
Veitinga-, skemmti- og afþreyingarstaðurinn Grjótið-Bistro-Bar-Cafe við Kirkjubraut á Akranesi var opnaður í vikunni með pompi og pragt. Veitingastaðurinn býður meðal annars upp á mexíkanska matargerð og hefur fengið til liðs við sig erlenda sérhæfða matreiðslumenn. Grjótið verður opið alla helgina yfir Írska daga frá kl. 11 að morgni til 3 um nóttina alla dagana. Lesa meira








