Fréttir

true

Góður sigur Snæfells

Snæfell vann góðan sigur á Grindavík, 87-75, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var í Stykkishólmi. Leikurinn var jafn og spennandi framan af. Snæfellskonur leiddu með þremur stigum eftir upphafsfjórðunginn, 23-20. En gestirnir voru ekki langt undan og snemma í öðrum leikhluta náðu þeir forystunni. Eftir að liðin hentu…Lesa meira

true

Nýjar bækur kynntar og Aðventa lesin af sjálfboðaliðum

Í dag, fimmtudaginn 5. desember, verður opin aðventudagskrá í Safnahúsinu í Borgarnesi, þar sem fólki er boðið að koma við og hlýða á bóklestur. Dagskráin hefst kl. 17.00 með því að tveir höfundar lesa upp úr nýjum bókum sínum. Það eru þau Una Margrét Jónsdóttir sem les úr bók sinni Gullöld revíunnar og Þorbergur Þórsson…Lesa meira

true

Jólatónleikar Hljómlistarfélag Borgarfjarðar

Tvennir Jólatónleikar Hljómlistarfélags Borgarfjarðar verða haldnir í Hjálmakletti í Borgarnesi fimmtudaginn 12. desember nk. Hefjast þeir kl. 17:00 og 20:30. Þar koma fram meðlimir hljómlistarfélagsins, ungir og upprennandi tónlistarmenn í Borgarfirði, og hinn geðþekki Jógvan Hansen. „Tónleikarnir eru ekki reknir í hagnaðarskyni og allur rekstrarafgangur fer í sjóð sem verður notaður til þess að styðja…Lesa meira

true

Úrval eins verðmætasta safns íslenskra hestaljósmynda í nýrri bók

Út er komin bókin Fákar og fólk – svipmyndir úr hestamennsku í 30 ár, eftir Eirík Jónsson ljósmyndara. Eiríkur hóf að mynda hesta fyrir alvöru sumarið 1979 og varð fljótt iðinn við myndatökur á hestamótum. Tók hann þá einkum ljósmyndir fyrir greinar sem hann skrifaði fyrir Vísi og síðar DV, en að auki ritaði hann…Lesa meira

true

Vill selja Brauðgerð Ólafsvíkur – er einn eftir í fyrirtækinu

Jón Þór Lúðvíksson bakarameistari í Ólafsvík, sem rekið hefur Brauðgerð Ólafsvíkur undanfarinn áratug en starfað þar í fjóra áratugi. Hann hefur nú ákveðið að selja brauðgerðina vegna erfiðs rekstrar. Fyrirtækið hvílir á gömlum merg, var stofnað árið 1951. Í samtali við Skessuhorn segir Jón Þór að hann hafi nýlega sagt öllu starfsfólki sínu upp og…Lesa meira

true

Ljúf laugardagsstemning í Guðlaugu í desember

Akraneskaupstaður auglýsir í dag skemmtilega dagskrá í Guðlaugu við Langasand alla laugardaga til jóla. Boðið verður upp á ýmsar uppákomur; fyrirlestra, heitt kakó, jóga, ljúfa jólatóna og margt fleira, sbr. dagskrá hér að neðan: Laugardagurinn 7. desember Opið frá kl. 10-18 Kl. 11:00 Komdu í sjósund! Sjóbaðsfélagið tekur vel á móti þér. Tilvalið fyrir þá sem…Lesa meira

true

Kúabændur samþykktu endurskoðun samnings

Mikill meirihluti kúabænda, eða 76% þeirra sem kusu um samkomulag bænda og stjórnvalda um endurskoðun nautgripasamnings, samþykktu samkomulagið. Ríflega 22% bænda höfnuðu því. „Atkvæðagreiðslu meðal kúabænda um endurskoðun nautgripasamnings lauk í hádeginu í dag, miðvikudaginn 4. desember. „Já“ sögðu 447 eða 76%. „Nei“ sögðu 132 eða 22,5%. Níu tóku ekki afstöðu. Ef aðeins eru teknir…Lesa meira

true

Fullveldishátíð í Heiðarskóla

Fullveldishátíð var haldin í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit á þriðjudaginn í síðustu viku en hátíðin er haldin ár hvert. Þar stigu fyrst á svið nemendur í 1. og 2. bekk og sýndu leikrit um Hans og Grétu og réttindi barna. Að því loku fengu þau til liðs við sig elstu börnin úr leikskólanum Skýjaborg og saman…Lesa meira

true

Ungir Vestlendingar æfa með landsliðunum

Landsliðsþjálfarar yngri landsliða Íslands í körfuknattleik hafa valið sína fyrstu æfingahópa fyrir jólaæfingarnar í ár. Um er að ræða æfingahópa U15, U16 og U18 ára lið drengja og stúlkna sem munu æfa milli jóla og nýárs. Leikmennirnir eru alls 148 talsins og koma frá 21 félagi, auk fjögurra sem leika með erlendum liðum. Vesturlandsliðin eiga…Lesa meira

true

Hryllingsbúðinni lokað

Skagaleikflokkurinn sýndi Litlu hryllingsbúðina í síðasta sinn í gærkvöldi. Leikstjóri var Valgeir Skagfjörð, en verkið er eftir þá Ashman og Alan Menken, í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar og Magnúsar Þórs Jónssonar. Frumsýnt var föstudaginn 15. nóvember og alls var Litla hryllingsbúðin sýnd átta sinnum í Bíóhöllinni á Akranesi. Sýningin hlaut afar góða dóma og fékk…Lesa meira