Fréttir

true

Hlakkar til að opna Langána

„Ég er búinn að veiða aðeins núna, fór í sjóbirting í Laxá í Kjós í vor með Adda Fannari vini mínum og fengum við tvo flotta birtinga,“ sagði Jógvan Hansen er við heyrðum í honum hljóðið. Hann er þessa dagana að undirbúa söngferðalag með Friðriki Ómari um landið og fíflast í sjálfum sér og landanum,…Lesa meira

true

Skoða samstarf um framleiðslu á rafeldsneyti á Grundartanga

Landsvirkjun, Carbon Recycling International, Elkem á Íslandi og Þróunarfélag Grundartanga áforma samstarf um skoðun á framleiðslu á grænu metanóli. Framleiðslan myndi nýta endurnýjanlega raforku Landsvirkjunar, framleiðslutækni Carbon Recycling International og glatvarma ásamt koldíoxíði sem fangað yrði úr kísilveri Elkem á Grundartanga. Framleiðsla þessi yrði í anda þeirrar undirbúningsvinnu sem unnin hefur verið að undanförnu af…Lesa meira

true

Íbúafundur í Húnaþingi vestra

Á morgun, þriðjudaginn 15. júní, verður haldinn íbúafundur í Húnaþingi vestra þar sem hugmyndir um nýtingu vindorku í landi Sólheima í Laxárdal í Dölum verða ræddar. Fundurinn verður haldinn í Tangarhúsi á Borðeyri og hefst hann kl. 17:00. „Fulltrúar Qair og EFLU munu kynna fyrirtækið Qair, vindorkugarð í landi Sólheima og stöðu skipulagsmála,“ segir í…Lesa meira

true

Síðdegishvellur kom illa við hjólhýsaeigendur

Síðdegis á föstudaginn gerði óvænt norðan hvassviðri. Ekki hafði verið gefin út viðvörun vegna hvassviðris og því uggðu menn ekki að sér, einkum þeir sem lögðu á þjóðvegina með stóra en léttbyggða eftirvagna. Af þeim sökum fuku hjólhýsi bæði á vegum úti og einnig hjá hjólhýsakaupmönnum í Mosfellsbæ. Hjólhýsi fuku þannig m.a. á Snæfellsnesi, Kjalarnesi…Lesa meira

true

Reynir Hellissandi tapaði fyrir Herði

Reynir H. lék gegn liði Harðar frá Ísafirði á Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið í C-Riðli 4. deildar karla í knattspyrnu. Heimir Þór Ásgeirsson kom Reynismönnum yfir strax á annarri mínútu leiksins en Birkir Eydal svaraði með tveimur mörkum fyrir Hörð og staðan í hálfleik 1-2. Það voru síðan þeir Guðmundur Páll Einarsson og Jóhann Samuel Rendall…Lesa meira

true

Lóa Kristín dúxaði í FSN

Þriðjudaginn 25. maí voru ellefu nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Lóa Kristín Kristjánsdóttir var dúx skólans en hún útskrifaðist af náttúru- og raunvísindabraut. Aðspurð segist hún hafa valið þá braut þar sem áhugi hennar liggur í stærðfræði, efnafræði og öðrum raungreinum. „Þessi braut hentaði best fyrir það sem mig langar að gera í…Lesa meira

true

Aparóla vígð á Hvanneyri

Borgarbyggð skýrir frá því í gær á vef sínum að Aparóla hafi verið vígð á Hvanneyri 7. júní síðastliðinn. Samkvæmt fréttinni voru það kátir krakkar sem vígðu aparóluna enda búið að vera langþráður draumur að eignast slíkt leiktæki við skólann. Með góðri samvinnu nemenda, starfsfólks, ungmennafélagsins Íslendings og íbúasamtakanna á Hvanneyri fóru nemendur í söfnun…Lesa meira

true

Myndasyrpa – Kastað til bata með bleikum stöngum

Kastað til bata nefnist skemmtilegt endurhæfingarverkefni á vegum Brjóstaheilla – Samhjálpar kvenna og Krabbameinsfélagsins. Um er að ræða veiðiferð þar sem konur hittast og fara saman að veiða og er veiðiferðin hluti af endurhæfingarferli eftir meðferð við brjóstakrabbameini. Ferðirnar hafa gefið afar góða raun og létt lundina svo eftir er tekið. Komin er reynsla á…Lesa meira

true

Heba Bjarg er dúx FVA

Föstudaginn 28. maí voru 55 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands. Heba Bjarg Einarsdóttir var með bestan námsárangur á stúdentsprófi með 9,34 í lokaeinkunn. Heba lauk námi af félagsfræðibraut en hún valdi þá braut því henni þótti áfangarnir skemmtilegir og gagnlegir og þessi braut góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám. „Félagsfræðibraut býður upp á ýmsa skemmtilega áfanga,…Lesa meira

true

Úlfar Örn sýnir á Hótel Hamri

Laugardaginn 12. júní kl. 14 opnar Úlfar Örn myndlistarsýninguna Hillingar á Icelandair Hótel Hamri í Borgarnesi. Þar sýnir hann stór fígúratíf málverk sem öll eru unnin á árinu 2021. Úlfar hefur unnið við fígúratífan myndheim sinn mörg undanfarin ár.  Í þessari sýningu skoðar hann það áhugaverða fyrirbæri hillingar. Hillingar myndast þegar við hitabreytingar ljósbylgjur breyta…Lesa meira