Fréttir

true

Beltin talin hafa bjargað mannslífum

Á sunnudagskvöld varð bílvelta á Hraunhreppsvegi við Einholt. Tveir voru í bílnum og ökumaður 17 ára síðan í janúar. Ökumaður segist hafa hrokkið eitthvað við, kippt í stýrið og við það misst bílinn út af veginum sem er malarvegur. Ökumaður og farþegi sem voru nokkuð skornir og lemstraðir voru fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi til…Lesa meira

true

Daði og Gagnamagnið stíga vonandi á svið annað kvöld

Daði og Gagnamagnið stíga vonandi á svið í Rotterdam annað kvöld og flytja lagið 10 Years. Fyrri undanúrslit Eurovision söngvakeppninnar voru haldin í gærkvöldi þar sem tíu lög af 16 komust áfram. Önnur tíu lög verða valin af þeim 17 lögum sem flutt verða annað kvöld á stóra sviðinu. Aðalkeppnin verður á laugardaginn og er…Lesa meira

true

Eldur í sinu milli bæjanna Grafar og Kúludalsár

Upp úr klukkan 21 í kvöld kom upp eldur í sinu neðan við þjóðveginn, milli bæjanna Grafar og Kúludalsár í Hvalfirði. Eldurinn breiddist hratt út enda jörð skraufþurr. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út, fyrst í litlu útkalli, en fljótlega allur tiltækur mannskapur. Slökkvistarf gekk vel og eru slökkviliðsmenn og lögregla nú langt komin…Lesa meira

true

Kaup Brimilshólma á Eðalfiski gengin í gegn

Fyrirtækið Brimilshólmi frá Akranesi hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Eðalfiski ehf. í Borgarnesi og tekið við rekstri félagsins. Eðalfiskur ehf. sérhæfir sig eins og kunnugt er í framleiðslu, sölu og dreifingu á ferskum, frystum, reyktum og gröfnum laxaafurðum þar sem stór hluti afurða fyrirtækisins er seldur á erlendum mörkuðum. Jafnframt eru þessar…Lesa meira

true

Dregið í Mjólkurbikarnum

Dregið var í 32-liða úrslit Mjólkurbikarsins í dag og voru Vesturlandsliðin nokkuð heppin með andstæðinga. Skagamenn fengu heimaleik gegn Fram sem leikur í Lengjudeildinni, Víkingur Ólafsvík fékk útileik og mætir liði KFS frá Vestmannaeyjum sem leikur í þriðju deildinni og Kári mætir KR-ingum í Akraneshöllinni. Leikirnir í 32-liða úrslitunum fara fram dagana 22.-24. júní næstkomandi.Lesa meira

true

Bayeux og Borgarnes

Það var góð tilfinning að koma í Landnámssetur Íslands síðastliðinn fimmtudag og finna þar aftur fullt hús af menningarþyrstum leikhúsgestum. Ekki síður var tilefnið sjálft gleðilegt, 15 ára afmæli þeirrar menningarstofnunar sem setrið er í höndum þeirra Sigríðar Margrétar Guðmundsdóttur og Kjartans Ragnarssonar. Gestir streymdu að og finna mátti einkennilega töfra í loftinu; hér var…Lesa meira

true

Gámur til bráðabirgða fyrir dósamóttöku

Á bílastæði framan við slökkvistöðina við Sólbakka í Borgarnesi var í gær komið fyrir 40 feta gámi sem ætlaður er til að rúma dósamóttöku til bráðabirgða. Verður opið fyrir móttöku dósa í nokkra klukkutíma á dag. Eins og kunnugt er var dósamóttöku Öldunnar í Brákarey lokað í febrúar vegna þess að brunavörnum er ábótavant í…Lesa meira

true

Náttúrufræði og búfræði á nýrri námsbraut í FSN og LbhÍ

Fjölbrautaskóli Snæfellinga í Grundarfirði og Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri hafa gert með sér samning um kennslu náttúrufræðibrautar með búfræðisviði til stúdentsprófs. Nemendur skólanna hafa nú möguleika á því að útskrifast með stúdentspróf frá FSN og búfræðipróf frá LbhÍ. Búfræðilínu á stúdentsbraut er ætlað að veita nemendum undirbúning fyrir háskólanám í náttúru- og búvísindum og tekur…Lesa meira

true

Sækja um að Hólmurinn verði heilsueflandi

Stykkishólmsbær hefur ákveðið að sækja um þátttöku í Heilsueflandi samfélagi. Bæjarráð samþykkti á fundi 6. maí síðastliðinn að fela æskulýðs- og íþróttanefnd að undirbúa umsókn um þátttöku og gera tillögu um skipan þverfaglegs stýrihóps.Lesa meira

true

Tap í fyrsta leik undanúrslita gegn Vestra

Skallagrímsmenn fóru fýluferð vestur á Ísafjörð í gær þegar þeir mættu Vestra í undanúrslitum 1. deildar karla í körfuknattleik. Skallagrímur hafði áður tryggt sig áfram í undanúrslitakeppnina með sigri á Álftanesi síðastliðinn föstudag og var leikur Skallagríms og Vestra sá fyrsti í einvígi liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að komast áfram í úrslitaviðureignina.…Lesa meira