Fréttir

true

Ólafsdalshátíð hefur verið aflýst

Ákveðið hefur verið að aflýsa Ólafsdalshátíð í Gilsfirði sem fara átti fram laugardaginn 14. ágúst næstkomandi. Það er gert vegna fjöldatakmarkana vegna Covid-19. „Áfram verður þó opið í Ólafsdal klukkan 12-17 alla daga fram til 15. ágúst. Sýningar, leiðsögn, kaffi, rjómavöfflur, Erpsstaðaís, góðar gönguleiðir og fornminjar í boði,“ segir í tilkynningu frá Ólafsdalsfélaginu. Mikill kraftur…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík í vonlítilli stöðu í Lengjudeildinni

Víkingur Ólafsvík tók í gærkvöldi á móti Fram á Ólafsvíkurvelli í frestuðum leik í Lengjudeild karla í knattspyrnu. Fyrir leikinn var Fram í toppsæti deildarinnar með 38 stig en Víkingur í botnsætinu með aðeins tvö stig. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en lítið um marktækifæri og var staðan markalaus í hálfleik. Framarar komust…Lesa meira

true

Skapandi greinum gert hærra undir höfði

Sett verður á fót sérstakt markaðsráð Skapandi Íslands, Listaháskólinn fer í nýtt húsnæði, stofnað verður rannsóknarsetur skapandi greina við Háskólann á Bifröst, Hagstofan mun birta menningarvísa og ritað hefur verið undir samning stjórnvalda og Listaháskólans um kvikmyndanám. Þetta er meðal aðgerða sem ríkisstjórnin kynnti í gær í þeim tilgangi að auka framgang skapandi greina. Skapandi…Lesa meira

true

Tólf til fimmtán ára börnum gefst kostur á bólusetningu

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögu sóttvarnalæknis um að gefa börnum á aldrinum 12 til 15 ára kost á bólusetningu við Covid-19 með það að markmiði að veita þeim vörn gegn sjúkdómnum. Bólusett verður með bóluefni Pfizer þar sem meiri reynsla er fyrirliggjandi um bólusetningar þessa aldurshóps með því efni en bóluefni Moderna sem einnig hefur…Lesa meira

true

Starfar hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims

Skagamaðurinn Sturlaugur Haraldsson starfar í dag hjá einu stærsta sjávarútvegsfyrirtæki heims, rússneska fyrirtækinu Norebo. Hann er framkvæmdastjóri Norebo Europe, sem er söluarmur Norebo samstæðunnar í Evrópu og Bandaríkjunum. Starfsstöð Sturlaugs er í úthverfi London en hann var í stuttu fríi á Akranesi þegar tíðindamaður Skessuhorns sótti hann heim á dögunum og ræddi við hann um…Lesa meira

true

Kartöfluuppskeran í ár lofar góðu

Þau Guðrún María Björnsdóttir og Jóhann Páll Þorkelsson, bændur á Snartarstöðum í Lundarreykjardal í Borgarfirði, setja sig nú í startholurnar fyrir komandi vertíð í kartöfluuppskeru. „Kartöfluvertíðin byrjar fyrr en við áttum von á. Uppskeran er fyrr heldur en venjulega, miðað við hvað vorið var kalt,“ segir Guðrún María, eða Gunna Mæja eins og hún er…Lesa meira

true

Brenndur brjóstsykur vekur minningar í sveitaversluninni í Brautarholti

Það var óneitanlega skemmtileg stemning í gömlu sveitabúðinni í Brautarholti í Dölum, en hún var opin fyrir gesti um verslunarmannahelgina. Það var ekki laust við að tilhlökkunar gætti hjá Dalamönnum og talsvert rætt um viðburðinn á samfélagsmiðlum. Atli Ingólfsson tók á móti fólki og bauð brenndan brjóstsykur úr krús og baka til var einnig í…Lesa meira

true

Flutti til Íslands til að taka myndir af íslenska hestinum

Við Esjurætur í litlu og notalegu húsi hitti blaðamaður Skessuhorns Carolin Giese, eða Linu eins og hún er jafnan kölluð. Lina starfar sem ljósmyndari en hún hefur sérhæft sig í ljósmyndum af hestum og hundum en einstaka kettir rata einnig í myndatökur til hennar. Lina er þýsk en hún kom fyrst til Íslands veturinn 2012…Lesa meira

true

Líklega óbreyttar samkomutakmarkanir

Ríkisstjórnin hélt síðdegis í dag blaðamannafund í Reykjanesbæ. Þar voru ýmsar ákvarðanir stjórnarinnar kynntar, svo sem um þingrof og sitthvað fleira. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra sagði þar frá minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. Hann leggur til að núverandi sóttvarnareglugerð verði framlengd um tvær vikur. Að óbreyttu hefðu þær runnið út að kvöldi föstudagsins 13. ágúst. Fram kom…Lesa meira

true

Berglind ráðin aðstoðarþjálfari Vals

Körfuknattleikskonan Berglind Lára Gunnarsdóttir úr Stykkishólmi, sem lék með Snæfelli og íslenska landsliðinu í körfubolta til margra ára, hefur verið ráðin aðstoðarþjálfari deildar- og Íslandsmeistara Vals í körfuknattleik kvenna. Berglind, sem er 26 ára, varð að leggja skóna á hilluna eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi í byrjun árs 2020 en þegar hún slasaðist…Lesa meira