveir hinna smituðu verið í sóttkví. Í nýjum tölum á Covid-19 vefnum kemur fram að áfram fækkar þeim sem eru í einangrun og sóttkví. Nýgengi smita er nú komið niður í 50 smit á hverja hundrað þúsund íbúa sem er það lægsta í…Lesa meira

true

Alþjóðlegi klósettdagurinn er í dag

Í dag er alþjóðlegi klósettdagurinn og á vef Umhverfisstofnunar er vakin athygli á því vandamáli sem úrgangur er í fráveitu um allt land. Þar segir m.a.: “Á hverju ári koma um 120 tonn af ýmsum óæskilegum úrgangi í hreinsistöðvar Klettagarða og Ánanaust í Reykjavík. Það þýðir að hálft kíló af rusli fer í klósettin eða…Lesa meira

true

Tekist á um endurbyggingu Fjöliðjuhúss

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar þriðjudaginn 10. nóvember síðastliðinn var samþykkt með fimm atkvæðum meirihluta bæjarstjórnar, gegn fjórum atkvæðum minnihlutans, að núverandi húsnæði Fjöliðjunnar við Dalbraut verði endurbyggt og jafnframt byggt við það. Er það í samræmi við það sem starfshópur um framtíðarhúsnæði Fjöliðjunnar komst að niðurstöðu um í lokaskýrslu sinni. Eins og kunnugt er kom…Lesa meira

true

Tröllaskagahólf bætist í hóp skilgreindra riðusvæða

Í ljósi staðfestra riðutilfella í Tröllaskagahólfi hefur Matvælastofnun nú skilgreint hólfið í heild sinni sem riðusýkt hólf næstu 20 árin. Tröllaskagahólf bætist því í listann yfir riðusýkt varnarhólf á landinu en fyrir eru Vatnsneshólf, Húna- og Skagahólf, Suðurfjarðahólf, Hreppa- Skeiða- og Flóahólf og Biskupstungnahólf. Þegar riðuveiki er staðfest taka gildi ýmsar takmarkanir gildi samanber reglugerð…Lesa meira

true

Björgunarsveitin Ok endurnýjar í tækjaflotanum

Undir lok síðustu viku fékk Björgunarsveitin Ok í Borgarfirði afhent tvö ný sexhjól í tækjaflota sinn. Munu þau koma í stað tveggja eldri hjóla; fjórhjóls og sexhjóls, sem verða seld. Nýju hjólin kosta björgunarsveitina um sjö milljónir króna nettó, þ.e. þegar búið er að gera ráð fyrir niðurfellingu gjalda sem björgunarsveitum stendur til boða. Hjólin…Lesa meira

true

Kjörbúðin lætur gott af sér leiða á Snæfellsnesi

Nýlega veitti Kjörbúðin fjóra styrki til stofnana og félagasamtaka á Vesturlandi og Vestfjörðum. Styrkirnir eru veittir árlega og er ætlað að standa við bakið á samfélagslega mikilvægum verkefnum í nærumhverfi Kjörbúðarinnar á hverjum stað. Samtals veitir verslunin 41 styrk um land allt. Málefnin sem hljóta styrki í ár eru af ólíkum toga. Leikskólinn Glaðheimum, félag…Lesa meira

true

Máttur kvenna og Háskólagátt á ensku í boði á Bifröst

Kóvidfaraldurinn hefur haft mikil áhrif á skólastarf í landinu. Við Háskólann á Bifröst hefur skólalífið verið í nokkuð föstum skorðum enda byggir skólinn á fjarnámi og allt frá fyrsta degi má segja að hann hafi verið „Kóvíd klár“. Þó þurfti að fresta námskeiðinu Mætti kvenna sem notið hefur mikilla vinsælda síðustu ár. Í Mætti kvenna…Lesa meira