Fréttir

true

Eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði í Grundarfirði

Slökkvilið Grundarfjarðar og Ólafsvíkur voru kölluð út laust eftir klukkan 9 í morgun. Eldur var laus í iðnaðarhúsnæði við Nesveg 21 í Grundarfirði þar sem listsmiðjan Lavaland er til húsa. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp en það var vegfarandi sem tilkynnti um brunann. Þegar slökkviliðin mættu á svæðið var ekki mikill eldur…Lesa meira

true

Mjólkursamsölunni verður skipt upp

Eigendur og stjórn Mjólkursamsölunnar hafa ákveðið að skipta starfseminni upp í sjálfstæð félög í sömu eigu, sem sinni annars vegar innlendri og hins vegar erlendri starfsemi. „Er þessi breyting nú rökrétt framhald á þeirri vegferð sem hófst um mitt ár 2018, þegar stofnað var sérstakt dótturfélag um erlenda starfsemi Mjólkursamsölunnar, Ísey útflutningur ehf. Var það…Lesa meira

true

Brotist var inn í bát

Að morgni sunnudags barst lögreglu tilkynning um að brotist hefði verið inn í skipið Leyni SH-120 sem lá við bryggju í Stykkishólmi. Við athugun kom í ljós að rúða hafði verið brotin í skipinu. Talið var að farið hefði verið inn í skipið en í fljótu bragði virtist engu hafa verið stolið. Lyfjakista skipsins reyndist…Lesa meira

true

Nítján innanlandssmit í gær

Í gær greindust 19 með kórónuveiruna innanlands samkvæmt nýjum tölum á covid.is. Þar af voru tólf í sóttkví við greiningu. Alls eru 735 í einangrun vegna veirunnar og 1.414 í sóttkv. 78 liggja á sjúkrahúsi og eru fjórir þeirra á gjörgæslu. Á landamærunum greindust sjö með veiruna í gær. Nýgengi innanlandssmita er 177,8 og nýgengi…Lesa meira

true

Neysla Íslendinga svipuð þrátt fyrir Covid

Umsvif í hagkerfinu eru mun meiri nú en í fyrstu bylgju heimsfaraldursins. Neysla Íslendinga innanlands er nú svipuð og á sama tíma í fyrra en í fyrstu bylgju faraldursins dróst hún saman um 20%. Umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur minnkað töluvert sem líklega endurspeglar aukna fjarvinnu. Þetta kemur fram í samantekt frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Neysla…Lesa meira

true

Soffía Guðrún er nýr félagsmálastjóri á Reykhólum

Soffía Guðrún Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda- og Reykhólahrepps, að því er fram kemur í frétt á vef Reykhólahrepps. Hún tekur við starfinu af Guðrúnu Elínu Benónýsdóttur. Soffía Guðrún lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands vorið 1986 og hefur lokið B.A gráðu og M.A. gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands, M.A gráðu í…Lesa meira

true

Taka þátt í undankeppni EM án viðunandi undirbúnings

Kvennalandslið Íslands í körfubolta heldur til Heraklion í Grikklandi á sunnudaginn og keppir í næstu viku tvo leiki í undankeppni EM. Liðið tekur þátt í mótinu, en þrátt fyrir mótmæli KKÍ undanfarnar vikur og fleiri þjóða undanfarna daga, ákvað FIBA að halda sig við að láta leikina fara fram. Hér á landi hefur verið æfingabann…Lesa meira

true

Rafmagn fór af á tveimur stöðum

Sökum veðurs í gær fór rafmagn af dreifikerfi Rarik á tveimur stöðum á Vesturlandi. Fyrst varð straumlaust í Fróðárhreppi á Snæfellsnesi, frá Ólafsvík að Fróðá, frá klukkan 14 til 16. Síðari bilunin varð á Skógarstrandarlínu. Þar sló út rafmagni klukkan 19 en viðgerð lauk klukkan 23.Lesa meira

true

Kórónaveirusmit milli minka og manna

Fyrr í vikunni var greint frá því að Danir ætla að skera niður allan minkastofninn á búum þar í landi vegna kórónaveirusmits sem barst úr minkum í fólk. Um stökkbreytt afbrigði veirunnar er að ræða sem talið er að hafi borist upprunalega úr fólki í minka. Hætta er á að þau bóluefni sem eru í…Lesa meira

true

Þekkti ekki mömmu

Hrekkjavökur eru nú orðnar býsna almennar. Börn sem fullorðnir gera sér glaðan dag, búa sig upp og skreyta hús. Kennarar á yngsta stigi í Brekkubæjarskóla á Akranesi voru með þemað gamalt fólk, nemendum sínum til ánægju á hrekkjavöku undir lok síðustu viku. Þeirra á meðal var hún Tinna Steindórsdóttir. Sjálf á hún hálfs annars árs…Lesa meira