Fréttir

true

Lýsa yfir áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda

Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna áhyggja af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda. Hefur hún verið send til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis, atvinnumálanefndar Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda, afurðastöðva landsins og á fjölmiðla. „Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði…Lesa meira

true

Reglugerðarbreyting um fjölda viðskiptavina í verslunum

Nú er heimilt að hafa allt að 50 viðskiptavini í einu inni í lyfja- og matvöruverslunum og allt að 10 viðskiptavini samtímis í öðrum verslunum, að því gefnu að hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Um starfsmenn í þessum verslunum gildir að þeir mega ekki…Lesa meira

true

Víða lagfæringar í vegagerð á Snæfellsnesi

Á Snæfellsnesi hefur í haust verið unnið að ýmsum verkefnum hjá Vegagerðinni, bæði stórum og smáum. Stærsta verkefnið var vinna við að bæta öryggi á Snæfellsnesvegi en í Stórholtum voru lengd ræsi og vegfláar og öryggissvæði lagað en um 6000 rúmmetrum var keyrt í vegfláana. Í Grundarbotni austan megin við Grundarfjörð var skipt um tvö…Lesa meira

true

Borgfirðingar sýna samhug

Um síðustu helgi tóku íbúar í Borgarbyggð sig saman og bjuggu til samstöðuhóp á Facebook undir nafninu „Samhugur í Borgarbyggð“. Tilgangur hópsins er að aðstoða þá sem á þurfa að halda nú á þessum erfiðu tímum þegar jólin fara að nálgast. Í gegnum hópinn er ætlunin að safna jólagjöfum, gjafabréfum og matarpökkum fyrir þá sem…Lesa meira

true

Undirbúa stofnun þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum. Stofnunin vinnur nú ásamt samstarfshópi að undirbúningi friðlýsingar fyrir svæði sem m.a. nær til Vatnsfjarðar, Surtarbrandsgils, Geirþjófsfjarðar og jarðanna Dynjanda og Hrafnseyrar við Arnarfjörð. Í september á síðasta ári færði Rarik íslenska ríkinu jörðina Dynjanda að gjöf. Við undirritun samkomulags vegna gjafarinnar staðfestu stjórnvöld að…Lesa meira

true

Sektað verði fyrir að greiða undir lágmarkskjörum

Miðflokkurinn hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Birgir Þórarinsson þingmaður er fyrsti flutningsmaður, en aðrir flutningsmenn eru hinir átta þingmenn Miðflokksins. Í breytingartillögunni felst að Vinnumálastofnun verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssekt á atvinnurekanda sem vísvitandi eða af stórfelldu gáleysi greiðir launamanni laun eða…Lesa meira

true

Útgerðin á netið

Útgerðin í Pakkhúsinu í Ólafsvík opnaði fyrr í mánuðinum nýja vefverslun og sendir nú frítt um allt land. Í verslun Útgerðarinnar er fjölbreytt vöruúrval af heimilisvörum, skartgripum, fatnaði, barnavörum, sælkeravörum og ýmsu öðru. Hægt er að skoða vöruúrvalið og versla í vefversluninni á utgerdin.shop.Lesa meira

true

Síðasti tökudagur í Grundarfirði

Tökulið frá Glassriver þurfti að stytta veru sína í Grundarfirði vegna hertra samkomutakmarkanna og síðastliðinn sunnudag var síðasti tökudagur þeirra í Grundarfirði. Þá var verið að taka útitökur við Heilbrigðisstofnun Vesturlands í Grundarfirði. Þetta var því væntanlega síðasti dagurinn sem að takmarkað aðgengi var um götur Grundarfjarðar vegna tökumanna og leikara. Aðstandendur þáttanna Vitjanir reikna…Lesa meira

true

Baski hefur lokið viðgerð á altaristöflu Akraneskirkju

Fyrr í dag var upprunalegri altaristöflu Akraneskirkju komið fyrir í ramma sínum og upp á vegg ofan við altari kirkjunnar. Bjarni Skúli Ketilsson listmálari, sem hefur listamannsnafnið Baski, hóf forvörn og viðgerðir í september og hafði til þess aðstöðu í gamla Iðnskólanum við Vinaminni. Á meðan á viðgerð á gömlu altaristöflunni stóð var sett í…Lesa meira

true

Stefnir ekki í veldisvöxt eins og víða erlendis

Þórólfur Guðnason, sóttvarnarlæknir, sagði á upplýsingafundi í morgun að innanlandssmitin nú séu nokkuð stöðug og heldur vera á leiðinni niður á við. 26 greindust með veiruna hér á landi í gær og er það nokkuð lægri tala en sást fyrir helgi. Hertar reglur tóku gildi á miðnætti á föstudagskvöld og á morgun taka í gildi…Lesa meira