Fréttir

true

Framleiðir tónleikasýningu ABBA

Það fór ekki fram hjá nokkrum manni að fyrir skemmstu gaf hljómsveitin ABBA út tvö ný lög eftir 40 ára þögn frá hljómveitabransanum. Fyrsta plata ABBA, Ring Ring, kom út árið 1973 og væntanleg er ný plata 5. nóvember sem nefnist Voyage en sveitin var stofnuð í Svíþjóð árið 1972. ABBA voru frumkvöðlar í gerð…Lesa meira

true

„Margir heimamenn fengu tækifæri og góða leikreynslu“

Skallagrímur úr Borgarnesi varð í fimmta sæti B-riðils í 4. deild karla í knattspyrnu í sumar með 15 stig í 14 leikjum, vann fjóra leiki, gerði þrjú jafntefli og tapaði sjö leikjum. Sölvi Gylfason var spilandi þjálfari liðsins og blaðamaður Skessuhorns tók hann í stutt spjall varðandi sumarið og næstu skref og spurði hann fyrst…Lesa meira

true

Frambjóðendur Miðflokksins í beitningarkeppni

Frambjóðendur stjórnmálaflokkanna eru nú á þeysireið um kjördæmin að kynna sín stefnumál og jafnframt að kynnast íbúum og því sem íbúarnir eru að fást við. Er enda hver að verða síðastur því ört styttist til alþingiskosninga sem haldnar verða 25. september. Þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Bergþór Ólason og Sigurður Páll Jónsson, frambjóðendur Miðflokksins, voru á…Lesa meira

true

Annar flokkur kvenna ÍA í úrslit í bikarnum

ÍA tryggði sér sæti í úrslitum í bikarkeppni 2. flokks kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi þegar liðið sigraði sameiginlegt lið Selfoss/Hamars/Ægis/KFR í undanúrslitum bikarsins á JÁVERK vellinum á Selfossi. Lilja Björg Ólafsdóttir, María Björk Ómarsdóttir og Ylfa Laxdal Unnarsdóttir skoruðu mörk ÍA í leiknum í öruggum sigri en áður hafði ÍA unnið lið FH í…Lesa meira

true

Málverk af Guðbjarti afhjúpað á Alþingi

Málverk af Guðbjarti Hannessyni, fyrrverandi forseta Alþingis og skólastjóra Grundaskóla á Akranesi, var afhjúpað í Skála Alþingishússins í gær. Viðstaddir voru forseti Alþingis, fjölskylda Guðbjarts, vinir og samstarfsfólk hans úr Samfylkingunni auk fleiri. Það var Stephen Lárus Stephen listmálari sem málaði myndina og verður henni komið fyrir í efrideildarsal Alþingis. Hefð er fyrir því að…Lesa meira

true

ÞÞÞ keyrir fatnað endurgjaldslaust til Konukots

Bifreiðastöð ÞÞÞ á Akranesi hefur tekið að sér að flytja föt sem safnað er á Akranesi fyrir Konukot, endurgjaldslaust til Reykjavíkur, en Konukot hefur sent ákall til almennings um að láta af hendi rakna hlýjan fatnað og skó fyrir skjólstæðinga Konukots. Halldóra R. Guðmundsdóttir segir í viðtali við Fréttablaðið að vel hafi verið tekið í…Lesa meira

true

Fjórir árgangar í bólusetningu

Það var nóg að gera hjá starfsmönnum Heilbrigðisstofnunar Vesturlands þegar blaðamaður Skessuhorns rak inn nefið í íþróttasalinn á Jaðarsbökkum á Akranesi í morgun. Börn fædd árið 2006, 2007, 2008 og 2009 voru í seinni bólusetningu af Pfizer en börn sem fædd eru 2009 verða að hafa náð 12 ára aldri þegar þau fara í sprautuna.…Lesa meira

true

Seinkun á prentun og dreifingu Skessuhorns – rafræn útgáfa hér!

Í gærkvöldi varð flókin rafbilun í prentvél sem prentar Skessuhorn og ýmis önnur blöð. Ekki tókst að greina bilunina fyrr en í nótt og verður Skessuhorn því ekki prentað fyrr en upp úr klukkan 14 í dag. Af þeim sökum verður lítilsháttar töf á dreifingu blaðsins til áskrifenda. Blaðburðarbörn á Akranesi og Borgarnesi fá blaðið…Lesa meira

true

Hrefnu rak á land í morgun í Steinsvör á Akranesi

Dauða hrefnu rak á land í Heimaskagavör (Steinsvör) á Akranesi í morgun. Uppgötvuðu starfsmenn Olís hvalrekann þegar þeir mættu til vinnu. Dýrið er innan umráðasvæðis Akraneshafnar og segir Valentínus Ólason hafnsögumaður hjá Faxaflóahöfnum að hér sé á ferðinni fullvaxið dýr, 8-10 metra langt. Umhverfisstofnun hefur verið gert viðvart en ekki má hreyfa við dýrinu fyrr…Lesa meira

true

Það er bjartsýni í okkar huga

Ingimundur Ingimundarson er formaður íþróttanefndar eldri borgara í FEBBN og forsprakki og driffjöður í íþróttastarfi eldri borgara í Borgarnesi. Hann var á miklum þeysingi á púttmótinu í Borgarnesi á fimmtudaginn í síðustu viku. Enda nóg að gera að halda utan um öll skor mótsins og sjá um allt í kringum það ásamt dyggum aðstoðarmanni sínum,…Lesa meira