Fréttir

true

Skallagrímskonur mæta ÍR í bikarnum

Dregið var í átta liða úrslit Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik í hádeginu í gær. Leikið verður í átta liða úrslitum dagana 19. og 20. janúar næstkomandi. Sigurvegarar þessara leikja komast í fjögurra liða úrslit sem fara fram í Laugardalshöll dagana 13. og 14. febrúar næstkomandi. Skallagrímskonur voru einar eftir í pottinum af Vesturlandsliðunum.…Lesa meira

true

Rannsakar sögutækni og tölvuleikjaþróun í Sílikondal

Elín Carstensdóttir tók nýlega við starfi lektors í UC Santa Cruz í Kaliforníu     Elín Carstensdóttir ólst upp á Akranesi  Hún gekk í Brekkubæjarskóla og síðan Fjölbrautaskóla Vesturlands þar sem hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut. Eftir það lá leiðin í Háskóla Reykjavíkur þar sem Elín lærði tölvunarfræði og útskrifaðist með BS gráðu vorið 2013.…Lesa meira

true

Vesturland slapp vel frá veðrinu

Aftakaveður gekk yfir landið í gær og gengur enn yfir landið í dag, en spáð hafði verið mesta óveðri síðustu ára. Víða um land varð mikið eignatjón og björgunarsveitir sinntu meira en sex hundruð útköllum í gær og í nótt. Versta veðrið er nú gengið niður hér um vestanvert landið en slæmt veður er fyrir…Lesa meira

true

„Að vera slökkviliðsstjóri er gríðarlegt ábyrgðarstarf“

– segir Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar   „Ég var skipaður í Slökkvilið Akraness af bæjaryfirvöldum árið 1974 en tók við starfi slökkviliðsstjóra í september 2005, eftir skyndilegt fráfall Guðlaugs Þórðarsonar, forvera míns í starfi,“ segir Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar, í samtali við Skessuhorn. Nú hillir undir starfslok Þráins. Hann…Lesa meira

true

Ekki var það Stekkjastaur

Lögreglunni á Vesturlandi barst tilkynning frá ökumanni rétt fyrir kl. 3:00 aðfaranótt þriðjudags. Kvaðst hann vera hræddur við að mæta ökumanni sem kom á móti honum á vespu við hringtorgið inn á Akranes. Aðilinn á vespunni stöðvaði nokkuð fjarri ökumanninum sem hringdi inn tilkynninguna og var þar með ruslapoka fullan af alls kyns jólaskrauti. Ekki…Lesa meira

true

Jólablaðið í næstu viku

Miðvikudaginn 18. desember kemur Jólablað Skessuhorns út. Það er stærsta blað ársins hjá útgáfunni og jafnframt síðasta tölublað ársins. Vegna umfangs eru lesendur hvattir til að senda efni tímanlega inn til birtingar, á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is. Þarf það að berast í síðasta lagi föstudaginn 13. desember. Sömuleiðis þurfa auglýsingapantanir að berast fyrir sama tímafrest. Netfangið er:…Lesa meira

true

Fjárhagsáætlun samþykkt í Snæfellsbæ

Fjárhagsáætlun Snæfellsbæjar fyrir árið 2020 var samþykkt á fundi sveitarstjórnar 5. desember. Þar kemur fram að útsvarsprósenta í Snæfellsbæ haldist óbreytt en breytingar vorur gerðar á álagningarprósentu fasteignagjalda. „Álagningarprósenta vatnsgjalds húseigna í A-flokki lækkar um 9% og álagningarprósenta fráveitugjalds húseigna í A-flokki lækkar um 6,25%. Þetta er gert til að koma til móts við íbúa…Lesa meira

true

Víða ófært eða lokað

Vegna aftakaveðurs sem nú gengur yfir hefur vegum í landshlutanum víða verið lokað, eða þeir ófærir. Lokað er um Kjalarnes, Bröttubrekku, Fróðárheiði og Holtavörðuheiði. Þá er þjóðvegur 1 um norðanverðan Borgarfjörð ófær vegna óveðurs. Þröskuldum hefur einnig verið lokað og þá er ófært um bæði Hjallaháls og Klettsháls. Snjóþekja eða hálka er á nánast öllum…Lesa meira

true

Club 71 afhentu Kristni Jens styrk

Árlegur jólafundur hjá félögum í Club 71 á Akranesi var nýlega haldinn, en Club71 samanstendur af Skagmönnum sem flestir eru fæddir árið 1971. Hópurinn reynir að láta gott af sér leiða með að halda menningarviðburði og safna styrkjum til góðra málefna tengdum Akranesi. Stærsti viðburðurinn sem hópurinn heldur ár hvert er Þorrablót Skagamanna sem haldið…Lesa meira

true

Svartolía bönnuð í landhelgi Íslands

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur skrifað undir reglugerð um hertar kröfur um notkun eldsneytis í íslenskri landhelgi, sem í raun reynd bannar notkun svartolíu innan hennar. Bann við notkun svartolíu í landhelgi Íslands er liður í því að framfylgja aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum. Svartolía er í raun samheiti yfir þungar og seigar olíur…Lesa meira