Fréttir

true

Framköllunarþjónustan heitir nú Brúartorg

Á 31 árs afmæli Framköllunarþjónustunnar í Borgarnesi stíðastliðinn laugardag var nafni verslunarinnar breytt í Brúartorg og ný vefverslun sömuleiðis sett í loftið. Framköllunarþjónustuna opnuðu hjónin Svanur Steinarsson og Elfa Hauksdóttir við Borgarbraut 11 í Borgarnesi árið 1989. Þar starfaði fyrirtækið til ársins 1998 þegar starfsemin flutti í núverandi húsnæði við Brúartorg 4. Aðspurður segir Svanur…Lesa meira

true

Tveir Skagamenn á Wembley í kvöld

Tveir Skagamenn eru mættir á Wembley til að spila með A landsliðinu í knattspyrnu gegn Englendingum, en leikurinn fer fram í kvöld. Þetta eru þeir Arnór Sigurðsson og Ísak Bergmann Jóhannesson. Arnór er leikmaður CSKA Moskva í Rússlandi og hefur hann spilað ellefu leiki fyrir A landsliðið og skorað eitt mark. Ísak Bergmann er leikmaður…Lesa meira

true

Sérstakir styrkir til tekjulágra vegna íþrótta- og tómstundastarfs

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrkjum frá ríkinu fyrir börn sem búa á tekjulægri heimilum þar sem markmiðið er að jafna tækifæri þeirra til þátttöku í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi. Styrkirnir koma til viðbótar hefðbundnum íþrótta- og tómstundastyrkjum sveitarfélaga. Alls verður um 900 milljónum króna varið í verkefnið árin 2020 og…Lesa meira

true

Stýrivextir lækkaðir um fjórðung

Peningastefnunefnd Seðlabankans kynnti í morgun vaxtaákvörðun sína en þar eru stýrivextir lækkaðir um fjórðung, eða 0,25 prósentustig. Eru meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, því 0,75% eftir ákvörðunina. Í tilkynningunni segir m.a. að fjölgun COVID-19 smita á haustdögum og hertar sóttvarnir valdi því að dregið hafi úr þeirri viðspyrnu í efnahagslífinu sem hófst…Lesa meira

true

Hefja byggingu nýs skrifstofuhúss á Alþingisreit

Samningur Alþingis við ÞG verktaka um þriðja áfanga byggingar fimm hæða skrifstofuhúss á Alþingisreit var undirritaður í dag. Undir samninginn rituðu Steingrímur J Sigfússon forseti Alþingis og Ragna Árnadóttir skrifstofustjóri fyrir hönd Alþingis og Þorvaldur Gissurarson, forstjóri ÞG verktaka. Í þriðja áfanganum felst uppsteypa og fullnaðarfrágangur. Flatarmál aðalbyggingarinnar verður 5.073 m² að viðbættum 1.307 m²…Lesa meira

true

Annir hjá hárskerum eftir að opna mátti aftur

Í morgun var slakað á samkomutakmörkunum vegna Covid-19. Meðal annars máttu hárgreiðslustofur og hárskerar opna að nýju eftir að hafa verið gert að loka 31. október síðastliðinn. Ljóst er að uppsöfnuð eftirspurn er því til staðar. Í Skessuhorni, sem kom út í dag, er meðal annars greint frá því að Pastelbúðin var opnuð í Ólafsvík…Lesa meira

true

Níu af ellefu nýjum covidsjúklingum voru í sóttkví við greiningu

Í gær greindust ellefu með kórónuveiruna innanlands og voru níu af þeim í sóttkví. Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á covid.is. Nú eru 55 á sjúkrahúsi með sjúkdóminn, þar af fjórir á gjörgæslu. 267 eru nú í einangrun, samanborið við 302 í gær. Þá eru 384 í sóttkví í dag og hefur fækkað um…Lesa meira

true

Tíu lóðir við Sementsreit auglýstar til úthlutunar

Akraneskaupstaður auglýsir í Skessuhorni sem kom út í dag 17 lóðir til úthlutunar. Þar á meðal eru tíu nýjar lóðir sem standa við Suðurgötu, nánar tiltekið við Sementsreitinn, auk tveggja eldri lóða við sömu götu. Þá eru í sömu auglýsingu fjórar lóðir við Asparskóga til úthlutunar, ásamt einni lóð við Akralund. Samkvæmt fundargerð bæjarráðs 15.…Lesa meira

true

Fjölbýlishús reist á nokkrum klukkutímum

Akurnesingar tóku margir eftir flutningabílum með gríðarstóra farma í byrjun vikunnar. Þeir óku áleiðis frá Akraneshöfn, upp bæinn í lögreglufylgd. Um er að ræða húseiningar á vegum fyrirtækisins Modulus ehf. en fyrirtækið er nú að reisa 12 íbúða fjölbýlishús við Asparskóga. Einingarnar eru frá Byko-Lat í Lettlandi. Íbúðirnar eru tveggja, þriggja og fjögurra herbergja. Modulus…Lesa meira

true

Minni grímuskylda og óheft útivist

Samkvæmt nýrri reglugerð sem gildi tekur í dag verða nemendur 5.–7. bekk grunnskóla undanþegin grímuskyldu og tveggja metra nálægðartakmörkunum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart börnum á leikskólaaldri og nemendum í 1.-7. bekk er einnig afnumin. Þá er heimilt að nemendahópar blandist á útisvæðum leik- og grunnskóla. Íþrótta-, æskulýðs- og…Lesa meira