Fréttir

true

Lionsmenn undirbúa uppsetningu ljósakrossa í kirkjugarðinum

Að venju verður Lionsklúbbur Akraness með útleigu á ljósakrossum í kirkjugarðinum í Görðum nú í byrjun aðventunnar. Afgreiðslutímar að þessu sinni verða laugardaginn 28. nóvember frá kl. 11 til 15.30, sunnudaginn 29. nóvember frá kl. 13 til 15.30 og laugardaginn 5. desember frá kl. 13 til 15.30. Rétt er að hafa í huga að grímuskylda…Lesa meira

true

Sérhæfir sig í innflutningi á jeppafelgum

Búskaparhættir á Íslandi breytast með ógnarhraða. Til marks um það má nefna að í fjósinu á Leirá í Leirársveit eru ekki lengur kýr en þar er nú búið með jeppafelgur í hundraðavís. Núverandi ábúendur á Leirá eru hjónin Anna Rósa Guðmundsdóttir og Elmar Snorrason. Þau hafa búið á Leirá undanfarin sjö ár. Anna Rósa starfar…Lesa meira

true

Borgarnesdagatalið er komið út

Þessa dagana er Borgarnes dagatalið 2021 að koma út. Það er veggdagatal með 13 myndum frá Borgarnesi, teknum í öllum mánuðum ársins. Skoða má myndirnar á dagatalinu og fá nánari upplýsingar á slóðinni: www.hvitatravel.is/dagatal. Þá er hægt að panta dagatalið hjá Þorleifi Geirssyni útgefenda og það verður einnig til sölu á Olís stöðinni í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Tíu voru greindir með veiruna í gær

Tíu voru greindir með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Þar af voru sex í sóttkví. 52 liggja nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar og þar af eru þrír á gjörgæslu. Í dag eru 232 í einangrun á landinu vegna Covid-19 og 318 í sóttkví sem er fækkun frá því í gær þegar…Lesa meira

true

Landsbyggðin kallar

Sjö landshlutasamtök á landsbyggðinni hafa tekið sig saman um að bjóða stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þátttöku í nýrri útgáfu af Ratsjánni, samtengdu verkefni sem hefst í upphafi árs 2021. Ratsjáin er ákveðið verkfæri ætlað stjórnendum í ferðaþjónustu og tengdum greinum sem vilja auka nýsköpunarhæfni sína, hraða mikilvægum breytingaferlum og öðlast aukna yfirsýn og…Lesa meira

true

Öxulþungatakmarkanir á Hvítárbrú norðan Húsafells

Á vef Vegargerðarinnar er sagt frá því að leyfilegur ásþungi á Hvítárbrú milli Húsafells og Kalmanstungu hafi verið tekinn niður í fimm tonn. Undirstöður brúarinnar eru laskaðar. Fyrir ökumenn venjulegra fólksbíla og jeppa hefur þetta engar breytingar í för með sér en fyrir stærri flutninga- og vörubíla hefur þetta áhrif. Verktakar sem vinna við vegagerð…Lesa meira

true

Miðstigi Auðarskóla er nú kennt í Leifsbúð

Í vikunni má segja að þriðju lotu samkomutakmarkana vegna Covid-19 hafi lokið. Henni fylgdu ýmsar hertar aðgerðir og takmarkanir m.a. á skólahaldi. Var nemendur á miðstigi og unglingastigi Auðarskóla í Dölum til skiptis kennt heima eða í skólanum sínum. Þetta fyrirkomulag reyndi vissulega bæði á börnin og foreldra þeirra. Til að koma til móts við…Lesa meira

true

Verkalýðsfélag Akraness flutt í nýjar höfuðstöðvar

Verkalýðsfélag Akraness flutti á dögunum starfsemi sína í nýtt húsnæði við Þjóðbraut 1. Eldra húsnæði félagsins við Sunnubraut á Akranesi, sem er um 100 fermetrar auk 40 fermetra fundarsalar undir súð, var orðið alltof lítið og rúmaði ekki lengur starfsemi félagsins. Hið nýja húsnæði er hins vegar um 300 fermetrar og hátt til lofts og…Lesa meira

true

Útieldstæði tekið í notkun á Varmalandi

Lokið er við að byggja upp eldstæði á skógarsvæðinu á Varmalandi í Borgarfirði. Þar hefur grunnskólinn nýtt sér aðstöðuna til útikennslu til margra ára. „Fyrir nokkrum árum þegar Imba okkar, Ingibjörg Daníelsdóttir á Fróðastöðum, lét af störfum að loknum kennsluferli sínum ákvað hún að gefa ákveðna fjárhæð fyrir hvert ár sem hún starfaði við skólann…Lesa meira

true

Spakir ökumenn á akstri við leikskóla

Í síðustu viku var lögregla í ómerktum bíl við radarmælingar á Ketilsflöt nálægt leikskólanum Akrasel á Akranesi. Mælingin átti sér stað á háannatíma, á milli kl. hálf átta og hálf níu að morgni. 138 bílar óku framhjá og ók enginn svo hratt að refsing hlytist af. Sá sem hraðast ók var á 33 kílómetra hraða.…Lesa meira