Fréttir

true

Loka afgreiðslunni vegna smits

Starfsmaður sem vann hluta úr mánudegi á veitingastaðnum Gamla Kaupfélaginu á Akranesi hefur greinst með Covid-19. Aðstandendum veitingastaðarins var greint frá þessu á þriðjudagskvöld og rituðu þeir tilkynningu á Facebook-síðu staðarins þar sem þeir upplýsa um málið. Vegna smitsins er meirihluti starfsmanna Gamla Kaupfélagsins kominn í sóttkví, en verið er að gera ráðstafanir til reyna…Lesa meira

true

Starfsleyfi komið og vinnsla hafin í Grímsstaðakjeti

Nýtt kjötvinnslufyrirtæki, Grímsstaðakjet ehf., fékk starfsleyfi sitt afhent í síðasta mánuði og er starfsemi hafin í húsinu. Það eru bændurnir Hörður Guðmundsson og Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir á Grímsstöðum í Reykholtsdal sem hafa undanfarin tvö ár undirbúið stofnun fyrirtækisins og reka það. Þau eru sauðfjárbændur á Grímsstöðum og hafa átt þann draum að geta aukið verðmæti…Lesa meira

true

Brátt verður byrjað að byggja við nýju götuna Sóleyjarklett í Borgarnesi

Hönnun er nú lokið á fyrsta áfanga í nýrri íbúðabyggð sem reisa á í Borgarnesi við nýju götuna Sóleyjarklett. „Þetta er verkefni sem alfarið er á forræði þriggja fyrirtækja, þ.e. okkar hjá EJI ehf, Steypustöðvarinnar og Borgarverks,” segir Eiríkur J Ingólfsson byggingameistari í samtali við Skessuhorn. “Í fyrsta áfanga er gert ráð fyrir að byggja…Lesa meira

true

Andvana fædd börn eftir 22. viku fái kennitölu

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur mælt á Alþingi fyrir breytingu á lögum um skráningu einstaklinga. Í frumvarpinu er veitt heimild til að gefa út kennitölur til andvana fædda barna sem fæðast eftir 22. viku meðgöngu. Með breytingunni öðlast foreldrar þessara barna tiltekin mikilvæg réttindi, svo sem til fæðingarorlofs. Þar af leiðandi er nauðsynlegt…Lesa meira

true

Keppni verður haldið áfram í deildakeppni meistaraflokka KSÍ

Stjórn KSÍ fundaði í gær og í dag, þriðjudaginn 20. október, um stöðu Íslandsmóta í knattspyrnu og bikarkeppni karla og kvenna vegna takmarkana og banns við æfingum og keppni samkvæmt bráðabirgðaákvæði reglugerðar heilbrigðisráðuneytis. Á fundinum var ákveðið að mótum meistaraflokka verði haldið áfram í öllum deildum að því tilskyldu að takmarkanir á æfingum og keppni…Lesa meira

true

Flosi ráðinn sviðsstjóri hjá Borgarbyggð

Flosi H. Sigurðsson hefur verið ráðinn sviðsstjóri stjórnsýslu- og þjónustusviðs Borgarbyggðar. Sveitarstjórn samþykkti ráðninguna á fundi sínum í dag. Flosi lauk BA gráðu í lögfræði árið 2008 og MA gráðu í lögfræði 2010. Sama ár öðlaðist hann réttindi til að flytja mál fyrir héraðsdómi og árið 2018 hlaut hann réttindi til að flytja mál fyrir…Lesa meira

true

Tvöfalt fleiri í sóttkví á Vesturlandi en í gær

Fjöldi þeirra sem sæta sóttkví á Vesturlandi tvöfaldaðist milli daga. Á mánudag voru 16 í sóttkví í landshlutanum en er nú orðnir 32. Allir 16 sem bættust við sæta sóttkví í Borgarnesi. Þar eru nú 17 manns í sóttkví, en enginn í einangrun. Á Akranesi eru 14 í sóttkví  og einn í Ólafsvík. Alls eru…Lesa meira

true

Stór jarðskjálfti fannst víða

Jarðskjálfti að stærðinni 5,7 á Richterkvarða varð um fjóra kílómetra vestur af Krýsuvík á Reykjanesi kl. 13:43 núna rétt áðan. Skjálftinn fannst víða á höfuðborgarsvæðinu. Vel fannst fyrir skjálftanum á Akranesi, þar sem meðal annars hristust bílar á bílastæðinu fyrir utan skrifstofu Skessuhorns. Þá hefur blaðið einnig heimildir fyrir því að fundist hafi fyrir skjálftanum…Lesa meira

true

62 innanlandssmit í gær

Alls greindust 62 með kórónuveiruna innanlands í gær. Af þeim voru 29 í sóttkví við greiningu, sem er nokkuð lægra hlutfall en verið hefur síðustu daga. Alls eru nú 25 á sjúkrahúsi hérlendis vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Átta smit greindust á landamærunum og er niðurstöðu mótefnamælingar beðið í þremur tilvikum. Alls greindust…Lesa meira

true

Veltu fyrir sér hvað elda mætti úti

Nemendur í 2. bekk AT í Grunnskóla Snæfellsbæjar kunnu vel að meta heita kakóið sitt sem hitað var yfir eldi í útikennslustofu skólans á Hellissandi. Kakóið fengu þau þegar þau höfðu lokið við að leysa verkefni í útikennslu í myndmennt og heimilisfræði. Var ferðin samvinnuverkefni milli myndmennta- og heimilisfræðikennaranna þeirra Ingu Harðardóttur og Sóleyjar Jónsdóttur.…Lesa meira