Fréttir

true

Skallagrímsmenn fara áfram í undanúrslit

Skallagrímsmenn tryggðu sig áfram í undanúrslit í 1. deild karla í körfuknattleik þegar þeir unnu Álftanes í oddaleik liðanna á föstudaginn var. Staðan í einvíginu var 1-1 og þurfti sigur til að komast áfram í undanúrslit þar sem einungis þurfti að vinna tvo leiki til að tryggja sig áfram. Leikurinn fór fram á Álftanesi. Skallagrímsmenn…Lesa meira

true

Vegrún er nýtt merkingakerfi fyrir ferðamannastaði

Síðastliðinn föstudag var á Djúpalónssandi á Snæfellsnesi kynnt nýtt merkingakerfi fyrir ferðamannastaði og friðlýst svæði. Nefnist það Vegrún og er afurð samstarfshóps á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis um eflingu fagþekkingar, hönnunar og samræmingar við uppbyggingu innviða á ferðamannastöðum. Merkingarkerfið var hannað til að samræma merkingar, til einföldunar fyrir uppbyggingaraðila og til…Lesa meira

true

Úrslit í Snæfellsnesmótaröðinni

Síðastliðinn laugardag var fjórða og síðasta mótið í Snæfellingsmótaröðinni í hestaíþróttum haldið í Reiðhöllinni í Ólafsvík. Fyrri mót í röðinni voru haldin í Söðulsholti, Stykkishólmi og Grundarfirði. Góð þátttaka hefur verið á mótunum í vetur þrátt fyrir samkomutakmarkanir. Í mótaröðinni taka keppendur með sér stig úr hverju móti og fer stigafjöldi eftir því í hvaða…Lesa meira

true

Lausaganga hunda bönnuð á Akrafjalli – Verum í bandi!

Nýverið tók gildi bann á Akrafjalli við lausagöngu hunda og gildir það út október. Rétt er því að benda öllum hundum á að vera ekki að þvælast einir á fjallinu og hvað þá í stórum hópum því það getur hrætt fólk og önnur dýr. Best er að taka með sér eigandann á fjallið og hafa…Lesa meira

true

Ljósleiðaraverkefnið eitt mesta byggðaverkefni seinni ára

Landsátakinu Ísland ljóstengt lýkur á þessu ári, en síðustu styrktarsamningar Fjarskiptasjóðs við sveitarfélög um ljósleiðarauppbyggingu í dreifbýli utan markaðssvæða voru undirritaðir í lok síðasta mánaðar. Meðal annars er nú unnið að lagningu ljósleiðara víða í dreifbýli Borgarbyggðar en flest annað dreifbýli á Vesturlandi hefur nú verið tengt. Alls hafa 57 sveitarfélög í landinu hlotið styrki…Lesa meira

true

Markaregn í Akraneshöllinni

Það var sannkallað markaregn í Akraneshöllinni þegar Knattspyrnufélagið Kári tók á móti KV á föstudagskvöldið. Lauk leiknum með 4:4 jafntefli þar sem KV jafnaði leikinn á fjórðu mínútu í uppbótartíma, örfáum sekúndum fyrir leikslok. Káramenn voru mjög óheppnir að ná ekki að sigra í leiknum því í stöðunni 4:3 fengu þeir tvö upplögð færi til…Lesa meira

true

Fab Lab smiðja Vesturlands á Akranesi tekin til starfa

„Í dag uppskerum við og fögnum árangri, Fab Lab smiðja Vesturlands á Akranesi tekur til starfa, staður þar sem sköpunin yfirtekur allt,“ sagði Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi m.a. í ræðu sem hann flutti í tilefni þess að í dag var skrifað undir samstarfssamning um rekstur Fab Lab smiðju Vesturlands á Breiðinni á Akranesi.…Lesa meira

true

Ný grunnsýning opnuð á Byggðasafninu á Akranesi – frítt inn um helgina

Ný grunnsýning var opnuð í gær á Byggðasafninu í Görðum á Akranesi. Undanfarin fjögur ár hefur verið unnið að hönnun og uppsetningu sýningarinnar og er þetta fyrsta gagngera breytingin síðan safnið var fyrst opnað 1974. Þema hinnar nýju sýningar er lífið til sjós, í landi, í vinnu og í leik. Það voru Sævar Freyr Þráinsson…Lesa meira

true

Gísli Björn keppir í rallycross á sunnudaginn

Fyrsta umferð Íslandsmótsins í rallycross fer fram á Aksturssvæði AÍH í Hafnarfirði sunnudaginn 16. maí. Tímatökur hefjast kl. 10:00 en keppnin sjálf hefst kl. 13:00. Gert er ráð fyrir að úrslit verði ljós um. kl. 17:00. Verðlaunaafhending er síðan áætluð um kl. 18:00. Covid setur nokkurn svip á mótið því samkvæmt sóttvarnarreglum er einungis að…Lesa meira

true

Frábær sigur hjá Skagastúlkum gegn Augnabliki

Meistaraflokkur kvenna lagði lið Augnabliks í jöfnum og spennandi leik í blíðskaparviðri á Akranesvelli á miðvikudagskvöldið. Þetta var annar leikur ÍA í Lengjudeildinni í sumar en eftir tap fyrir Gróttu í fyrstu umferðinni var ljóst að sigur væri nauðsynlegur fyrir þær til að koma sér í efri hluta deildarinnar. Þetta byrjaði þó ekki vel því…Lesa meira