Fréttir

true

Ferðaþjónustan Húsafelli hlaut Nýsköpunarverðlaun SSV 2019

Undanfarin þrjú ár hafa nýsköpunarverðlaun SSV verið veitt fyrirtækjum sem þykja hafa komið fram með áhugaverða nýjung á árinu. Þessi verðlaun voru fyrst veitt árið 2016 og þá varð Cave, fyrirtækið sem rekur ferðaþjónustu við hellinn Víðgelmi í Borgarfirði, fyrir valinu. Árið 2017 var fyrirtækið Asco Harvester í Stykkishólmi valið, en fyrirtækið hannaði og smíðaði…Lesa meira

true

Sveitamennskan er styrkleiki Langaholts

Langaholt er eitt af þessum stóru nöfnum í ferðaþjónustunni á Vesturlandi. Langaholt er veitingastaður og hótel á bænum Görðum í Staðarsveit og þar bjuggu þau Svava Guðmundsdóttir og Símon Sigurmonsson með kýr og kindur framan af. Árið 1978 söðla þau um og færðu sig yfir í ferðaþjónustu og voru þau hjónin eigendur hlutabréfs nr. 2…Lesa meira

true

Þróa verkefnið Borðað með bónda

Bjarteyjarsandur er fjölskyldufyrirtæki í Hvalfirði þar sem stunduð er fjölþætt starfsemi m.a. sauðfjárrækt, verktakastarfsemi, ferðaþjónusta og sitthvað fleira. Bjarteyjarsandur hefur verið í ábúð og eigu sömu fjölskyldu síðan 1887 og því má segja að grunnurinn sé nokkuð traustur og starfsemin í dag byggi á gömlum merg. Í dag búa þrjár kynslóðir saman á torfunni, tíu…Lesa meira

true

Gervigreindur talgreinir skráir ræður alþingismanna

Ræður alþingismanna á Alþingi Íslendinga eru nú skráðar sjálfkrafa af gervigreindum talgreini. Talgreinirinn skráir um tíu mínútur af ræðum á einungis þremur og hálfri mínútu, hann hefur allt að 90% rétt eftir og auðveldar til muna skráningu og birtingu á ræðum alþingismanna. Talgreinir Alþingis hefur þegar skráð niður um 640 klukkustundir af ræðum þingmanna. Þetta…Lesa meira

true

Hreinlæti er lykillinn að farsælli matarframleiðslu

Þegar fólk hyggst hefja framleiðslu á matvælum er ýmislegt sem þarf að hafa í huga. Fyrst og fremst er mikilvægt að vera vel upplýstur um þær reglur sem gilda um framleiðslu matvæla. Af því tilefni settist blaðamaður Skessuhorns niður með Helga Helgasyni, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Vesturlands, og spurði hann hvað það væri sem fólk þyrft að…Lesa meira

true

Á ferð og flugi með ömmu aftur fáanleg og nú á ensku líka

Í júní kom út í ölítið breyttri útgáfu barnabókin Á ferð og flugi með ömmu eftir Hallberu Fríði Jóhannesdóttur með myndum eftir Bjarna Þór Bjarnason. Bókin kom einnig út á ensku í þýðingu Hrannar Ríkharðsdóttur og ber titilinn Granny and her little one exploring Akranes. Bókin er innbundin og prentuð í Prentmeti, en gefin út…Lesa meira

true

Sextíu samningum þinglýst í október

Alls var 60 kaupsamningum vegna fasteignaviðskipta þinglýst á Vesturlandi í októbermánuði. Þar af voru 19 samningar um eignir í fjölbýli, 25 samningar um eignir í sérbýli og 16 um annars konar eignir. Á vef Þjóðskrár kemur fram að heildarvelta þinglýstra kaupsamninga í landshlutanum í október var 2.023 milljónir króna og meðaupphæð á samning var 33,7…Lesa meira

true

Gunnar J. Straumland gefur út bókina Höfuðstaf

Út er komin bókin Höfuðstafur, háttbundin kvæði, eftir Gunnar J. Straumland. Gunnar er kennari, myndlistarmaður og kvæðamaður. Hann fæddist á Húsavík, er af þingeyskum ættum í móðurætt en föðurætt hans er úr Skáleyjum á Breiðafirði. Hann er nú búsettur í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit ásamt eiginkonu sinni Önnu Guðrúnu Torfadóttur grafíklistakonu. Frá unglingsárum hefur Gunnar ort,…Lesa meira

true

Litla Hryllingsbúðin frumsýnd í kvöld

Komið er að tímamótum hjá Skagaleikflokknum, því í kvöld verður söngleikurinn Litla Hryllingsbúðin, eftir þá Howard Ashman og Alan Menken í þýðingu Gísla Rúnars Jónssonar, frumsýndur í Bíóhöllinni á Akranesi. Leikstjóri er Valgeir Skagfjörð. Um fimmtíu manns hafa undanfarnar átta vikur æft og unnið að uppfærslu á sýningunni; leikarar, hljómsveitarfólk, sviðsfólk, búningahönnuðir og allir aðrir.…Lesa meira

true

Francicso Garcia ráðinn yfirþjálfari yngri flokka

Körfuknattleiksdeild Skallagríms hefur samið við Spánverjann Francisco Garcia um að taka að sér yfirþjálfun yngri flokka hjá félaginu. Francisco mun halda utan um allt faglegt starf innan deildarinnar, bæði hvað varðar þróun leikmanna sem og þjálfara, ásamt því að sinna einstaklingsþjálfun og þjálfa yngri flokka Skallagríms. Samið var til Francisco til þriggja ára. Francisco á…Lesa meira