Fréttir

true

Húsið á Háreksstöðum gert að veiðihúsi

Nokkuð er um að veiðifélög séu að breyta, færa eða byggja ný veiðihús við laxveiðiárnar. Nefna má að nýtt hús er nú risið við Hörðudalsá í Dölum, bygging nýs veiðihúss við Reykjadalsá í Borgarfirði er í útboði og þá er verið að lagfæra húsið við Haukadalsá í Dölum. Veiðihúsið sem hefur staðið í Hvammslandi í…Lesa meira

true

Rúmensk listakona heldur sýningu í tvo daga í vikulokin

Rúmenska listakonan Adelina Ivan er stödd í Grundarfirði þessa dagana þar sem hún vinnur að list sinni fyrir sýningu sem verður um næstu helgi. Adelina kom til landsins 13. maí síðastliðinn og kom til Grundarfjarðar þremur dögum síðar. Hún er stödd hér á landi í samstarfi við ArtAk350 sem rekur listavinnustofu í Grundarfirði. Adelina mun…Lesa meira

true

Grillað í trássi við tilmæli

Þrátt fyrir tilmæli almannavarna til fólks um að grilla ekki barst Neyðarlínu síðdegis á föstudag í síðustu viku tilkynning um að verið væri að grilla á kolagrilli í Húsafelli og að eldtungurnar stæðu langt upp í loft. Lögreglu hafði samband við slökkvilið og staðarhaldara í Húsafelli. Staðarhaldari ræddi við grillarana enda augljóst að athæfið getur…Lesa meira

true

Höfði á Akranesi hlýtur hæsta framlagið úr Framkvæmdasjóði aldraðra

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur úthlutað framlögum að upphæð 382 milljónum króna úr Framkvæmdasjóði aldraðra til endurbóta og viðhaldsverkefna á hjúkrunarheimilum víðsvegar um landið. Stærsta eintaka úthlutunin, rúmar 117 milljónir króna, fer til endurbóta á dvalarheimilinu Höfða á Akranesi sem miða að því að bæta aðbúnað og breyta fjölbýlisherbergjum í einbýli. Akraneskaupstað er einnig úthlutað 4,6…Lesa meira

true

Brautskráning frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Í gær, þriðjudaginn 25. maí, brautskráðust ellefu nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðist einn nemandi; Natalia Wasiewicz. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðust fjórir nemendur. Þeir eru: Aron Bjartur Hilmarsson, Lóa Kristín Kristjánsdóttir, Samúel Alan Hafþórsson og Silja Ólafsdóttir.  Af opinni braut til stúdentsprófs brautskráðust þrír nemendur. Þeir eru: Elías Björn…Lesa meira

true

Gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

„Ég hef ákveðið að gefa kost á mér í 2.- 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi sem haldið verður 16. og 19. júní næstkomandi,“ segir í tilkynningu frá Guðrúnu Sigríði Ágústsdóttur. Guðrún Sigríður er fædd og uppalin á Bíldudal í fjögurra systkina hópi. Foreldrar hennar eru báðir frá Bíldudal og stórfjölskyldan öll. „Ég er…Lesa meira

true

Lýst eftir þátttakendum í sýningu ræktunarbúa á Fjórðungsmóti

Fjörðungsmót Vesturlands verður haldið í Borgarnesi dagana 7.-11. júlí í sumar. Jafnan skipa sýningar ræktunarbúa heiðurssess á mótum sem sem slíkum. Á FV í Borgarnesi í sumar verður engin breyting þar á. Stefnt er á að tilhögun sýninga verði með svipuðu sniði og verið hefur á undanförnum mótum, þ.e. að þátttaka verði bundin við tíu…Lesa meira

true

Ferðamönnum fjölgar ört frá Bretlandi og Bandaríkjunum

Flugferðum til og frá landinu og ferðamönnum sem hingað koma fjölgaði hratt í maímánuði. Líkur eru á að fjölgunin verði áfram mikil á næstu vikum ef tekið er mið af flugframboði og áætlunum um nýtingu hótela. Vísbendingar eru um að erlendir ferðamenn á Íslandi verji nú talsvert meira fé en var fyrir heimsfaraldur kórónuveiru en…Lesa meira

true

Skallagrímur og Reynir H með góða sigra

Skallagrímur og Reynir Hellissandi spiluðu í gærkveldi sína fyrstu heimaleiki í 4. deildinni í fótbolta og unnu bæði liðin örugga sigra. Skallagrímsmenn léku gegn Álftnesingunum í KFB og unnu stórsigur 7-1. Skallagrímsmenn komust í 5-0 eftir klukkutíma leik með tveimur mörkum Sigurjóns Ara Guðmundssonar og þeir Mario Pascual, Viktor Már Jónasson og Declan Redmond voru…Lesa meira

true

Fasteignaviðskipti í apríl

Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í apríl síðastliðnum samkvæmt þinglýstum gögnum. Fjöldi fasteigna sem gekk kaupum og sölum á landinu öllu var 1.309 og var upphæð viðskiptanna um 66 milljarðar króna. Þegar apríl 2021 er borinn saman við mars 2021 fækkar kaupsamningum um 29,5% og velta lækkar um 30,3%.…Lesa meira