Fréttir

true

Kosningarnar í Norðvesturkjördæmi verða kærðar

Magnús Davíð Norðdahl oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að kæra kosningarnar í Norðvesturkjördæmi til kjörbréfanefndar Alþingis og fara fram á svokallaða uppkosningu sem felur í sér að kosið yrði að nýju í Norðvesturkjördæmi. „Kæran verður lögð fram formlega á næstu dögum. Eftir atvikum verður kæra einnig send til lögreglu,“ segir Magnús. Hann segir að…Lesa meira

true

Samið um starfslok forstöðumanns Safnahúss

„Gert hefur verið samkomulag um starfslok við Guðrúnu Jónsdóttur forstöðumann Safnahúss Borgarfjarðar,“ segir Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar í tilkynningu. Hún og Guðrún rituðu undir samkomulagið síðdegis á föstudaginn en það verður lagt fyrir næsta sveitarstjórnarfund til staðfestingar. „Guðrún hefur þegar látið af störfum en hún hefur starfað fyrir sveitarfélagið síðan árið 2006. Guðrúnu…Lesa meira

true

Oddviti Pírata segir einu lausnina að endurtaka kosningarnar

Magnús D. Norðdahl, oddviti Pírata í Norðvesturkjördæmi, hefur lýst yfir óánægju með hvernig staðið var að talningu atkvæða í kjördæminu. Á Facebook síðu sinni í gærkvöldi skrifaði hann færslu þar sem hann spyr hvernig kjósendur eigi að treysta lýðræðislegu ferli eftir að kjörgögn voru ekki innsigluð eftir talninguna í gærmorgun. Bendir hann á að óinnsigluð…Lesa meira

true

Gul viðvörun við Breiðafjörð

Gul viðvörun er nú í gildi á Norður- og Norðvesturlandi. Við Breiðafjörð tók viðvörunin gildi í gærkvöldi og verður í gildi til klukkan 16:00 í dag. Það er norðan- og norðaustan 15-23 m/s á svæðinu með snjókomu eða slyddu, jafnvel talsverðri á köflum. Akstursskilyrði eru erfið, sérstaklega á fjallvegum. Þegar veðrið gengur niður á svæðinu…Lesa meira

true

Þyrla flutti slasaða á spítala

Um miðjan dag í gær var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð til vegna bílslyss á Holtavörðuheiði. Bíll með þremur innanborðs valt á heiðinni og hafnaði hann utan vegar og á hvolfi. Allir í bílnum voru fluttir með þyrlunni á sjúkrahús. Ekki liggur fyrir líðan þeirra. Loka þurfti heiðinni í hálfan annan tíma vegna slyssins.Lesa meira

true

Rótarýklúbburinn stefnir á atvinnusýningu í Borgarnesi

Fyrir tveimur árum ákvað Rótarýklúbbur Borgarness að standa fyrir atvinnusýningu í Hjálmakletti í Borgarnesi. Vegna heimsfaraldursins varð hins vegar ekkert af sýningunni á þeim tíma en nú er blásið til sóknar að nýju og verður viðburðurinn 30. október næstkomandi. „Markmið verkefnisins er sem fyrr að gefa rekstraraðilum á starfssvæði klúbbsins tækifæri til að kynna starfsemi…Lesa meira

true

Bergþór kemur inn í stað Guðmundar

Leiðrétting á lítilli skekkju í einu kjördæmi snertir alls tíu manns sem ýmist detta út eða fá þingsæti Endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi lauk nú undir kvöld. Hún hefur leitt í ljós skekkju sem kemur af stað hringekju jöfnunarþingmanna þingflokka í nokkrum kjördæmum. Eftir að búið er að endurtelja gerist það að Guðmundur Gunnarsson, oddviti Viðreisnar…Lesa meira

true

Endurtalningu lokið í Norðvesturkjördæmi

Endurtalningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi var að ljúka rétt í þessu. Þar kom fram lítils háttar skekkja í atkvæðum einstakra framboða. Að sögn Inga Tryggvasonar, formanns yfirkjörstjórnar í Norðvesturkjördæmi, voru atkvæði greidd Viðreisn og Miðflokknum oftalin, níu atkvæði hjá Viðreisn og fimm hjá Miðflokki. Niðurstaðan hefur nú verið send til landsyfirkjörstjórnar sem sér um að úthluta…Lesa meira

true

Endurtalningu á að ljúka fyrir kvöldmat

Stór hluti talningarfólks í Norðvesturkjördæmi er mættur aftur til starfa til að telja öll atkvæði í kjördæminu aftur. Farið er yfir alla seðla til að tryggja að allt hafi verið rétt flokkað í nótt og svo eru öll atkvæðin í kjördæminu talin. En búast má við að þeirri vinni ljúki nú fyrir kvöldmat. Að sögn…Lesa meira

true

Atkvæði í Norðvesturkjördæmi verða endurtalin

Búið er að boða talningarfólk í Norðvesturkjördæmi til endurtalningar allra atkvæða í kjördæminu. Verður talið á Hótel Borgarnesi. Þetta staðfestir Ingi Tryggvason formaður yfirkjörstjórnar í samtali við Skessuhorn. Ástæða þess að ákvörðun er tekin um endurtalningu er lítill munur á atkvæðamagni sem gæti þýtt tilfærslu á jöfnunarþingsætum, og þá jafnvel víðar en í þessu kjördæmi.…Lesa meira