
Einstaklingar geta nú á myndrænan hátt séð hvernig sköttum sem lagðir eru á tekjur þeirra er skipt á milli ríkis og sveitarfélags og í hvaða málaflokka þeir renna. Þetta má sjá á nýjum og breyttum álagningarseðlum einstaklinga sem eru nú aðgengilegir á vef Skattsins. Markmiðið er að auka gegnsæi um hvert skattgreiðslur almennings renna. Þannig…Lesa meira








