Fréttir

true

Dreifing á Skessuhorni gæti frestast vegna veðurs

Útlit er fyrir aftakaveður á landinu öllu í dag og fram á morgun, eins og kunnugt er og búist er við lokunum á vegum. Landið vestanvert er þar engin undantekning. Vegna veðurs er má reikna með að ekki verði hægt að sækja Skessuhorn í prentsmiðju Landsprents í kvöld eins og venja er á þriðjudögum. Verður…Lesa meira

true

Óvissustig vegna aftakaveðurs

Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissustigi í landinu vegna þess aftakaveðurs sem spáð er að gangi yfir landið í dag og þangað til í fyrramálið. Ákvörðunin er tekin í samráði við alla lögreglustjóra í landinu og í samræmi við veðurspá Veðurstofu. „Óvissustigi er lýst yfir þegar grunur vaknar um að eitthvað sé að gerast af náttúru-…Lesa meira

true

Jólamorgunstund í Brekkubæjarskóla

Löng hefð er fyrir því að nemendur í Brekkubæjarskóla á Akranesi haldi nokkrar morgunstundir á hverju skólaári og þar af er ein jólamorgunstund sem haldin var síðastliðinn föstudagsmorgun. „Líkt og venjulega sáu nemendur um öll skemmtiatriði og þau léku undir öllum söng,“ segir Hjörvar Gunnarsson, kennari í Brekkubæjarskóla. Að þessu sinni voru það nemendur í…Lesa meira

true

Bærinn selji fasteignir

Skipulags- og umhverfisráð Akraneskaupstaðar leggur til að bæjarráð hefji undirbúning á sölu fimm fasteigna í eigu sveitarfélagsins; Faxabraut 10, Merkigerði 7, Merkigerði 12, Suðurgötu 57 og Suðurgötu 108. Jafnan er Suðurgata 57 kölluð gamla Landsbankahúsið við Akratorg, en þar er ýmis starfsemi í dag. Við Merkigerði 7 stendur Kirkjuhvoll, sem áður var prestsetur á Akranesi…Lesa meira

true

Dagskrá þar sem Reykholtsverkefnið var kvatt

Þriðjudaginn 26. nóvember síðastliðinn bauð Snorrastofa í Reykholti upp á dagskrá, sem markaði lok hins þverfaglega rannsóknarverkefnis, Reykholtsverkefnisins, sem hófst fyrir tuttugu árum síðan. Yfirskriftin var „Reykholtsverkefnið kvatt“ og hófst dagskráin með fyrirlestri Guðrúnar Sveinbjarnardóttur fornleifafræðings þar sem hún kynnti nýútkomna bók sína; Reykholt í ljósi fornleifanna. Í kjölfarið voru pallborðsumræður um árangur verkefnisins og…Lesa meira

true

Kom fimm hvolpum til bjargar og ætlar að flytja þá heim til Íslands

Skagakonan Bjarney Hinriksdóttir hélt til Krítar í lok júní síðastliðins þar sem hún ætlaði að verja sumrinu. Dvölin varð þó lengri þegar Bjarney fékk upp í hendurnar fimm litla móðurlausa hvolpa sem hún þurfti að hugsa um. Par á ferðalagi fann hvolpana við hraðbraut og tók þá upp á hótel. Þegar parið þurfti svo að…Lesa meira

true

Búist við lokunum á þriðjudag og miðvikudag

Vegna slæms veðurs sem spáð er á þriðjudag og miðvikudag má búast við að vegir lokist eða verði ófærir, á meðan veðrið gengur yfir. Á vef Vegagerðarinnar segir að búast megi við lokunum á Vesturlandsvegi um Kjalarnes frá 13:00 á þriðjudag til 13:00 á miðvikudag og á Vesturlandsvegi um Hafnarfjall frá 14:00 á þriðjudaginn til…Lesa meira

true

Með takmarkaðan þátttökurétt á næsta ári

Valdís Þóra Jónsdóttir hafnaði í 50. sæti á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem fram fór í Kenýa um síðustu helgi. Eftir að hafa lyft sér upp í 27. sæti mótsins með frábærum þriðja keppnishring lauk hún keppni með sveiflukenndum hring í gær. Eftir níu holur var Valdís á sex höggum yfir pari, eftir að hafa…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun á morgun

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir mest allt landið á morgun. Spáð er norðaustan og síðan norðan rok og jafnvel ofsaveður 23-30 m/s við Breiðafjörð frá hádegi á morgun og fram á miðvikudag. Á Faxaflóasvæðinu er útlit fyrir norðan rok 20-28 m/s. Líkur eru á snjókomu og skafrenningi með vindinum og skyggni og færð…Lesa meira

true

Borgnesingar burstaðir

Skallagrímsmenn máttu játa sig sigraða gegn Breiðabliki, 131-89, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á sunnudagskvöld. Leikið var í Kópavogi. Heimamenn höfðu undirtökin frá fyrstu mínútu. Þeir voru öflugri í upphafsfjórðungnum og leiddu með tíu stigum að honum loknum, 32-22. Þeir héldu síðan áfram að auka forskot sitt jafnt og þétt í…Lesa meira