
Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Magneu Guðlaugsdóttur sem þjálfara meistaraflokks og 2. flokks kvenna í knattspyrnu. Magnea hefur mikla reynslu af þjálfun og hefur þjálfað í öllum aldursflokkum kvenna hjá ÍA og einnig í yngri flokkum karla. Magnea er margreynd knattspyrnukona og lék alls 119 leiki með ÍA í meistaraflokki og skoraði í þeim átta mörk.…Lesa meira








