Hjúkrunarheimilið á Fellsenda í Dölum.

Sérhæfð þjónusta efld á Fellsenda

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að styrkja geðheilbrigðisþjónustu fyrir einstaklinga sem dvelja í geðhjúkrunarrýmum á Ási, dvalar- og hjúkrunarheimili í Hveragerði og Hjúkrunarheimilinu Fellsenda í Dölum. Þetta er gert í samræmi við mat embættis landlæknis sem telur að styrkja þurfi faglega geðheilbrigðisþjónustu á heimilunum þar sem búa einstaklingar með flókna þjónustuþörf á þessu sviði. Í Ási munu geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og Ás starfa saman í þessum tilgangi en Fellsendi verður í samstarfi við Fræðslumiðstöð Vesturlands og fagaðila í geðheilbrigðisþjónustu eftir þörfum. Þetta fyrirkomulag er sett af stað sem tilraunaverkefni til eins árs og verður varið til þess 15 milljónum króna.\r\n\r\nVerkefnið sem hefur það markmið að styrkja geðheilbrigðisþjónustu í nærumhverfi íbúa hjúkrunarheimilanna tveggja byggist annars vegar á því að auka aðgengi notendanna að sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu og hins vegar að efla þekkingu og færni starfsfólks heimilanna til að veita þeim sértækan stuðning og umönnun. Í Ási í Hveragerði eru 39 geðhjúkrunarrými og 27 á Fellsenda.",
  "innerBlocks": []
}
Sérhæfð þjónusta efld á Fellsenda - Skessuhorn