Fréttir

true

Friðlýsa Fitjaland

Í dag, miðvikudaginn 26. maí, mun umhverfis- og auðlindaráðherra undirrita friðlýsingarskilmála fyrir friðlandið við Fitjaá í innanverðum Skorradal. Eins og lög gera ráð fyrir vísaði Umhverfisstofnun tillögu þessa efnis til ráðherra í september síðastliðnum en heimsfaraldur kórónuveirunnar kom í veg fyrir að hægt væri að undirrita skilmálana fyrr en nú.Lesa meira

true

Tónar og ljóð Valgerðar í Reykholtskirkju

Föstudaginn 28. maí verða tónleikar í Reykholtskirkju í Borgarfirði þar sem Valgerður Jónsdóttir, kemur fram ásamt hljómsveit. Valgerður er tónlistarkona frá Akranesi, á að baki langan og fjölbreyttan feril í tónlistinni og á orðið mikið safn laga og texta sem hún hefur samið gegnum tíðina. Á dagskrá tónleikanna verður fjölbreytt blanda af tón- og textasmíðum…Lesa meira

true

Landgræðsluverðlaunin afhent

Árni Bragason landgræðslustjóri afhenti nýlega Landgræðsluverðlaunin 2021. Þau eru afhent einstaklingum, félagasamtökum og sveitarfélögum sem hafa þótt sýna góðan árangur við landgræðslu og landbætur og voru fyrst afhent 1990. Verðlaunahafar þetta árið eru: Skútustaðahrepppur, Bláskógaskóli og Menntaskólinn á Laugarvatni og bændur á Stóru-Mörk III undir Vestur-Eyjafjöllum.Lesa meira

true

Borgarverk fékk afhentan nýjan Komatsu veghefil

Kraftvélar afhentu á dögunum Borgarverki nýjan Komatsu GD675-7 veghefil. Hefillinn vigtar um 19 tonn og er vel útbúinn á allan hátt. Hann afhendist m.a. með nýjum fingurstýrðum stjórntækjum, einstaklega mjúkri gírskiptingu, 14 feta blaði, Multi shank ripper, framtönn, sjálfvirku smurkerfi, Komtrax 3G kerfi, Komatsucare viðhalds- og þjónustupakka og svo mætti áfram telja.Lesa meira

true

Ævintýraleiðsögunám án staðsetningar

Keilir á Reykjanesi hefur ákveðið að auka sveigjanleika leiðsögunáms í ævintýraferðamennsku með bóklegu fjarnámi í því skyni að koma betur til móts við nemendur á landsbyggðinni. Leiðsögunám í ævintýraferðamennsku er átta mánaða nám á háskólastigi. Námið hefur verið kennt við Keili frá árinu 2013 í samstarfi við Thompson Rivers University í Kanada, einn virtasta skóla…Lesa meira

true

Komu össu til bjargar

Þeir Kristján Lár Gunnarsson og Björn Ásgeir Sumarliðason í Stykkishólmi komu löskuðum erni til bjargar í gærkvöldi og færðu hann í hendur sérfræðings hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. „Við vorum aðeins að fylgjast með erninum og okkur þótti eitthvað óeðlilegt við fuglinn. Svo sáum við hann enda í sjónum og vissum að eitthvað væri að svo við…Lesa meira

true

Algengt leiguverð er um tvö þúsund krónur á fermetra

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í apríl á þessu ári. Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 694 samningar, sem þinglýst var í apríl 2021 og byggja meðfylgjandi tölur á þeim. Leiguverð er mismunandi eftir landshlutum, hæst á höfuðborgarsvæðinu og lækkar svo eftir því sem fjær dregur. Á…Lesa meira

true

Naumt tap Skagamanna gegn Blikum í gær

Skagamenn léku við Breiðablik á Akranesvelli í 6. umferð Pepsi Max deildarinnar í fótbolta í gærkvöldi. Lítið var að gerast í fyrri hálfleik en Blikar komust yfir á 42. mínútu með marki Gísla Eyjólfssonar og staðan í hálfleik 0-1. Skagamenn gerðu þrjár skiptingar í hálfleik og það bar fljótt árangur því Viktor Jónsson jafnaði leikinn…Lesa meira

true

Vestri sendi Skallagrímsmenn í sumarfrí

Ísfirðingar í Vestra sendu Skallagrímsmenn í sumarfrí þegar þeir sigruðu þá síðarnefndu og tryggðu sér þannig miða í úrslitarimmuna í 1. deild karla í körfuknattleik i gær. Vestri var kominn í vænlega stöðu fyrir þriðju viðureign liðanna en þeir sigruðu Skallagrím í öðrum leik á heimavelli þeirra í Borgarnesi á föstudaginn var, 75-68. Vestramenn þurftu…Lesa meira

true

Ragnar & Ásgeir stækka flotann

Flutningafyrirtækið Ragnar & Ásgeir ehf. í Grundarfirði fengu nýverið afhenta þrjá nýja Volvo dráttarbíla af öflugustu gerð. Bílarnir eru nú þegar komnir í notkun og var bara hending að ljósmyndari Skessuhorns gat náð þeim öllum saman á mánudagsmorgun. Þá voru þeir að fara með afla til Þorlákshafnar og máttu lítið vera að því að stoppa.…Lesa meira