Fréttir

true

Varað er við hvassviðri síðdegis í dag

Eftir hádegi í dag hvessir af suðaustan hér um suðvestanvert landið. Reikna má með að vindur geti farið í 30-35 m/s í hviðum á utanverðu Kjalarnesi og eins við Hafnarfjall frá klukkan 14 og verður vindhraði í hámarki síðdegis. Ekki er búist við að vind lægi fyrr en eftir miðnætti. Við þessar aðstæður er varhugavert…Lesa meira

true

Framkvæmdir við Faxabraut og Þjóðbraut á Akranesi

Nú standa yfir umfangsmiklar lagnaframkvæmdir við Þjóðbraut og Faxabraut á Akranesi. Við Þjóðbraut eru Veitur í samstarfi við Gagnaveitu Reykjavíkur að leggja veitulagnir (heitt- og kalt vatn, rafmagn og ljósleiðara) samhliða Þjóðbraut og að nýjum byggingum á Dalbrautarreit. Lagnirnar munu einnig þjóna væntanlegri íbúðabyggð sem rísa mun á Sementsverksmiðjureitnum. Áætluð verklok eru í nóvember 2021…Lesa meira

true

Taka yfir lóð og mannvirki á Dalbraut 8

Bæjarráð samþykkti á fundi sínum 20. maí sl. samning Akraneskaupstaðar og Veitna ohf. um yfirtöku bæjarins á lóð og mannvirkjum á Dalbraut 8. Orkuveitan og þar áður Rafveita Akraness voru með starfsstöð í húsinu en það hefur staðið ónotað undanfarin ár vegna myglu. Bæjarráð samþykkti breytingu á fjárfestingar- og framkvæmdaáætlun ársins 2021 og viðbótarútgjöld vegna…Lesa meira

true

Skagastúlkur unnu HK

Meistaraflokkur ÍA í Lengjudeild kvenna náði í mikilvæg þrjú stig í gærkvöldi þegar þær unnu lið HK í Kórnum með minnsta mun 1-0. Skagastúlkur fengu nokkur góð marktækifæri í fyrri hálfleik en á 37. mínútu slapp Erla Karítas Jóhannesdóttir, framherji ÍA, í inn fyrir vörn heimamanna og setti boltann af öryggi framhjá markmanni HK. Í…Lesa meira

true

Hægt að sjá hvernig sköttunum okkar er varið

Einstaklingar geta nú á myndrænan hátt séð hvernig sköttum sem lagðir eru á tekjur þeirra er skipt á milli ríkis og sveitarfélags og í hvaða málaflokka þeir renna. Þetta má sjá á nýjum og breyttum álagningarseðlum einstaklinga sem eru nú aðgengilegir á vef Skattsins. Markmiðið er að auka gegnsæi um hvert skattgreiðslur almennings renna. Þannig…Lesa meira

true

Sauðburður nú langt kominn

Undanfarnar vikur hafa verið háannatími hjá sauðfjárbændum. Hjá flestum er fyrri hluti maímánaðar sá tími sem flestar ærnar bera lömbum sínum. Þó eru frávikin vissulega beggja megin við þann tíma. Skessuhorn hefur ekki fregnað annað en að sauðburður hafi gengið vel, einkum að menn kvarta yfir þurru og köldu veðri, næturfrosti og þar af leiðandi…Lesa meira

true

Ræktunarstöðin Miðvogi er nú opin

Ræktunarstöðin Miðvogi er staðsett við gamla þjóðveginn rétt fyrir ofan útivistarsvæði hunda á Akranesi. Stöðin var opnuð formlega fyrr í þessum mánuði. Jón Þórir Guðmundsson garðyrkjufræðingur er eigandi stöðvarinnar. Blaðamaður kíkti í heimsókn til hans í blíðskaparviðri í síðustu viku. Það kennir ýmissa grasa.  Hann er með til sölu mikið af ávaxtatrjám, eins og til…Lesa meira

true

Hraðhleðslustöð væntanleg við Nettó

Samkaup hefur gert samning við Ísorku og mun bjóða upp á rafhleðslustöðvar við verslanir félagsins um allt land. Áætlað er að fyrsta rafhleðslustöðin verði opnuð við verslun Nettó í Borgarnesi í sumar og í kjölfarið munu aðrar verslanir bjóða upp á hleðslustöðvar.Lesa meira

true

Skorið í tunnur við höfnina

Grásleppuveiðar máttu hefjast við innanverðan Breiðafjörð síðastliðinn fimmtudag. Héldu tólf bátar strax til veiða frá Stykkishólmi. Þeir Páll Aðalsteinsson og Álfgeir Marinósson lönduðu á mánudaginn grásleppu úr Önnu Karínu SH eftir þrjár nætur. Þeir höfðu alls ellefu tunnur með sér út en þær dugðu ekki til. Þeir komu því að landi með talsvert af óskorinni…Lesa meira

true

Ellefu sækja um prestsstarf

Fyrr í vor auglýsti Biskupsstofa eftir presti til þjónustu í Garða- og Saurbæjarprestkalli á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit. Umsóknarfrestur er nú liðinn og sótt ellefu um starfið en tveir þeirra óskuðu nafnleyndar. Hinir níu eru: Árni Þór Þórsson guðfræðingur, Edda Hlíf Hlífarsdóttir guðfræðingur, Erna Kristín Stefánsdóttir guðfræðingur, Helga Bragadóttir guðfræðingur, Hilmir Kolbeins guðfræðingur, Hjördís Perla…Lesa meira