Fréttir

true

Akstursgjald og dagpeningar ríkisstarfsmanna taka breytingum

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu vegna gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Lækkar gistigjaldið frá því í maí síðastliðnum en fæðiskostnaður hækkar lítillega. Eftir breytingar eru greiddar 30.700 kr. fyrir gistingu og fæði í einn sólarhring, 17.700 kr. fyrir gistingu, 13.000 kr. fyrir fæði í heilan dag, að lágmarki tíu…Lesa meira

true

Afar slæmu veðri spáð um vestan- og norðvestanvert landið í dag

Um norðvestanvert landið, á Vestfjörðum og við Breiðafjörð er í dag spáð að djúp lægð gangi yfir með stórhríð og hvassviðri. Appelsínugul viðvörun er í gildi. Við Faxaflóa er gul viðvörun. Vindáttin verður norðvestanstæð með þessari djúpu haustlægð og éljagangur með skafrenningi og lélegu skyggni fylgir henni. Hætta er talin á foktjóni og ekkert ferðaveður…Lesa meira

true

Lífskjarasamningurinn heldur gildi sínu út samningstímann

Lífskjarasamningur Samtaka atvinnulífsins og aðildarfélaga Alþýðusambands Íslands hvílir á forsendum sem ekki stóðust fullkomlega þar sem stjórnvöld efndu ekki öll fyrirheit í yfirlýsingu sinni dags. 4. apríl 2019. Samninganefnd Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjórn Samtaka atvinnulífsins hittust á fundi í gær um framhald Lífskjarasamningsins, en bregðist forsendur getur hvor aðili sagt honum upp fyrir kl. 16.…Lesa meira

true

Sérhæfð þjónusta efld á Fellsenda

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem dvelja í geðhjúkrunarrýmum á Ási, dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði og Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dölum. Þetta er gert í samræmi við mat embættis landlæknis sem telur að styrkja þurfi faglega geðheilbrigðisþjónustu á heimilunum þar sem búa einstaklingar með flókna þjónustuþörf á þessu sviði. Í Ási munu…Lesa meira

true

Haldið til fjalla þrátt fyrir afleita veðurspá

Bændur í Borgarfirði og víðar um landið eru nú í seinni leitum þrátt fyrir að veðurspá sé afar óhagstæð fyrir næsta sólarhringinn. Meðfylgjandi mynd var tekin fyrr í dag, þar sem bændur aka með hross sín í kerrum áleiðis upp á Arnarvatnsheiði. „Hér er vetur,“ skrifaði myndhöfundurinn Hildur Edda Þórarinsdóttir í Giljahlíð. „Hleður snjó í…Lesa meira

true

ÍA tapaði úrslitaleiknum í bikarnum í 2. flokki kvenna

Það var nánast fullt hús í Akraneshöllinni á föstudagskvöldið þegar ÍA og Breiðablik/Augnablik léku til úrslita í bikarkeppni 2. flokks kvenna. Skagastúlkur komust yfir á 17. mínútu þegar brotið var á fyrirliðanum Lilju Björgu Ólafsdóttur sem steig síðan sjálf á vítapunktinn og skoraði af öryggi í vinstra hornið. Forskotið hélt þó ekki mjög lengi því…Lesa meira

true

Aukið við aðvaranir um veður á morgun

Í kvöld er gul viðvörun vegna hvassviðris og ofankomu um vestan- og norðvestanvert landið. Á morgun er appelsínugul viðvörun fyrir Breiðafjörð og Vestfirði. Á morgun er spáð norðvestan 18-25 m/s og éljagangi með skafrenningi og lélegu skyggni við Breiðafjörð. Hætta er á foktjóni og ekkert ferðaveður.Lesa meira

true

Kosningarnar í Norðvesturkjördæmi verða kærðar

Magnús Davíð Norðdahl oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. „Kæran verður lögð fram formlega á næstu dögum. Eftir atvikum verður kæra einnig send til lögreglu,“ segir Magnús. Hann segir að…Lesa meira

true

Samið um starfslok forstöðumanns Safnahúss

„Gert hefur verið samkomulag um starfslok við Guðrúnu Jónsdóttur forstöðumann Safnahúss Borgarfjarðar,“ segir Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar í tilkynningu. Hún og Guðrún rituðu undir samkomulagið síðdegis á föstudaginn en það verður lagt fyrir næsta sveitarstjórnarfund til staðfestingar. „Guðrún hefur þegar látið af störfum en hún hefur starfað fyrir sveitarfélagið síðan árið 2006. Guðrúnu…Lesa meira

true

Oddviti Pírata segir einu lausnina að endurtaka kosningarnar

Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur lýst yfir óánægju með hvernig staðið var að talningu atkvæða í kjördæminu. Á Facebook síðu sinni í gærkvöldi skrifaði hann færslu þar sem hann spyr hvernig kjósendur eigi að treysta lýðræðislegu ferli eftir að kjörgögn voru ekki innsigluð eftir talninguna í gærmorgun. Bendir hann á að óinnsigluð…Lesa meira