Fréttir

true

Nýtt tilfelli riðu staðfest í Skagafirði

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Um 1500 fjár eru á bænum, fullorðið fé og lömb. Syðra-Skörðugil er í Húna- og Skagahólfi en í því hólfi greindist síðast riða á einum bæ árið 2020. Riðuveiki hefur komið upp á Syðra-Skörðugili einu sinni áður, fyrir 30 árum eða árið 1991. Á síðasta ári…Lesa meira

true

Tafir gætu orðið á umferð við Fornahvamm síðdegis í dag

Síðdegis í dag og fram undir myrkur mega ökumenn um Holtavörðuheiði gera ráð fyrir töfum á umferð meðan fé verður rekið yfir þjóðveginn á móts við Fornahvamm. Í tilkynningu frá björgunarsveitinni Heiðari í Borgarfirði eru ökumenn hvattir til að sýna tillitsemi svo allt gangi sem best fyrir sig.Lesa meira

true

Hvassviðri og rigning frá því síðdegis á sunnudaginn

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris og úrkomu síðdegis á sunnudaginn og fram undir hádegi á mánudag. Það verður talsverð eða mikil rigning um vestan- og sunnanvert landið á þessum tíma. Búast má við vatnavöxtum í ám og lækjum og auknar líkur eru á skriðuföllum og grjóthruni. „Talsverð vosbúð til fjalla og slæmt…Lesa meira

true

ÍA spilar í fyrstu deildinni í körfunni í vetur

ÍA hefur þekkst boð Körfuknattleikssambandsins um að taka það sæti sem Reynir Sandgerði lét frá sér í 1. deild karla á komandi leiktíð. Í tilkynningu frá KKÍ kemur fram að ÍA tekur við öllum leikjum Reynis, hvort sem er heima- eða útileikjum, á þeim dögum sem áður var áætlað að leikir Reynis færu fram. Í…Lesa meira

true

Sjö í einangrun á Vesturlandi

Umtalsverð fækkun hefur orðið á fjölda þeirra sem sæta einangrun með Covid-19 á Vesturlandi og eru í sóttkví. Nú eru sjö með veiruna í landshlutanum; fimm á Akranesi og tveir í Stykkishólmi. Fimm eru í sóttkví; þrír í Búðardal og tveir á Akranesi. Þetta kemur fram í samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi sem var birt nú…Lesa meira

true

Tíu framboð í fjórum kjördæmum en ellefu í tveimur

Á hádegi í dag rann út frestur til að skila inn framboðslistum og tengdum gögnum vegna alþingiskosninganna 25. september næstkomandi. Tíu framboð skiluðu inn listum um land allt, en í tveimur kjördæmum eru framboðin ellefu talsins, þ.e. í Suðurkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmi norður þar sem Ábyrg framtíð býður fram. Hin framboðin tíu eru: Framsóknarflokkurinn (B), Viðreisn…Lesa meira

true

Landsbjörg skorar á stjórnvöld

Á landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar í byrjun mánaðarins tóku rúmlega 300 fulltrúar aðildareininga þátt í líflegum umræðum um starfsemi félagsins og framtíðarsýn. Félagar kusu sér nýjan formann og nýja stjórn ásamt því að álykta um ýmis mál. Þingið skoraði bæði á dómsmálaráðherra og ríkisstjórn Íslands. Áskorun til dómsmálaráðherra snýr að lagaumgjörð um peningaspil sem er í…Lesa meira

true

ÍA féll í 2. deild eftir jafntefli við Hauka

ÍA lék gegn Haukum í síðustu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi en fyrir leik átti ÍA möguleika á að bjarga sér frá falli. Með sigri gegn Haukum og að annað hvort Grótta eða HK myndu misstíga sig hefði ÍA haldið sæti sínu í deildinni. Bæði Grótta og HK töpuðu sínum leikjum á heimavelli…Lesa meira

true

Vill að kynhneigð útiloki ekki lengur blóðgjöf

Heilbrigðisráðherra hefur sett drög að breytingu á reglugerð um söfnun, meðferð, varðveislu og dreifingu blóðs og viðauka IV við sömu reglugerð til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda. Breytingin felur í sér að því er bætt inn í reglugerðina að það sé óheimilt að mismuna blóðgjöfum á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða, svo sem kyns, kynhneigðar, uppruna eða stöðu…Lesa meira

true

Kvennahlaupið verður á morgun

Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ verður haldið á morgun, laugardaginn 11. september. Fyrsta kvennahlaupið var haldið árið 1990 með það markmið að fá fleiri konur út að hreyfa sig og hvetja þær til þáttöku í íþróttastarfi. Í dag er markmið hlaupsins m.a. að efla samstöðu kvenna og að eiga ánægjulega samverustund með fjölskyldu og vinum. Einkennisorð hlaupsins…Lesa meira