Fréttir

true

Verkefnastaðan sjaldan verið betri hjá Eiríki J Ingólfssyni ehf.

Það er í mörg horn að líta hjá byggingafyrirtækinu Eiríki J Ingólfssyni ehf. í Borgarnesi. Verkefni fyrirtækisins eru víða um héraðið en einnig á Suðurlandi þar sem til stendur að byggja hátækni sumarbústað fyrir hreyfihamlaða, þar sem notendur hússins geta farið um það og stýrt ýmsum búnaði með appi í símunum sínum. Undanfarin ár hefur…Lesa meira

true

Undirbúningur fyrir Útvarp Akraness í fullum gangi

Eins og lóan að vori og réttir að hausti boða útsendingar Útvarps Akraness komu aðventunnar í huga margra Skagamanna og marka upphaf jólaundirbúningsins. Þessa dagana er undirbúningur fyrir útvarpsútsendingarnar í fullum gangi, en sent verður út fyrstu helgina í aðventu eins og öll undanfarin ár. „Allt frá árinu 1988 hefur Sundfélag Akraness staðið fyrir útvarpsdagskrá…Lesa meira

true

Sláturtíðin gengið vel

„Er þér sama þó ég vakúmpakki kjöti á meðan við tölum saman,“ spyr Anna Dröfn Sigurjónsdóttir, gæðastýra Sláturhúss Vesturlands, eftir að síminn hringir hjá henni um kaffileytið á mánudaginn. Sá er þetta ritar er hinum megin á línunni og svarar vitaskuld játandi. Hann spyr fregna frá haustslátruninni í litla sláturhúsinu í Brákarey í Borgarnesi, sem…Lesa meira

true

Straumlaust í Stafholtstungum um tíma á morgun

Rafmagnslaust verður í Stafholtstungum í Borgarfirði og að Kljáfossi í Hvítá á morgun, fimmtudaginn 22. október frá klukkan 13:00 til kl 17:00. Straumrof er vegna nýtenginga, en unnið er við þrífösun rafmagns á svæðinu. „Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar,“ segir í tilkynningu frá Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt…Lesa meira

true

„Ekkert mál að halda fólki uppteknu heilan dag og „aksjón“ allan tímann“

Á stóru bryggjunni á Akranesi stendur björgunarskipið Skipaskagi sem verið er að breyta í hvalaskoðunar- og sjóstangveiðiskip. Nýlega festi Frímann Jónsson kaup á skipinu og vinnur nú að breytingum á því. Skipaskagi, sem áður hefur gengið undir nöfnunum Oddur V. Gíslason, Hannes Þ. Hafstein, Jón Oddgeir og Valur, er afar traustbyggt skip, í góðu ástandi…Lesa meira

true

Bílvelta á Vesturlandsvegi

Bílvelta varð á Vesturlandsvegi laust fyrir kl. 1:30 aðfararnótt fimmtudags. Ökumaður á norðurleið missti stjórn á bifreið sinni í lausamöl með þeim afleiðingum að bifreiðin rann út af veginum vinstra megin og valt. Lögreglumenn í Borgarnesi fóru á vettvang. Ökumaðurinn kenndi sér eymsla víða um líkamann og var fluttur til læknis með sjúkrabíl. Bifreiðin er…Lesa meira

true

Þrjú ný smit á Vesturlandi

Í dag, miðvikudaginn 21. október, eru 19 manns í einangrun vegna Covid-19 á Vesturlandi, skv. nýjum tölum frá lögregluembætti landshlutans. Eru það þremur fleiri en í gær. Í dag eru 15 í einangrun á Akranesi, einn í Borgarnesi, einn í Grundarfirði og einn í Ólafsvík. 32 eru í sóttkví í landshlutanum, rétt eins og í…Lesa meira

true

Alvarleg líkamsárás í Borgarnesi

Lögreglan á Vesturlandi hefur til rannsóknar alvarlega líkamsárás sem framin var í Borgarnesi á mánudaginn. Voru bæði meintur árásamaður og þolandi fluttir á sjúkrahús, þar sem þeir liggja enn. Mbl.is greinir frá. Maðurinn sem varð fyrir árásinni er á sextugsaldri og hlaut alvarlega áverka. Meintur árásarmaður hlaut alvarlega áverka sömuleiðis. Voru þeir því báðir fluttir…Lesa meira

true

Mælt fyrir nýrri stjórnarskrá í dag

Mælt verður fyrir frumvarpi til nýrrar stjórnarskrár á Alþingi í dag. Flutningsmenn frumvarpsins eru allir þingmenn Pírata og Samfylkingar, auk utanflokkaþingmannanna Andrésar Inga Jónssonar og Rósu Bjarkar Brynjólfsdóttur. Frumvarpið sem nú verður mælt fyrir er grundvallað á tillögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá og því frumvarpi sem Alþingi hafði til meðferðar árin 2012-2013. Frumvarpið Pírata, Samfylkingar…Lesa meira

true

Grunur um salmonellu í kjúklingi

Matvælastofnun varar við neyslu á einni framleiðslulotu af kjúklingi frá Matfugli merktum Ali, Bónus eða FK vegna gruns um salmonellusmit. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna af markaði. Innköllunin á einungis við eftirfarandi framleiðslulotu: Vöruheiti: Ali, Bónus, FK Framleiðandi: Matfugl ehf, Völuteigi 2, 270 Mosfellsbæ Lotunúmer: 011-20-37-5-26, merkt sem RLNR:0112037526 (heill kjúklingur, bringur, lundir, bitar) Dreifing: Bónusverslanir,…Lesa meira