Fréttir

true

Skref í rétta átt í Stykkishólmi

Guðfinna Rúnarsdóttir opnar á næstu vikum nýja fótaaðgerðastofu í Stykkishólmi. Guðfinna hefur nýlega lokið námi í fótaaðgerðafræði og bíður eftir leyfi landlæknis til að hefja störf. „Um leið og ég fæ leyfið mun ég byrja að vinna á hjúkrunarheimilinu hér í Stykkishólmi og svo vonandi í lok mánaðarins get ég opnað stofu sem ég er…Lesa meira

true

Krílakoti í Ólafsvík færðar góðar gjafir

Leikskólanum Kríubóli í Ólafsvík bárust góðar gjafir í sumar sem starfsmenn áhaldahúss Snæfellsbæjar hafa verið að setja upp og koma fyrir undanfarna daga. Ómar Lúðvíksson og Kay Wiggs eiginkona hans færðu leikskólanum fuglahús í tilefni af útskrift barnabarns þeirra af leikskólanum. Þess má geta að þegar fyrsta barnabarn þeirra útskrifaðist af leikskólanum færðu þau leikskólanum…Lesa meira

true

Gul viðvörun síðdegis og fram á kvöld

Eftir hádegi í dag og fram á kvöld er spáð suðvestan 18-23 m/s, með staðbundnum vindhviðum yfir 35 m/s, við Faxaflóa og á norðanverðu Snæfellsnesi. Gul viðvörun er því í gildi um tíma og fólk hvatt til að fylgjast með spá og veðurlýsingum. Aðstæður geta verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.…Lesa meira

true

Krefjandi tímar hjá framhaldsskólanemum og kennurum

Eins og hjá öllum framhaldsskólanemum á landinu eru núverandi aðstæður afar krefjandi þegar nánast allt bóknám fer fram í fjarkennsluumhverfi og reynir því meira en nokkru sinni á einbeitingu og sjálfsstjórn nemenda. Þegar smitum fjölgaði hratt í samfélaginu í byrjun október, og hertar sóttvarnaraðgerðir tóku gildi, var bóknám nemenda í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi flutt…Lesa meira

true

Mannbjörg er maður féll í Skorradalsvatn

Maður féll af sit-on-top kajak sínum í Skorradalsvatn á þriðja tímanum í dag. Neyðarlínu barst tilkynning um atvikið kl. 14:49. Félagi mannsins tilkynnti um slysið en hann komst ekki að félaga sínum vegna mikils vinds og ágjafar á vatninu. Maðurinn var vel búinn, í þurrgalla og flotvesti. Björgunarsveitir voru kallaðar á staðinn og náðu manninum…Lesa meira

true

Birta úrslit í ljósmyndasamkeppni Félags sauðfjárbænda

Félag sauðfjárbænda í Dölum hélt í haust sína árlegu ljósmyndasamkeppni. Þemað í ár samkvæmt facebook síðu félagsins var „hinir margrómuðu hrútar, fullorðnir, miðaldra og/eða ungir.“ Voru félagsmenn hvattir til þess að gramsa í gömlum myndum eða taka nýjar og vera með í skemmtilegri keppni. Jafnframt segir á síðunni: „Þú hefur tvo sólahringa til stefnu, þar…Lesa meira

true

Sælgæti innkallað vegna aðskotahlutar

Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við neyslu á sænsku sælgæti, „S-märke surt skum“, sem heildverslun Core ehf. flytur inn, vegna aðskotarhlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs. Matvælastofnun fékk upplýsingarnar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á…Lesa meira

true

Eldra fólk þarf að skipuleggja verslun vel og huga að næringu

Upplýsingafundur almannavarna var haldinn í morgun. Fundinum stjórnaði Rögnvaldur Ólafsson aðstoðaryfirlögregluþjónn en gestir voru Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Landssambands eldri borgara, og Anna Steinsen fyrirlesari, sem ræddi um fjarvinnu á tímum farsóttar. Rögnvaldur byrjaði á að fara yfir tölur dagsins en 20 smit greindust innanlands í gær og níu smit á landamærunum. Skipuleggi verslun vel Þórunn…Lesa meira

true

Búfjáreigendum skylt að skila skýrslu um bústofn og fóður

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið minnir á að opnað hefur verið fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2020 í Bústofni. Í samræmi við lög um búfjárhald er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofni, eigi síðar en 20. nóvember. Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í…Lesa meira

true

Verkalýðsfélag Akraness flytur í vikunni

Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á nýtt skrifstofuhúsnæði Verkalýðsfélags Akraness við Þjóðbraut 1 á Akranesi. Að sögn Vilhjálms Birgissonar formanns félagsins mun starfsemin verða flutt alfarið í nýtt húsnæði í lok þessarar viku. Skrifstofan mun svo verða opnuð á nýjum stað mánudaginn 9. nóvember. Vilhjálmur tók sérstaklega fram að skrifstofan verður lokuð…Lesa meira