Fréttir

true

Skagamenn slógu FH út úr Mjólkurbikarnum

Skagamenn tóku í gærkvöldi á móti liði FH í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Akranesvelli í blíðskaparveðri: Smá gola, 14 stiga hiti og völlurinn í toppstandi. Skagamenn voru ekki að tvínóna við hlutina og komust yfir strax á sjöttu mínútu þegar Sindri Snær Magnússon vann boltann á miðjunni og sendi boltann á Ísak Snæ Þorvaldsson sem…Lesa meira

true

Mokveiði á strandveiðum og heimildir klárast því í næstu viku

Ekkert lát er á góðum aflabrögðum á strandveiðum, metafli dag eftir dag. Á fyrstu fimm dögum ágústsmánaðar er meðaltal dagsafla í þorski 278 tonn sem er 46% meiri veiði en var í júlí. Ef fram heldur sem horfir verða útgefnar veiðiheimildir til strandveiða uppurnar um miðja næstu viku. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.…Lesa meira

true

Sitja á fundi og leita sátta

Sveitarfélagið Borgarbyggð boðaði í gærkvöldi alla aðila í Húsafellsmálinu til fundar sem átti að hefjast klukkan 8 í morgun. Fundurinn var boðaður í því skyni að gera lokatilraun til að koma á sáttum í deilunni um Legsteinahús, sem að óbreyttu stendur til að rífa síðar í dag. Að sögn Lilju Bjargar Ágústsdóttur forseta sveitarstjórnar höfðu…Lesa meira

true

Upphaf ljósmyndunar á Akranesi

Fróðlegt getur verið að rifja upp fyrstu ljósmyndarana sem hér á landi störfuðu. Eftir marga þeirra liggja ljósmyndir sem varðveita ómetanlegar heimildir um löngu liðna tíma atvinnu- og mannlífs til sjávar og sveita. Þeir fönguðu augnablik síns tíma rétt eins og ljósmyndarar og fréttamenn gera í dag. Þannig má segja að fjölmiðlar; sjónvarp, dagblöð, héraðsfréttablöð…Lesa meira

true

Seinkun á endurnýjun gangstétta á Laugarbraut og Krókatúni

Frá því í byrjun júní hafa verið framkvæmdir í gangi á Laugarbraut á Akranesi. Akraneskaupstaður er að endurnýja gangstéttir við götuna og samhliða því eru Veitur að skipta um vatns- og raflagnir. Verktaki endurnýjunar gangstétta er Skóflan ehf og verktaki lagnavinnu er Þróttur ehf. Þessu verki er skipt í tvo áfanga: Laugarbraut, 1. áfangi, átti…Lesa meira

true

ÍATV sýnir leik ÍA og FH

Í dag klukkan 18 takast á í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla lið ÍA og FH á Akranesvelli. Upphitun fyrir leikinn hefst á ÍATV klukkan 17:45 þar sem m.a. verður rifjaður upp úrslitaleikur þessara liða í bikarkeppninni árið 2003. Sérfræðingur í útsendingu verður Andri Júlíusson og Örn Arnarsson lýsir. „Við stefnum að veglegri þriggja-myndavéla útsendingu,“…Lesa meira

true

Nágrannar takast á á ritvellinum

Nágrannar á Húsafelli takast þessa dagana harkalega á á ritvellinum. Í kjölfar ákvörðunar Páls Guðmundssonar listamanns um að hefja niðurrif umdeilds legsteinaskála og yfirlýsingar þar um síðastliðinn sunnudag, svaraði Sæmundur Ásgeirsson í Gamla bænum með yfirlýsingu sem hann birti í gær á fréttamiðlinum dv.is Þar útskýrir Sæmundur málið frá sinni hlið. Í dag birti Páll…Lesa meira

true

Malbikunar-framkvæmdir í Snæfellsbæ

Mikill kraftur er í malbikunarframkvæmdum í Snæfellsbæ um þessar mundir en þriðji áfangi malbikunarframkvæmda í Snæfellsbæ hófst síðustu vikuna í júlí og mun standa fram í ágúst en fyrstu áfangar voru teknir sumrin 2017 og 2019. Að auki verða gerðar smávegis lagfæringar og malbik lagt á minni svæði til að gera umhverfið snyrtilegra. Hellissandur var…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd Akraness með úthlutun í næstu viku

Ágústsúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram miðvikudaginn 18. ágúst frá kl 12:30-16 í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a. Tekið er á móti umsóknum í síma 859-3000 og 859-3200 dagana 12., 13. og 16. ágúst frá klukkan 11-13. Einnig má sækja um á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com Einungis nýir umsækjendur þurfa að skila inn búsetuvottorði og staðgreiðsluskrá og…Lesa meira

true

Sósíalistaflokkurinn biðlar til RÚV um fríar auglýsingar

Flokkar sem eiga menn á þingi skömmtuðu sér 2.848 milljónir króna úr ríkissjóði á kjörtímabilinu Gunnar Smári Egilsson forsvarsmaður Sósíalistaflokksins hefur biðlað til Ríkisútvarpsins, að í ljósi þess að flokkurinn fær ekki fjármagn úr opinberum sjóðum eins og þeir sem eiga þingmenn nú, að flokkurinn fái fríar auglýsingabirtingar á RÚV. Í bréfi til útvarpsráðs segir…Lesa meira