
Undir kvöld á sunnudag kom upp eldur í íbúðarhúsinu á bænum Augastöðum í Hálsasveit í Borgarfirði. Húsið varð fljótt alelda. Húsmóðirin, Jóhanna Guðrún Björnsdóttir, var ein í húsinu þegar eldurinn kom upp og lést hún í brunanum. Jóhanna var sjötug að aldri, fædd 5. desember 1949. Hún lætur eftir sig eiginmann, Snorra Jóhannesson, fjögur uppkomin…Lesa meira








