Fréttir

true

Misstu af lestinni eftir hléið

Snæfellingar biðu lægri hlut gegn Selfossi þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestirnir undirtökunum í þriðja leikhluta og sigruðu að lokum með 104 stigum gegn 81. Snæfellingar leiddu í upphafi leiks áður en gestirnir tóku góða rispu og komust átta stigum…Lesa meira

true

Jöfnun dreifikostnaðar raforku er réttlætismál

Sérstök umræða um jöfnun dreifikostnaðar á raforku fór nýverið fram á Alþingi. Málshefjandi var Halla Signý Kristjánsdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, en til andsvara var Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ferðamála-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra. Halla Signý benti á að landsmenn sitja ekki við sama borð þegar kemur að flutningi raforku til síns heima og að núverandi jöfnunargjald sé…Lesa meira

true

Héldu fund númer 3427 á ritstjórn Skessuhorns

Skessuhorn fær jafnan góða gesti í heimsókn á ritstjórn. Nýverið héldu félagar í Rótarýklúbbi Akraness kvöldfund sinn þar. Mættu með nesti en fengu að því loknu kynningu á starfsemi Skessuhorns og svör við ýmsum fyrirspurnum um rekstrarumhverfi fjölmiðla. Fram kom hjá Jóhannesi Simonsen klúbbmeistara að téður fundur væri sá númer 3427 frá upphafi. Mættir voru…Lesa meira

true

Bifreiðaþjónusta Ægis er gamalgróið fjölskyldufyrirtæki í Rifi

Við Hafnargötu 12 í Rifi er Bifreiðaverkstæði Ægis slf. til húsa. Verkstæðið er rekið sem fjölskyldufyrirtæki og hefur verið starfrækt síðan 1. apríl 1986 af hjóninunum Ægi Ingvarssyni og Ástu Dóru Valgeirsdóttur, en nú er sonur þeirra Ingvar Valgeir að mestu tekinn við rekstrinum. Ástæðuna fyrir því að opnað var fyrsta apríl segir Ingvar vera…Lesa meira

true

Skessuhorn til jóla

Útgáfa Skessuhorns verður með hefðbundnu sniði til jóla, miðvikudagana 11. og 18. desember. Árlegt Jólablað er það síðara og að venju efnismeira en flest önnur blöð ársins. Vegna umfangs og stærðar þarf efni og pantanir auglýsinga í jólablað að berast í hús í síðasta lagi föstudaginn 13. desember. Fyrsta blað nýs árs kemur síðan út…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í bikarnum

Snæfellskonur eru úr leik í Geysisbikar kvenna í körfuknattleik, eftir tap gegn ríkjandi bikarmeisturum Vals. Leik lauk í Stykkishólmi núna fyrir skemmstu með sjö stiga sigri Vals, 62-69. Snæfellskonur voru öflugri í upphafsfjórðungnum  og komust í 18-8 seint í leikhlutanum. Þá tóku Valskonur við sér og náðu að minnka muninn niður í eitt stig áður…Lesa meira

true

Lyfti sér upp um 30 sæti

Valdís Þóra Jónsdóttir lék þriðja hringinn á Magical Kenya Ladies Open mótinu á Evrópumótaröð kvenna í dag. Fyrir hringinn var hún á sex höggum yfir pari og sat í 57. mótsins. Hún lék afar vel í dag, fór þriðja hringinn á þremur undir pari og lyfti sér upp um hvorki fleiri né færri en 30…Lesa meira

true

Steinunn Inga stýrir FVA

Steinunn Inga Óttarsdóttir hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranessi. Greint var frá þessu á föstudag. Steinunn er skipuð af Svandísi Svavarsdóttur, settum mennta- og menningarmálaráðherra í málinu. Skipunartíminn er fimm ár, frá og með 1. janúar næstkomandi. Fjórar umsóknir bárust um embættið þegar það var auglýst.   Steinunn Inga er starfandi…Lesa meira

true

Fræddust um eldvarnir og starf slökkviliðsins

Eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna og slökkviliða landsins stendur nú yfir. Sem fyrr fræða slökkviliðsmenn börn í 3. bekk víða um land um um eldvarnir og starf slökkviliðanna. Á fimmtudagsmorgun í liðinni viku mætti vel á sjöunda tug nemenda í 3. bekk Grundaskóla í heimsókn á slökkviliðsstöðina á Akranesi. Þráinn Ólafsson, slökkviliðsstjóri Slökkviliðs Akraness og…Lesa meira

true

Jólamarkaður í Nesi á morgun

Á morgun, laugardaginn 7. desember klukkan 13-17 verður árlegur jólamarkaður haldinn í gömlu hlöðunni í Nesi í Reykholtsdal. Þar verður hægt að gera góð kaup á ýmsum varningi svo sem sultum, hunangi, kjötmeti, reyktum silungi, ís beint frá býli og fjölmörgu fleiru. Prjónavara verður seld, uppstoppaðir munir og gærur. Vöfflur og heitt kakó. Húsráðendur bjóða…Lesa meira