Afar slæmu veðri spáð um vestan- og norðvestanvert landið í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um norðvestanvert landið, á Vestfjörðum og við Breiðafjörð er í dag spáð að djúp lægð gangi yfir með stórhríð og hvassviðri. Appelsínugul viðvörun er í gildi. Við Faxaflóa er gul viðvörun. Vindáttin verður norðvestanstæð með þessari djúpu haustlægð og éljagangur með skafrenningi og lélegu skyggni fylgir henni. Hætta er talin á foktjóni og ekkert ferðaveður meðan lægðin gengur yfir. Einnig má búast má við hækkandi sjávarstöðu vegna áhlaðanda. Vegna spárinnar er fólk hvatt til að tryggja eigur sínar eins og framast er unnt. Grundarfjarðarhöfn varar t.d. eigendur og umráðamenn skipa og báta í Grundarfjarðarhöfn við og biður þá að huga að festum skipa sinna.",
"innerBlocks": []
}
Afar slæmu veðri spáð um vestan- og norðvestanvert landið í dag - Skessuhorn