Fréttir

true

Stórgrýti sótt til stækkunar hafnarinnar

Íbúar í Grundarfirði hafa undanfarna daga fundið smá hristing annað slagið. Ástæðan er sú að starfsmenn Borgarverks eru á fullu í námunni við Gröf að vinna stórgrýti fyrir framkvæmdirnar í Grundarfjarðarhöfn. Lenging Norðurgarðs mun stórbæta aðstöðu í höfninni.Lesa meira

true

Skúrinn opnaður á nýjum stað

Veitingastaðurinn Skúrinn var opnaður á nýjum stað við Aðalgötu 25 í Stykkishólmi mánudaginn 4. nóvember síðastliðinn. Eftir að rekstri verslunarinnar Bensó var hætt um miðjan september ákváðu eigendur Skúrsins að flytja alla starfsemi þangað, en hún hafði fram að þeim tíma verið á tveimur stöðum í bænum. „Við erum ánægð með flutninginn,“ segir Arnþór Pálsson,…Lesa meira

true

Stefna á að Snæfellsnes verði þekktur áfangastaður fyrir sælkera

Svæðisgarðurinn Snæfellsnes er að fara af stað með nýtt verkefni sem nefnist „Sælkeraferðir á Snæfellsnesi.“ Hefur það hlotið styrk frá Matarauði Íslands. Verkefnið er nú statt á þeim stað að það hefur farið í gegnum undirbúnings- og kynningarfasa og segir Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðs Snæfellsness, að matarklasi um verkefnið fari formlega af stað nú í…Lesa meira

true

Ferðaþjónusta hefur bætt lífsgæði og lífskjör

Í dag komu út skýrslur með niðurstöðum kannana á viðhorfum heimafólks til ferðamanna og ferðaþjónustu á fjórum áfangastöðum, Reykjanesbæ, Stykkishólmi, Húsavík og Egilsstöðum. Kannaðar voru bæði sértækar og staðbundnar áskoranir sem fylgja uppbyggingu ferðaþjónustu og móttöku ferðamanna á þessum stöðum. Niðurstöður staðfesta að ferðamennskan hefur mikil áhrif á samfélag heimamanna en áhrifin eru nátengd staðbundnum…Lesa meira

true

Opnuðu barinn Skipperinn í Stykkishólmi

Hjónin Hreiðar Már Jóhannesson og Hulda Hildibrandsdóttir hafa opnað barinn Skipperinn að Þvervegi 2 í Stykkishólmi. Barinn var opnaður á laugardaginn, 9. nóvember síðastliðinn. Hreiðar segir að um algera skyndiákvörðun hafi verið að ræða hjá þeim hjónum. „Það var annað hvort að ég færi aftur á sjóinn eða myndi búa mér til heilsársvinnu,“ segir Hreiðar…Lesa meira

true

Vörukynning og matarsmakk í Ljómalind á föstudaginn

Í versluninni Ljómalind í Borgarnesi verður opið hús næstkomandi föstudag og verða flestir matvælaframleiðendur í versluninni með kynningu á sínum matvælum milli klukkan 16 og 18. Boðið verður upp á að smakka ýmis fjölbreytt matvæli auk þess sem hægt verður að spjalla við framleiðendurnar og fá frekari upplýsingar um matinn. „Það komast ekki alveg allir…Lesa meira

true

Vínbúðin flutt í nýtt húsnæði á Akranesi

Klukkan 11 í morgun var Vínbúðin á Akranesi opnuð í nýju húsnæði að Kalmansvöllum 1 og hefur gömlu búðinni við Þjóðbraut 13 verið lokað. Nýja verslunin er um 450 fermetrar að stærð og er öll aðstaða í henni betri en á fyrri stað. Meðal annars er stór kælir þannig að viðskiptavinir geta nú nálgast kaldan…Lesa meira

true

Mæðrastyrksnefnd fékk ágóða af skopmyndasölu

Á opnu húsi hjá Skessuhorni 1. nóvember síðastliðinn voru seldar frummyndir skopmynda Bjarna Þórs, sem birst hafa í blaðinu undanfarin níu ár. Salan gekk prýðilega og rennur ágóðinn, 72.500 krónur, óskiptur til Mæðrastyrksnefndar Akraness. María Ólafsdóttir formaður Mæðrastyrksnefndar tekur hér við peningnum úr hendi Hrafnhildar Harðardóttur auglýsingasala á Skessuhorni. Athygli er vakin á því að…Lesa meira

true

Misstu af lestinni eftir hléið

Skallagrímur tók á móti Hamri í 1. deild karla í körfuknattleik á miðvikudagskvöld. Eftir jafnan fyrri hálfleik náðu gestirnir úr Hveragerði yfirhöndinni í þeim síðari og sigruðu að lokum með 15 stigum, 89-104. Liðin skiptust á að leiða framan af fyrsta leikhluta. Undir lok hans náðu Hamarsmenn smá rispu og leiddu með fjórum stigum að…Lesa meira

true

Amerískur fótbolti á Akranesi á laugardaginn

Leikinn verður amerískur fótbolti í Akraneshöll á laugardag, þegar Einherjar mæta þýska liðinu Pforzheim Wilddogs. Er þetta í annað skipti sem amerískur fótboltaleikur fer fram á Akranesi, en Einherjar sigruðu sænska liðið Tyreso Royal Crowns í Akraneshöllinni í nóvember í fyrra. Amerískur fótbolti nýtur nokkuð vaxandi vinsælda um heim allan og stöðugt fleiri utan Bandaríkjanna…Lesa meira