Fréttir

true

Varmalandsdagar hefjast á morgun

Staðarhátíðin Varmalandsdagar hefst á morgun, laugardaginn 12. júní. Þetta er í fyrsta sinn sem hátíðin er haldin en Hollvinasamtök Varmalands, sem voru stofnuð síðastliðið haust, standa að hátíðinni. Fjölbreyttir og skemmtilegir viðburðir verða á hátíðinni, myndlistarsýningar og markaður í Þinghamri. Þá verður Kvenfélag Stafholtstungna með kaffisölu og Björgunarsveitin Heiðar sýnir tæki sveitarinnar báða dagana. Ásgeir…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Vegabætur í Hafnarfjalli

Uppbygging gönguleiða á vegum hins nýstofnaða Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs hófst með látum í gær þegar sjálfboðaliðar á vegum félagsins tóku til hendinni í hlíðum Hafnarfjalls. Níu manns, nefndarfólk í Stikunefnd og fleiri félagsmenn, mættu í fjallið með naglbíta og sleggjur. Verkefni dagsins var að rífa niður girðingu sem var búin að ganga frá starfslokasamningi fyrir nokkru.…Lesa meira

true

Slaka á samkomutakmörkunum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur tilkynnt um slakanir á samkomutakmörkunum frá og með þriðjudeginum 15. júní. Almennar fjöldatakmarkanir fara úr 150 manns í 300 og nándarreglan fer úr tveimur metrum í einn. Á sitjandi viðburðum verður engin krafa um nándarmörk en áfram verður í gildi grímuskylda og að hámarki 300 manns í hverju sóttvarnarhólfi. Sitjandi viðburðir…Lesa meira

true

Hafna fyrirhuguðum aðalskipulagsbreytingum vegna nýtingu vindorku á Grjóthálsi að svo stöddu

Á fundi sveitarstjórnar í Borgarbyggð í gær, fimmtudaginn 10. júní, hafnaði sveitarstjórn að svo stöddu fyrirhuguðum aðalskipulagsbreytingum eða frekari skipulagsvinnu vegna nýtingu vindorku á Grjóthálsi. Yfir 70 athugasemdir bárust á kynningartíma og lýstu þær mikilli andstöðu við framkvæmdirnar. Athugasemdirnar snérust m.a. um neikvæð áhrif á náttúru og umhverfi, sjónmengun, hávaðamengun og neikvæð áhrif á gróður…Lesa meira

true

Grátlegt tap Ólsara gegn Fjölni

Víkingur Ólafsvík lék við lið Fjölnis úr Grafarvogi í Lengjudeild karla í knattspyrnu í gærkvöldi. Víkingur komst yfir rétt fyrir hálfleik með marki Þorleifs Úlfarssonar og í seinni hálfleik varðist Víkingur frábærlega og  var grátlega nálægt sínum fyrsta sigri í deildinni í sumar. Það voru hins vegar Fjölnismenn sem stálu sigrinum undir lok leiksins; Fyrst…Lesa meira

true

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 20 ára

Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull á 20 ára afmæli mánudaginn 28. júní næstkomandi. Í tilefni af því verður afmælisdagskrá á vegum þjóðgarðsins í heila viku eða frá 19. júní til 28. júní . Meðal viðburða má nefna göngur undir leiðsögn á valda toppa Þjóðgarðsins;  Hreggnasa, Saxhól, Sjónarhól, Sauðhól, Rauðhól, Búrfell og Bárðarkistu. Þá verða fróðleiksgöngur með Snæfellingum sem…Lesa meira

true

Glatvarmi virkjaður og framtíðin gæti falist í rafeldsneyti

Atvinnuveganefnd Alþingis hefur að undanförnu fjallað um ónýtta möguleika til endurnýtingar orku sem til fellur t.d. við stóriðju hér á landi. Að sögn Haraldar Benediktssonar sem sæti á í nefndinni samþykkti nefndin fyrr í vikunni fyrir sitt leiti breytingar á raforkulögum sem heimila að nýta megi og selja glatvarma. Fyrri lög gera ekki með beinum…Lesa meira

true

Tilkynningar um aukaverkanir eftir bólusetningu

Á heimasíðu Lyfjastofnunar hefur verið birt sundurliðun á tilkynningum vegna gruns um alvarlegar aukaverkanir í kjölfar bólusetningar við Covid-19. Samkvæmt þeim gögnum sem stofnunin birti þriðjudaginn 8. júní höfðu þá 100 tilkynningar vegna gruns um alvarlegar aukaverkanir borist Lyfjastofnun. Alls hafa 23 tilkynningar borist um dauðsföll í kjölfar bólusetningar en flestar þeirra bárust í janúar,…Lesa meira

true

Símakuldi á Ölkeldu í Staðarsveit

Blaðamaður Skessuhorns kíkti í lok síðustu viku í heimsókn á bæinn Ölkeldu II í Staðarsveit. Þar býr bóndinn Kristján Þórðarson ásamt Astrid konu sinni og reka þau þar kúabú ásamt Jóni Svavari bróður hans og syni hans Þórði og fjölskyldum þeirra. Þau hafa síðustu tvo áratugi þurft að glíma við svokallaðan símakulda á bæjunum þremur.…Lesa meira

true

Hreinsuðu hluta af strandlengju Akraness

Nemendur í 10. bekk í Grundaskóla unnu öflugt hreinsunarstarf á dögunum en starfið var unnið í fjáröflunarskyni fyrir útskriftarferð þeirra. Frá þessu er sagt á vefsíðu Akraneskaupstaðar en útskriftarnemar í Grundaskóla hafa ýmist safnað fyrir ferðinni með sölu á brauði í skólanum sem og tekið að sér gangbrautavörslu fyrir yngri nemendur.  Covid faraldurinn setti vissulega…Lesa meira