Hljómsveitin ABBA starfaði á árunum 1972-1982.

Framleiðir tónleikasýningu ABBA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það fór ekki fram hjá nokkrum manni að fyrir skemmstu gaf hljómsveitin ABBA út tvö ný lög eftir 40 ára þögn frá hljómveitabransanum. Fyrsta plata ABBA, Ring Ring, kom út árið 1973 og væntanleg er ný plata 5. nóvember sem nefnist Voyage en sveitin var stofnuð í Svíþjóð árið 1972. ABBA voru frumkvöðlar í gerð tónlistarmyndbanda en hinn þekkti sænski leikstjóri Lasse Hallström (Mitt liv som hund, Chocolat og The Cider House Rules) leikstýrði flestum myndböndum ABBA frá árunum 1974-82 og einnig myndinni frá 1977, ABBA: The Movie. Á næsta ári eru fimmtíu ár frá stofnun sveitarinnar og í tilefni af því verður ABBA með tónleikaröð í nýrri tónleikahöll í Lundúnum sem er sérstaklega hönnuð og byggð utan um sýndarveruleikatónleika með ABBA. Tónleikarnir verða í maí á næsta ári. Þar mun tölvu ABBA, eins og þau litu út árið 1979, birtast á sviðinu og flytja sína helstu smelli með lifandi stórri hljómsveit sem verður með tölvu ABBA á sviðinu.\r\n\r\nSkagakonan Svana Gísladóttir rekur kvikmyndafyrirtæki í Lundúnum og hefur búið í Lundúnum í 24 ár og búin að afreka eitt og annað. Hún vann árum saman við að framleiða tónlistarmyndbönd með fólki eins og Radiohead, Björk, Oasis, Coldplay, Oasis og fleirum en hún ákvað þegar hún var búin að vinna í leyni með David Bowie að síðustu myndböndunum hans að hún ætlaði ekki að gera fleiri tónlistartengd verkefni. Svana fékk svo símtal frá ABBA og sló til og hefur verið nánasti samstarfsmaður þeirra síðustu fjögur ár í þessu verkefni sem hefur verið unnið með mikilli leynd undanfarin ár. Það er brjálað að gera hjá Svönu þessa dagana í þessu öllu saman og baðst hún því undan viðtali og fengum við góðfúslegt leyfi hjá Rás 2 að nota glefsur úr viðtali sem þau Hulda G. Geirsdóttir og Rúnar Róbertsson tóku við hana í síðustu viku í morgunútvarpi Rásar 2.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Framleiðir tónleikasýningu ABBA - Skessuhorn