Fréttir

true

Þjóðbraut lokuð

Veitur tilkynntu í morgun að Þjóðbraut á Akranesi verði lokuð að hluta frá og með deginum í dag, 13. september til laugardagsins 18. september. Viðeigandi merkingar sem kynna hjáleiðir gangandi og akandi vegfarenda hafa verið settar upp á svæðinu og gera má ráð fyrir aukinni umferð vinnuvéla og öðru raski á meðan framkvæmdunum stendur.Lesa meira

true

Kantsteypa Norðurlands að störfum í Grundarfirði

Starfsmenn Kantsteypu Norðurlands hafa verið að störfum í Grundarfirði síðustu daga. Þá er verið að steypa kant sitthvorum megin við Grundargötuna þar sem gangstéttar verða breikkaðar verulega. Það var skemmtilegt að fylgjast með þessum snillingum að störfum enda ótrúlega snöggir að steypa þessar nýju gangstéttarbrúnir.Lesa meira

true

Nýr matarvagn í Borgarnesi

Um miðjan ágúst í sumar opnuðu feðgarnir Móses Kjartan Jósefsson og Philip Stefán Mósesson matarvagn í Borgarnesi. Ber hann nafnið Punto Caffé. Vagninn er staðsettur við holtið milli Hjálmakletts og Hyrnutorgs. Í vagninum er boðið upp á fimm tegundir af samlokum og úrval af gæðakaffi frá Kaffitári, eins og cappuccino, espresso, americano, caffe latte og…Lesa meira

true

Opna fræðslumiðstöð fiskeldis í Reykjavík

Lax-Inn er ný fræðslumiðstöð fiskeldis sem opnuð var síðastliðinn föstudag á Grandagarði í Reykjavík. Þar er nú hægt að kynna sér starfsemi fiskeldis með beintengingu myndavéla bæði í land- og sjóeldi á landsbyggðinni ásamt ýmsu öðru fræðsluefni um þessa atvinnugrein. Í tilkynningu frá Lax-Inn kemur fram að lögð er áhersla á fræðslu um hvernig fiskeldi…Lesa meira

true

Kvenfélag Borgarness styrkir skólasafn grunnskólans

Fyrir skömmu færði Kvenfélag Borgarness skólasafni Grunnskóla Borgarness 75 þúsund krónur að gjöf til þess kaupa á bókum á pólsku. Á myndinni má sjá hluta þeirra bóka sem keyptar voru. Útsöluverð bókanna er meira en helmingi lægra en sömu bóka í íslenskri þýðingu. „Bókakostur skólasafnsins á pólsku hefur því aukist til muna en á annan…Lesa meira

true

Gul viðvörun tekur gildi síðdegis og er til hádegis á morgun

Gul viðvörun er vegna suðaustan hvassviðris samhliða úrkomu um allt vestan- og sunnanvert landið sem og miðhálendið. Veðrið er nú þegar tekið að versna en bætir í vind eftir því sem líður á daginn. Gul viðvörun er í gildi um vestanvert landið frá því síðdegis og til hádegis á morgun, mánudag. Við Faxaflóa verður suðaustan…Lesa meira

true

Myndasyrpa úr Fljótstungurétt

Undir kvöld í gær var safnið af Arnarvatnsheiði rekið til Fljótstunguréttar. Þar rétta bændur úr Hálsasveit og Reykholtsdal fé sínu í elstu steinhlöðnu rétt landsins sem enn er í notkun. Veður var prýðilegt, féð fallegt og allir því í góðu skapi. Strax og reksturinn var kominn í aðhald hófst sundurdráttur í dilka og var dregið…Lesa meira

true

Mikilvægur sigur Skagamanna gegn Leikni

Skagamenn unnu gríðarlega mikilvægan sigur gegn Leikni, 3:1 í Pepsi Max deildinni á Akranesvelli í gær. Heimamenn urðu hreinlega að sigra í leiknum til þess að halda vonum sínum á lífi um að forðast fall úr Pepsi Max deildinni. Heimamenn byrjuðu leikinn mjög vel og gáfu tóninn strax á fimmtu mínútu en þá átti Gísli…Lesa meira

true

Kvennahlaupið í stilltu haustveðri

Í dag er Kvennahlaup Sjóvá haldið víðsvegar um landið og meðal annars á sex stöðum hér á Vesturlandi. Klukkan 11 í morgun var hlaupið ræst frá Akratorgi á Akranesi og hlupu um tuttugu konur ýmist 2, 3 eða 5 kílómetra. Að þessu sinni er hlaupið lágstemmdara en oft áður þar sem covidveiran leikur enn lausum…Lesa meira

true

Andlát – Jón Sigurðsson á Bifröst

Jón Sigurðsson, skólamaður, fyrrverandi ráðherra, Seðlabankastjóri og formaður Framsóknarflokksins, er látinn 75 ára að aldri. Banamein hans var krabbamein. Jón var fæddur í Kollafirði á Kjalarnesi 23. ágúst 1946. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 1966 og þremur árum síðar brautskráðist hann með BA-próf í íslensku og sagnfræði frá Háskóla Íslands. Frá útskrift…Lesa meira