Fréttir

true

Rafhleðslustöðvar settar upp við Bauluna

Við Bauluna í Borgarfirði var á laugardaginn unnið að uppsetningu tveggja rafhleðslustöðva frá Orku náttúrunni auk þess sem sett var upp auglýsingaskilti og bílastæði lagfært. Áður hafði verið komið upp húsi fyrir spenna sem tengt er nýjum þriggja fasa rafstreng sem liggur um héraðið. Um er að ræða tvær 150kW hleðslustöðvar og verður hægt að…Lesa meira

true

Bændur fá til sín það sem fæst fyrir hrygginn – milliliðir taka rest

Allflestir sláturleyfishafar hafa nú birt verðskrár sínar fyrir sauðfjárinnlegg haustsins. Meðaltalshækkun á lambakjöti frá síðustu sláturtíð er 6,3% og verður vegið meðalverð 519 kr. fyrir kílóið í haust. Þetta kemur fram á upplýsingasíðu Landssamtaka sauðfjárbænda. Leiðrétting á afurðaverði til bænda mun því ekki nást fram, en bændur höfðu fyrir tveimur árum óskað eftir því að…Lesa meira

true

Fjöldi smitaðra fer lækkandi á Vesturlandi

Samkvæmt upplýsingum sem Lögreglan á Vesturlandi tekur saman er tala smitaðra af Covid-19 í landshlutanum komin niður í 20. Hún var mest í fjórðu bylgjunni 38 í byrjun ágúst. Af þessum tuttugu eru níu í einangrun á Akranesi, átta í Borgarnesi og þrír í Ólafsvík. Fjöldi í sóttkví er á sama tíma 26 á Vesturland;…Lesa meira

true

Naumt tap í síðasta heimaleik Skallagríms á tímabilinu

Meistaraflokkur Skallagríms í fótbolta tapaði naumlega 1-2 í síðasta heimaleik liðsins gegn Hamri frá Hveragerði síðastliðinn föstudag. Hamarsliðið, sem hafði þegar tryggt sér sæti í úrslitakeppni 4. deildar, náði í seinni hálfleik að komast yfir eftir að hafa verið 0-1 undir stóran hluta af leiknum. Það var Davíð Freyr Bjarnason sem kom þeim gulklæddu yfir…Lesa meira

true

Tólf til fimmtán ára geta fengið bóluefni á miðvikudaginn

Á Facebook síðu HVE á Akranesi er það kynnt að miðvikudaginn 18. ágúst er 12-15 ára börnum á Akranesi og Hvalfjarðarsveit boðið að þiggja bólusetningu með Pfizer. Foreldri þarf að fylgja með. Bólusett verður á Jaðarsbökkum á Akranesi. Bent er á að börn sem verða 12 ára eftir 1. september býðst bólusetning seinna í haust.…Lesa meira

true

Skemmdarvargar gjöreyðilögðu fólksbíl

Toyota Yaris fólksbíll, sem lagt var við Borgarfjarðarbraut skammt frá afleggjaranum að Hvanneyri, var eyðilagður aðfararnótt laugardags. Óhætt er að segja að gengið hafi verið í skrokk á bílnum; brotin ljós og rúður, allir boddyhlutir beyglaðir, númeraplötur rifnar af og áfram mætti telja. Engu var þó stolið og er því um hreint og klárt skemmdarverk…Lesa meira

true

Ótrúleg veiði í vatnslítilli Laxá í Dölum

Þær eru ekki vatnsmiklar laxveiðiárnar vestur í Dölum nú og sumar komnar á þolmörk í vatnsleysinu. Lítið hefur rignt lengi á svæðinu. En kraftaverkin geta engu að síður átt sér stað í veiðinni eins og gerðist fyrir fáum dögum í Laxá í Dölum í ljósi þess að þar fer lætur laxinn yfirleitt ekki vaða upp…Lesa meira

true

Malbikað í Stykkishólmi

Þessa dagana er unnið að umfangsmiklum malbikunarframkvæmdum í Stykkishólmi. Framkvæmdir munu standa yfir frá föstudegi til þriðjudags en u.þ.b. 10-15 þúsund fermetrar verða malbikaðir í bæjarfélaginu. Meðal annars verður Aðalgata malbikuð frá Bónus niður að Baldursbryggju, bílaplön við Súgandisey og við listaverkið „Á heimleið“ á höfninni verða malbikuð og Sæmundarreitur verður malbikaður. „Íbúar og gestir…Lesa meira

true

Fyrsti sigur Víkings í sumar leit dagsins ljós á Akureyri

Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð til Akureyrar á laugardaginn. Liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Þór að velli 2:0 og landaði þar með sínum fyrsta sigri í sumar. Sigur Víkings var sanngjarn. Liðið mætti ákveðið til leiks og var betri aðilinn í fyrri hálfleik og skapaði sér fín færi. Náði Víkingur forystunni sanngjarnt þegar…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana bát utan við Rif

Síðdegis í gær var björgunarbáturinn Björg í Snæfellsbæ kallaður út til þess að sækja vélarvana bát skammt utan við Rif. Sex manna áhöfn fór á Björginni og tók hún bátinn í tog. Verkefnið tók um 50 mínútur en veður á svæðinu var fremur leiðinlegt, að sögn björgunarsveitarmanna. Þess má geta að þetta var þriðja útkallið…Lesa meira