Fréttir

true

Pastel opnar í dag í nýju húsnæði í Ólafsvík

Hársnyrtikofan Pastel í Ólafsvík hefur flutt starfsemi sína að Ólafsbraut 19 í húsnæði sem áður hýsti veitingastað. María Guðrún Guðmundsdóttir eigandi Pastel segir að aðstaðan sé öllu betri og stærri en í gamla húsnæðinu. Eiginmaður Maríu, Gísli Bjarnason, sá að mestu leyti um breytingar á staðnum og er óhætt að þarna sé listamaður að verki…Lesa meira

true

Kynnir endurskoðað frumvarp um fæðingar- og foreldraorlof

Ríkisstjórnin hefur fyrir sitt leiti samþykkt frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamálaráðherra, um fæðingar- og foreldraorlof. Frumvarpið tekur mið af athugasemdum sem bárust þegar það var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Alls er gert ráð fyrir að 19,1 milljörðum króna verði varið í fæðingarorlof á árinu 2021 sem er tæplega tvöföldun á þeim fjármunum sem…Lesa meira

true

Riða á einum bæ til viðbótar á Tröllaskaga

Riðusmit hefur verið staðfest á einum bæ til viðbótar í Tröllaskagahólfi. Bærinn er Minni-Akrar og er staðsettur í Akrahreppi í Skagafirði. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Tilfellið var staðfest í sýni sem tekið var í sláturhúsi og greint á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum. Á búinu er nú um hundrað fjár.…Lesa meira

true

Sjö voru greindir í gær með Covid

Sjö voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og af þeim voru sex í sóttkví. 302 eru nú í einangrun vegna veirunnar og 563 í sóttkví. 57 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid-19 og þar af eru fjórir á gjörgæslu. Á Vesturlandi eru nú 15 í einangrun með kórónuveiruna,…Lesa meira

true

Átak til að fólk flokki rétt hvað fer í klósettið

Á hverju ári berast um 120 tonn af ýmsum óæskilegum úrgangi í hreinsistöðvar skólps við Klettagarða og Ánanaust í Reykjavík. Það þýðir að hálft kíló af rusli fer í klósettin eða niðurföll á hvern íbúa á höfuðborgarsvæðinu! Þá er óupptalið hvað safnast í fráveitukerfi annars staðar á landinu. Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun kemur fram að…Lesa meira

true

Grímuskylda afnumin á miðstigi grunnskóla

Börn í 5. – 7. bekk grunnskóla verða undanþegin grímuskyldu og tveggja metra nálægðartakmörkunum frá og með morgundeginum, líkt og yngri börn í grunnskóla og leikskólabörn. Grímuskylda kennara gagnvart þessum börnum verður einnig afnumin. Skýrt verður kveðið á um að á útisvæðum leik- og grunnskóla séu engar kröfur sem hindra blöndun hópa, né kröfur varðandi…Lesa meira

true

“Jólin bíða þín í Borgarbyggð”

Borgarbyggð vill skapa notalega jólastemningu í sveitarfélaginu í aðdraganda jóla, þar sem jólaljósin, ljúfir tónar, fjölbreytt vöru- og þjónustuúrval, heitt kakó og blómstrandi menning koma til með að ráða ríkjum. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu segir að í ár verði meira en nokkru sinni lagt upp úr góðri stemningu á aðventunni. „Sveitarfélagið vill fara af stað…Lesa meira

true

Íslensk ferðaþjónusta í heild hlaut nýsköpunarverðlaunin

Íslensk ferðaþjónusta hlýtur Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar árið 2020. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid, forsetafrú og velgjörðarsendiherra ferðamennsku og sjálfbærrar þróunar hjá Ferðamálastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNWTO) tilkynntu um verðlaunin í myndbandi sem Samtök ferðaþjónustunnar gáfu út 11. nóvember sl. Nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar eru veitt fyrir athyglisverðar nýjungar í ferðaþjónustu og er ætlað að hvetja frumkvöðla…Lesa meira

true

Útséð er með bóknám í skólanum á þessari önn

Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi hefur tilkynnt nemendum sínum að nú séu brostnar vonir um að fá hópa í bóklegum áföngum inn í skólann á þessari haustönn. Nýjar sóttvarnarreglur sem gilda frá og með 18. nóvember til 2. desember útiloki að hægt sé að taka á móti nemendum í staðnámi eins og…Lesa meira

true

Vörukarfan hækkað um 0,5%-2,6% í matvöruverslunum frá því í maí

Á fimm og hálfum mánuði, eða frá því í lok maí fram í byrjun nóvember, hefur vörukarfa ASÍ hækkað um 0,5%-2,6% í sjö verslunarkeðjum en vörukarfan endurspeglar almenn matarinnkaup meðalheimilis. Mest hækkaði vörukarfan í Nettó, um 2,6% og næst mest í Bónus, 2,4%. Minnst hækkaði vöruakarfan í Hagkaup milli mælinga eða um 0,5% en í…Lesa meira