
Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður 28. júní árið 2001 og átti því 20 ára afmæli á mánudaginn. Fjölbreytt dagskrá hefur verið í gangi undanfarna daga í þjóðgarðinum sem náði hámarki á sunnudaginn þegar Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra undirritaði reglugerð um stækkun þjóðgarðsins við athöfn sem fram fór á Malarrifi. Stækkar garðurinn nú um 9%…Lesa meira








