Fréttir

true

Markalaust jafntefli hjá Skagamönnum

Skagamenn náðu ekki að krækja í sinn fyrsta sigur í Pepsi Max deildinni í fótbolta í gær þegar þeir tóku á móti Stjörnunni í fjórðu umferð deildarinnar, lokastaðan í leiknum 0-0. Liðið situr nú á botni deildarinnar með aðeins tvö stig ásamt fjórum öðrum liðum en aðeins þrjú stig eru upp í fimmta sætið. Tveir…Lesa meira

true

Átján metra hátt fjarskiptamastur verður reist á Akranesi

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á fundi sínum 11. maí síðastliðinn tillögu skipulags- og umhverfisráðs um deiliskipuskipulagsbreytingu vegna Garðalundar og Lækjarbotna. Í breytingunni felst að heimilt verði að reisa 18 metra hátt fjarskiptamastur ásamt 2,1 metra háum tækjaskáp, í um 200 metra fjarlægð frá byggð við Baugalund, um 250 metra frá næstu húsum í Jörundarholti og um…Lesa meira

true

Krían er mætt á varpstöðvarnar í Rifsósi

Krían er eins og allir vita einn af vorboðunum og bíða margir spenntir komu hennar á vorin. Hún mætti í Rifsós á Snæfellsnesi um miðja síðustu viku að loknu löngu ferðalagi frá Suðurskautslandinu þar sem hún hefur vetursetu. Enginn fugl ferðast jafn langa leið á milli varp- og vetrarstöðva en talið er að krían sé…Lesa meira

true

Þriðjungur fólks á vinnualdri fær ekki fullt orlof

Ný skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands sýnir að tæplega þriðjungur fólks á vinnualdri (20-65) á ekki rétt á fullu orlofi í sumar. Fullt orlof telst 24 greiddir frídagar eða meira. Þegar spurt var um ástæðu þess að viðkomandi fái ekki fullt orlof nefndu 55% að þeir hefðu ekki verið í starfi síðastliðna 12…Lesa meira

true

Lionsmenn færðu björgunarsveitinni gjafir

Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ og unglingadeildin Drekinn fengu nýverið góðar gjafir frá Lionsklúbbi Nesþinga og Lionsklúbbi Ólafsvíkur. Fékk Lífsbjörg að gjöf frá Lionsklúbbi Nesþinga fjóra hjálma og gleraugu sem nýtast vel á sexhjól, sleða og buggybíl sveitarinnar. Frá Lionsklúbbi Ólafsvíkur fékk unglingadeildin Drekinn þrjá þurrgalla sem koma að góðum notum þegar farið er með ungmenni…Lesa meira

true

Vinnslan fór og hvað svo? – Sýning á verkum skipulagsfræðinema

Undanfarnar vikur hafa nemendur í meistaranámi í skipulagsfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands unnið að skipulagstillögum um framtíð svæðisins á Breið á Akranesi. Eru tillögurnar hluti af áfanganum „Heildstætt og hagnýtt“. Markmið var að vinna tillögur að skipulagi sem eflir atvinnustarfsemi og býður upp á nýja nálgun fyrir lífsgæði á svæðinu sem gengið hefur í gegnum miklar…Lesa meira

true

Sóttu vélarvana bát skammt frá Rifi

Eftir hádegi síðastliðinn laugardag barst útkall á björgunarbátinn Björg í Rifi. Það var frá handfærabátnum Höllu Daníelsdóttur RE, sem þurfti aðstoð en báturinn var þá staddur um eina sjómílu frá Rifi. Halla var að koma úr róðri af Flákanum þegar drapst á vélinni. Leiðangurinn gekk vel og kom Björgin með Höllu til hafnar um 40…Lesa meira

true

Reynismenn töpuðu í fyrsta leik

Reynir Hellissandi byrjaði ekki vel í fyrsta leik sínum í C-riðli fjórðu deildar sem fram fór á Ásvöllum í Hafnarfirði í gær. Liðið spilaði gegn KÁ og tapaði með fjórum mörkum gegn engu. Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn en seint í seinni hálfleiknum skoruðu heimamenn fjögur mörk og uppskáru sanngjarnan 4-0 sigur. Fyrst var…Lesa meira

true

Ólsarar töpuðu fyrir Aftureldingu

Víkingur Ólafsvík tapaði stórt á heimavelli fyrir liði Aftureldingar á föstudagskvöldið í annarri umferð Lengjudeildar karla í knattspyrnu. Lokatölur 5-1 fyrir gestina. Gestirnir byrjuðu með látum. Kristófer Óskar skoraði tvö mörk á fyrstu átta mínútunum og síðan bætti Valgeir Árni Svansson þriðja markinu við á 13. mínútu. Víkingur minnkaði muninn á 17. mínútu með marki…Lesa meira

true

Handbendi hlýtur Eyrarrósina og IceDocs hvatningarverðlaun

Eyrarrósin, viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins, var afhent í sautjánda sinn á sunnudaginn við hátíðlega athöfn á Patreksfirði. Frú Eliza Reid forsetafrú og verndari Eyrarrósarinnar veitti verðlaunin. Handbendi brúðuleikhús á Hvammstanga hlýtur viðurkenninguna að þessu sinni. Greta Clough, stofnandi og listrænn stjórnandi Handbendis, tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð 2,5 milljónir króna.…Lesa meira