Fréttir

true

Borgnesingar rændir sigrinum

Skallagrímur tapaði naumlega gegn Hetti, 92-89, í æsispennandi leik í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Leikið var austur á Egilsstöðum. Heimamenn byrjuðu leikinn með látum og leiddu með tíu stigum eftir fjögurra mínútna leik. Þá tóku Skallagrímsmenn við sér, minnkuðu muninn snarlega og voru aðeins þremur stigum á eftir þegar upphafsfjórðungurinn var úti,…Lesa meira

true

Sóttu greni í Réttarskóg

Konur úr Kvenfélagi Ólafsvíkur, ásamt félögum úr Skógræktarfélagi Ólafsvíkur og aðstoðarmönnum, hittust í Réttarskógi síðastliðinn sunnudag. Tilgangurinn var að sækja greni og birkigreinar. Greinarnar ætla kvenfélagskonur að nýta til að búa til leiðisgreinar sem þær verða með til sölu í Jólaþorpi Snæfellsbæjar í aðdraganda jóla. Var þetta hin skemmtilegasti hittungur og voru allir sem tóku…Lesa meira

true

Fresta útsendingum frá fundum bæjarstjórnar

Fyrirhugað var að hefja upptökur á fundum bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar, til birtingar á heimasíðu sveitarfélagsins, 1. nóvember síðastliðinn. Sátt er um málið meðal allra lista, sem er í samræmi við stefnu þeirra allra um opnari, skilvirkari og gagnsærri stjórnsýslu, að því er fram kemur í fundargerð frá síðasta fundi bæjarstjórnar. Bæjarráð hafði áður fjallað um málið…Lesa meira

true

Lions bauð upp á blóðsykursmælingu

Lionsklúbbur Grundarfjarðar bauð Grundfirðingum og nærsveitungum uppá blóðsykursmælingu í verslun Kjörbúðarinnar fimmtudaginn 14. nóvember síðastliðinn. Lionsklúbburinn var í samstarfi með sjúkraflutningamönnum HVE sem framkvæmdu blóðsykurmælinguna sem var vel sótt. Yfir eitthundrað manns létu mæla blóðsykurinn á þessum tveimur klukkustundum sem mælingin stóð yfir. 14. nóvember ár hvert er alþjóðlegur sykursýkisvarnadagur Lionshreyfingarinnar og því boðið uppá…Lesa meira

true

Haldið var upp á fimmtíu ára afmæli SSV

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi voru stofnuð í árslok 1969. Síðastliðinn föstudag var haldið upp á þau tímamót með ráðstefnu í Hjálmakletti í Borgarnesi. Eggert Kjartansson formaður stjórnar SSV setti ráðstefnuna og fór í nokkrum orðum yfir söguna frá upphafi og starfsemi samtakanna í dag. Felst hún m.a. í ráðgjöf við frumkvöðla og fyrirtæki, stefnumótun, uppbyggingaráætlun…Lesa meira

true

Eldur kom upp í rafmagnstöflu í sumarhúsi

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var á sjöunda tímanum í kvöld kallað út vegna elds í sumarhúsi í Ölveri við Hafnarfjall. Að sögn Þráins Ólafssonar slökkviliðsstjóra gekk slökkvistarf hratt og vel. Fólk sem dvaldi í húsinu varð vart við snark frá eldi við rafmagnstöflu í húsinu og gat hringt á Neyðarlínuna. Tjón var að sögn Þráins…Lesa meira

true

Borgarbyggð sýknuð af kröfu um bótaskyldu

Borgarbyggð var í Landsrétti á föstudag sýknuð af kröfu um bótaskyldu Húsa og lóða ehf. Þar með staðfesti Landsréttur dóm Héraðsdóms Vesturlands frá því í febrúar síðastliðnum. Fyrirtækið krafðist þess að bótaskylda yrði viðurkennd vegna tjóns sem hlaust af byggingarleyfi sem gefið var út 16. september 2016, fyrir nýbyggingum við Borgarbraut 57 og 59 og…Lesa meira

true

Hvasst við fjöll í dag

Í dag er spáð suðaustan 15-23 m/s sunnan- og suðvestanlands samhliða rigningu á köflum. Hvassast verður við ströndina sunnanlands, en þó má einnig reikna með öflugum vindhviðum við fjöll, til dæmis á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Hiti verður frá núll til sex gráður og gæti myndast talsverð hálka um tíma þegar ísa leysir.Lesa meira

true

Gestirnir höfðu sigur

Skagamenn máttu sætta sig við tap gegn Val B, þegar liðin mættust í 2. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikið var á Akranesi. Leikurinn var hraður og mikið skorað, eins og svo oft áður í vetur í leikjum Skagamanna. Þegar lokaflautan gall höfðu gestirnir skorað skorað 116 stig gegn 97 stigum ÍA og höfðu…Lesa meira

true

Tap gegn Álftnesingum

Snæfell beið lægri hlut gegn Álftanesi, 70-77, þegar liðin mættust í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöld. Leikurinn fór fram í Stykkishólmi. Fyrsti leikhluti var kaflaskiptur. Gestirnir skoruðu fyrstu sex stig leiksins áður en Snæfellingar komust í 7-6. Þá tóku Álftnesingar við sér, komust aftur sex stigum yfir en Snæfell minnkaði muninn í eitt…Lesa meira