Fréttir

true

Eldfjallasafnið í Stykkishólmi boðið til sölu

Eldfjallasafnið í Stykkishólmi hefur verið sett á sölu. Frá því greint í frétt í Morgunblaðinu á mánudaginn. Allt sem Haraldur Sigurðsson eldfjallafræðingur hefur í gegnum áratugina safnað að sér fyrir safnið fylgir með í sölunni. Segir hann það mikið áfall að þurfa að selja safnið. Ástæða sölunnar segir hann að í gegnum árin hafi hann…Lesa meira

true

Hvasst og úrkomusamt í dag og á morgun

Í dag verður suðvestan stormur með mikilli rigningu hér vestanlands. Gular viðvaranir eru í öllum landshlutum nema fyrir Vesturland og Suðvesturland vegna hvassviðris. Spáin í dag gerir ráð fyrir suðvestan 13-23 m/s, en heldur hægari vindi suðvestanlands. Rigning með köflum, en samfelldari úrkoma hér vestantil framan af degi. Bætir heldur í vind og dregur úr…Lesa meira

true

Gögn Þjóts komin á Héraðsskjalasafnið

Vörubílstjórafélagið Þjótur var stofnað á Akranesi 6. desember 1944 og var starfrækt allt fram yfir aldamótin. Einn af stofnendum félagsins var Árni Breiðfjörð Gíslason vörubílstjóri og sat hann í stjórn félagsins meira og minna frá stofnun og þar til hann hætti akstri fyrir aldurs sakir. Þegar starf félagsins lagðist af enduðu gögn, fundagerðir, bókhaldsgögn og…Lesa meira

true

Boðnir velkomnir til Borgarness á Akranesvelli

Styrktaraðilar fótboltans á Akranesi fá auglýsingaskilti upp við völlinn. Einn þeirra er verktakafyrirtækið Borgarverk sem býður jafnframt gesti velkomna í Borgarnes, enda eru höfuðstöðvar fyrirtækisins þar. Gárungar segja þetta sérlega skemmtileg skilaboð enda þekkt að nokkurs rígs gæti milli bæjanna.Lesa meira

true

Heitavatnslaust í Borgarnesi á morgun, fimmtudag

Vegna viðgerða verður heitavatnslaust frá Borgarbraut 66 í Borgarnesi að Brautarholti á morgun, fimmtudaginn 5. nóvember á milli klukkan 9 og 18. Frá þessu er greind á vef Borgarbyggðar. Íbúar eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.Lesa meira

true

Úthlutun framundan úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar

Úthlutað verður úr Minningarsjóði Heimis Klemenzsonar í fyrsta skipti nú fyrir áramót. Af því tilefni óskar stjórn sjóðsins eftir tilnefningum um ungt og efnilegt tónlistarfólk úr Borgarfirði. Gert er ráð fyrir að tónlistarmennirnir séu komnir í framhaldsnám eða sambærilegt nám/tónsköpun. Tilnefningar ásamt sem gleggstum upplýsingum um viðkomandi tónlistarmann sendist á netfangið jomundur@gmail.com fyrir 10. nóvember.…Lesa meira

true

Árbók Akurnesinga hlýtur menningarverðlaunin 2020

Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar eru veitt árlega í tengslum við Vökudaga og voru í dag veitt í fjórtánda sinn við heldur óhefðbundnar aðstæður. Verðlaunin eru veitt þeim einstaklingum eða félagasamtökum sem hafa skarað fram úr á einhverju sviði menningar í bæjarfélaginu. Menningarverðlaun Akraness 2020 hlýtur Árbók Akurnesinga sem hjónin Margrét Þorvaldsdóttir og Kristján Kristjánsson gefa út. Árbók…Lesa meira

true

Dópaður ökumaður smitaði lögreglumenn af Covid-19

Laugardaginn 24. október sl. stöðvaði lögregla við reglulegt eftirlit bifreið við Hvalfjarðargöng. Við nánari athugun reyndist ökumaður undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Síðar kom í ljós að hann var smitaður af Covid-19. Þrátt fyrir að lögreglumennirnir væru með grímur og hanska og hefðu unnið samkvæmt varúðarráðstöfunum lögreglu eru þeir nú…Lesa meira

true

27 innanlandssmit greindust í gær

Alls greindust 27 innanlandssmit kórónuveirunnar í gær skv. tölum á covid.is, og þar af voru 17 í sóttkví. Engin smit voru greind á landamærum í gær. Í dag eru 74 á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu. 872 eru í einangrun vegna veirunnar og 2.083 í sóttkví. Nýgengi smita er nú 188,4 sem er lækkun…Lesa meira

true

Mjólkursamsölunni skipt upp í tvö fyrirtæki

Eigendur og stjórn Mjólkursamsölunnar hafa ákveðið að skipta starfseminni upp í sjálfstæð félög í sömu eigu, sem sinni annars vegar innlendri og hins vegar erlendri starfsemi. „Er þessi breyting nú rökrétt framhald á þeirri vegferð sem hófst um mitt ár 2018, þegar stofnað var sérstakt dótturfélag um erlenda starfsemi Mjólkursamsölunnar, Ísey útflutningur ehf. Var það…Lesa meira