Fréttir

true

Ungar konur í sérstökum áhættuhópi á netinu

Ungar konur á aldrinum 15-17 ára eiga helst á hættu að vera þvingaðar til að senda myndir af sér og aðrar persónulegar upplýsingar, ásamt því að verða fyrir myndbirtingum á netinu gegn vilja þeirra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu fjölmiðlanefndar um haturstal og neikvæða upplifun af netinu. Byggir rannsóknin á niðurstöðum úr víðtækri spurningakönnun…Lesa meira

true

Körfuboltinn lifir í Stykkishólmi

Penninn var á lofti í íþróttahúsi Stykkishólms um helgina þegar hvorki meira né minna en 20 leikmenn í körfuknattleik skrifuðu undir leikmannasamninga fyrir komandi vetur í meistaraflokki karla og kvenna. Jafnframt var gengið frá ráðningu á þjálfurum meistaraflokkanna beggja. Gunnlaugur Smárason var ráðinn til þriggja ára sem þjálfari meistaraflokks karla. Sömuleiðis var Baldur Þorleifsson einnig…Lesa meira

true

Framhaldsskólarnir að byrja

Framhaldsskólarnir á Vesturlandi hefja allir vetrarstarf sitt í þessari viku. Nýnemadagur var í Fjölbrautaskóla Vesturlands í gær og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá í dag, miðvikudag. Í Menntaskóla Borgarfjarðar er móttaka nýnema í dag og skólastarf hefst svo samkvæmt stundatöflu á morgun, fimmtudag. Nýnemar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga mæta á kynningardag á föstudaginn. Loks hefst kennsla í…Lesa meira

true

Nýsköpunar- og þróunarsetur í samstarfi háskólana á Vesturlandi

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor Landbúnaðarháskóla Íslands og Margrét Jónsdóttir Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst undirrituðu á Hvanneyri í gær viljayfirlýsingu um að hjá háskólunum tveimur á Vesturlandi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur þar sem áhersla verður lögð á nýsköpun, rannsóknir, fræðslu og frumkvöðlastarf á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu,…Lesa meira

true

Rannsóknarsetur skapandi greina á Bifröst

Á þriðjudaginn í liðinni viku undirrituðu forsætisráðherra, menntamálaráðherra, samgönguráðherra og nýsköpunarráðherra samning við Háskólann á Bifröst um stofnun Rannsóknaseturs skapandi greina sem verður starfrækt á Bifröst. Rannsóknarsetur skapandi greina hefur það markmið að efla fræðilegar og hagnýtar rannsóknir í skapandi greinum auk þess að efla gæðarannsóknir í þeim geira, skapa tækifæri til alþjóðlegs rannsóknasamstarfs og…Lesa meira

true

Ánafnar Björgunarsveitinni Brák bótapeninga

Sæmundur Ásgeirsson í Gamla bæ á Húsafelli hefur ákveðið að gefa þær bætur sem honum eru ætlaðar frá Borgarbyggð vegna lúkningar máls um Legsteinahús, þ.e. fimm milljónir króna, í húsbyggingarsjóð Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi. Þetta kemur fram í tilkynningu.Lesa meira

true

Jakob Frímann leiðir lista Flokks fólksins í NA

Jakob Frímann Magnússon tónlistar- og athafnamaður er genginn til liðs við Flokk fólksins og mun skipa efsta sætið á lista flokksins í Norðausturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. „Ég hef hrifist af stefnumálum Flokks fólksins þar sem áhersla er lögð á að útrýma fátækt og óréttlæti á Íslandi. Það er sjálfsögð krafa að allir fái lifað mannsæmandi…Lesa meira

true

Mikill búnaður við dýpkun í Ólafsvíkurhöfn

Mikið er um að vera í Ólafsvíkurhöfn þessa dagana en ásamt því að verið er að endurbyggja Norðurtanga er dýpkunarskipið Dísa búið að vera að dýpka í höfninni. Svo bættust þeir við Reynir og Pétur Mikli á sunnudaginn er dráttarbáturinn Grettir Sterki dró Reyni og Pétur Mikla frá Súðavík til Ólafsvíkur. Ferðin tók um 20…Lesa meira

true

Umdeildur vítaspyrnudómur réði úrslitum

Það var mikill hiti undir lokin í leik Skagamanna gegn Breiðablik í Kópavogi í Pepsí deild karla í knattspyrnu í gær. Þegar fjórar mínútur lifðu leiks var staðan 1:1 og allt benti til þess að Skagamenn væru að ná í dýrmætt stig í fallbaráttunni. Þá dæmdi dómari leiksins, Egill Arnar Sigurþórsson, umdeilda vítaspyrnu þegar Árni…Lesa meira

true

Stóri Einkunnadagurinn verður næstkomandi laugardag

Fólkvangurinn Einkunnir er útivistarparadís skammt ofan við Borgarnes sem íbúar Borgarbyggðar, sem og gestir í héraði, nýta sér í vaxandi mæli. Einkunnir fá víðast hvar góða einkunn en lengi má gott bæta. „Fólkvangurinn í Einkunnum hefur ekki úr miklum fjármunum að spila til framkvæmda og viðhalds en hinsvegar hafa margir lýst yfir vilja til að…Lesa meira