Fréttir

true

Ísak Bergmann og Arnór hafa vistaskipti

Skagamennirnir Ísak Bergmann Jóhannesson og Arnór Sigurðsson höfðu báðir vistaskipti í fótboltanum í sumar. Ísak Bergmann Jóhannesson gekk til liðs við danska stórliðið FC Köbenhavn í síðustu viku frá Norrköping og skrifaði hann undir samning hjá félaginu til ársins 2026. Eftir þriggja ára veru hjá Norrköping hefur hann ákveðið að taka stærra skref. Ísak sem…Lesa meira

true

Fimm flokkar næðu mönnum inn í Norðvesturkjördæmi

Samkvæmt nýrri skoðanakönnun MMR um fylgi flokka sem bjóða fram til Alþingis, og Morgunblaðið birtir í dag, næðu fimm flokkar að koma mönnum á þing í Norðvesturkjördæmi 25. september nk.; Sjálfstæðisflokkur fengi þrjá menn, Framsókarflokkur tvo, Vinstri grænir einn og Samfylking einn. Jöfnunarþingsætið félli í hlut Miðflokksins. Könnunin byggir á svörum 818 einstaklinga á landsvísu.…Lesa meira

true

Á nýjum stað

Velferðar- og mannréttindasvið Akraneskaupstaðar hefur komið sér fyrir í nýju húsnæði á Dalbraut 4 á Akranesi, en um er að ræða alls tólf starfsmenn á sviðinu sem nú flytja starfsaðstöðu sína í nýtt hús. Eftir um viku verða allir starfsmenn Akraneskaupstaðar komnir með vinnuaðstöðu á Dalbrautinni en ákveðið var nýlega að flytja starfsemi bæjarskrifstofunnar í…Lesa meira

true

Straumarnir hafa gefið 127 laxa

„Þetta er fallegt veiðisvæði hérna í Straumunum. Við höfum aðeins orðið varir við fiska, sáum lax stökkva hérna áðan,“ sagði Þór Hauksson sem var við veiðar á svæðinu  um helgina. Nú hafa veiðst 127 laxar í Straumunum í sumar og eru tíu af þeim hnúðlaxar. En silungsveiðin hefur verið góð og hafa veiðst um 340…Lesa meira

true

Tveir þriðju telja spillingu vandamál í stjórnmálum

Í nýrri könnun sem MMR framkvæmdi fyrir Sósíalistaflokk Íslands kemur fram að 30% landsmanna telja spillingu vera mjög mikið vandamál í íslenskum stjórnmálum og 32% að spilling sé frekar mikið vandamál, alls 62% kjósenda. Einungis 3% landsmanna telja spillingu vera mjög lítið eða ekkert vandamál í stjórnmálum, 11% frekar lítið vandamál en 22% tóku ekki…Lesa meira

true

Árétting um sóttvarnarreglur við komu til landsins

Af fjölmiðlaumfjöllun undanfarna daga mætti ráða að farþegar á leið til landsins þurfi ekki að sýna fram á neikvæða niðurstöðu úr Covid-prófi við komuna. Til að fyrirbyggja misskilning vill samgönguráðuneytið árétta að í reglugerð nr. 938/2021 er kveðið á um að ferðamenn á leið til Íslands sem hafa nýlega fengið Covid-19 og geta því framvísað…Lesa meira

true

Borgarbyggð orðin formlegur eigandi Digranesgötu 2

Síðastliðinn fimmtudag fékk Borgarbyggð afhent húsnæðið að Digranesgötu 2 í Borgarnesi sem það keypti fyrr á þessu ári af Arion banka. Starfsemi bankans verður þó áfram í húsinu en það verður sömuleiðis nýtt sem ráðhús sveitarfélagsins. Samkvæmt frétt á vef Borgarbyggðar er nú unnið að hönnun innra skipulags hússins en að því loknu verða breytingar…Lesa meira

true

Fyrstu réttir afstaðnar

Í gær smöluðu bændur í Hvítársíðu Síðufjallið og ráku safnið til Nesmelsréttar. Réttin var jafnframt sú fyrsta á Vesturlandi þetta haustið. Fram undan eru svo göngur og réttir víðs vegar um landshlutann næstu daga og vikur. Blaðamaður Skessuhorns kom við í réttinni og fangaði stemninguna. Réttarhaldið tók fljótt af en féð var einkum af nokkrum…Lesa meira

true

Kári er fallinn í þriðju deild

Knattspyrnufélagið Kári á Akranesi er fallið niður í 3. deild. Það varð endanlega ljóst eftir tapleik gegn toppliði Þróttar úr Vogunum 0:5 í leik sem fram fór í Akraneshöllinni á föstudagskvöldið. Það má segja að allt frá byrjun hafi sést í hvað stefndi. Þróttur var sterkari aðilinn á flestum sviðum leiksins og náði forystunni strax…Lesa meira

true

Hluti yfirbyggingar húsbíls splundraðist

Á áttunda tímanum í gærkvöldi var björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ kölluð út til aðstoðar ferðafólki á Fróðárheiði. Í tilkynningu var sagt að bíll væri við það að velta. Þarna var á ferðinni ferðafólk á húsbíl sem hafði fengið á sig sterka vindhviðu og fokið til á veginum yfir heiðina. Veður var afar hvasst á svæðinu,…Lesa meira