Fréttir

true

Hremmingar í höfninni

Litlu munaði að hvalaskoðunarbáturinn Íris losnaði frá bryggju í Grundarfirði í mestu vindhviðunum í dag. Íris lá við Miðgarð þannig að vindurinn ýtti henni frá bryggjunni. Svo gefur spotti sig með þeim afleiðingum að framendi skipsins losnar frá. Það var einungis skjótum viðbrögðum eigenda og hafnarstarfsmanna að þakka að ekki fór verr. Þeir komust um…Lesa meira

true

Óskað var eftir níu milljónum lítra en tvær milljónir falboðnar

Landbúnaðarráðuneytinu bárust 209 gild tilboð um kaup og sölu á tilboðsmarkaði fyrir greiðslumark mjólkur 2. nóvember síðastliðinn.  Þetta var jafnframt síðasti markaðurinn á yfirstandandi ári og aðilaskipti greiðslumarks á markaðnum taka gildi frá 1. janúar nk. Hámarksverð greiðslumarks samkvæmt reglugerð frá 30. júlí sl. er þrefalt afurðastöðvaverð, nú 294 kr. fyrir hvern lítra mjólkur. Nær…Lesa meira

true

Veruleg fækkun í sóttkví en 20 eru í einangrun á Vesturlandi

Nú eru 20 manns í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi; 18 á Akranesi og tveir í Borgarnesi. Í landshlutanum eru nú 85 í sóttkví; einn í Dölum, Stykkishólmi og Ólafsvík, fimm í Borgarnesi og 77 á Akranesi. Fækkað hefur um 67 í sóttkví frá því í gær og einn í einangrun, samkvæmt tölum frá Lögreglunni…Lesa meira

true

Óskar að landbúnaðarráðherra svari spurningum um verð á greiðslumarki

Guðrún Sigurjónsdóttir kúabóndi á Glitstöðum í Norðurárdal sendi á mánudaginn Kristjáni Þór Júlíussyni landbúnaðarráðherra bréf og formlegar fyrirspurnir í nokkrum liðum um þá stöðu sem upp er komin með viðskipti með greiðslumark mjólkur. Guðrún er afar ósátt við þá stöðu að búið sé að festa verð fyrir greiðslumark í þreföldu afurðastöðvaverði mjólkur, þ.e. 294 krónur…Lesa meira

true

Kurr vegna breytingar á aðalskipulagi Hellna

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt lýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á aðalskipulagi er snertir jörðina Gíslabæ á Hellnum. Gíslabær var nýverið seldur og er skráður eigandi nú samkvæmt Fasteignaskrá ríkisins S356 ehf. til heimilis að Suðurlandsbraut 4 í Reykjavík. Hyggjast nýir eigendur fá aðalskipulagi breytt og auka byggingarmagn á svæðinu sem nemur átta sumarhúsum ofan vegar. Fiskhúsi…Lesa meira

true

Varað við suðvestan stormi síðdegis og í kvöld

Vegagerðin varar við að enn einn stormurinn með hlýindum og byljóttum vindi sé væntanlegur í dag. Frá klukkan 15 og til miðnættis verður suðvestanátt og varasamt getur verið að vera á ferðinni allt frá Borgarfirði norðan Skarðsheiðar og á Snæfellsnesi og þaðan allt vestur og norður um land.Lesa meira

true

Fjallað um skaðleg áhrif myglu í húsnæði á heilsu fólks

Fréttaskýringaþátturinn Kveikur er á dagskrá Ríkissjónvarpsins í kvöld klukkan 20:05. Í þættinum verður fjallað um hvernig mygla og rakaskemmdir í húsum getur haft afdrifaríkar afleiðingar á heilsu fólks. Meðal annars verður í þættinum rætt við Ragnheiði Sigurðardóttur sem býr á Akranesi. Ragnheiður mun í þættinum lýsa því hvernig hún hefur nú misst röddina og á…Lesa meira

true

25 greindir í gær

Í gær voru 25 innanlandssmit kórónuveirunnar skv. tölum á covid.is, þar af voru 20 í sóttkví. Engin smit voru greind á landamærum í gær. Í dag liggur 71 sjúklingur á sjúkrahúsi, þar af eru þrír á gjörgæslu og einn Covid sjúklingur lést á Landspítalanum í gær. 762 eru í einangrun í dag vegna veirunnar og…Lesa meira

true

Öðruvísi skemmtiatriði á Rökkurdögum

Rökkurdagar í Grundarfirði standa nú yfir og eru með töluvert óhefðbundnu sniði þetta árið. Heimsfaraldurinn setur strik í reikninginn og því þarf að hugsa aðeins útfyrir boxið. Fólk er hvatt til að takmarka samkomur og samneyti við aðra og helst að halda sig heima. Föstudagskvöldið 30. október síðastliðið voru skemmtilegir tónleikar frumsýndir á veraldarvefnum en…Lesa meira

true

“Veðurstofa Íslands er stór og spennandi vinnustaður”

Veðurfar á Íslandi hefur í gegnum aldirnar mótað hugsunarhátt þjóðarinnar og haft mikil áhrif á búsetu, efnahag og lífsgæði. Óhætt er að fullyrða að það líði varla sá dagur að fullorðinn Íslendingur minnist ekki á veðrið og veðurhorfur með einhverjum hætti. Veðrið og veðurspár eru því stór þáttur í lífi okkar allra og hefur áhrif…Lesa meira