Fréttir

true

Þrjár Ingibjargir renna í eina

Ingibjargir verða í Stykkishólmskirkju með tónleika næstkomandi sunnudag, 6. október, klukkan 16:00. Það eru þær Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Ingibjörg Ýr Skarphéðinsdóttir sem ætla að láta „þrjár Ingibjargir renna saman í eina konu, einn hugarheim, einn hljóm,“ eins og segir í tilkynningu. Þær ætla þær að flytja lög við ljóð eftir Ingibjörgu Haraldsdóttur, sem er…Lesa meira

true

Neysluvatn Grábrókarveitu ekki talið e-coli smitað

Ekki er lengur þörf á að neytendur vatns úr vatnsbóli Veitna í Grábrókarhrauni í Norðurárdal sjóði vatnið. „Endurtekin sýnataka leiddi í ljós að ekki er e-coli mengun í neysluvatninu. Heilbrigðiseftirlit Vesturlands telur því ekki lengur þörf á að sjóða vatnið,” segir í tilkynningu. Veitusvæðið sem vatnsbólið í Grábrókarhrauni þjónar nær til Borgarness, Bifrastar og Varmalands…Lesa meira

true

Þróttur átti lægsta boð í sjóvörn við Breiðina

Vegagerðin óskaði nýverið eftir tilboðum í hleðslu 180 metra sjóvarnar við Breiðina á Akranesi. Tilboð voru opnuð fimmtudaginn 26. september. Helstu magntölur eru útlögn grjóts og sprengds kjarna um 2.000 m3 og upptekt og endurröðun grjóts um 1.000 m3 og skal verkinu vera lokið 1. mars 2020. Kostnaðaráætlun í verkið hljóðaði upp á um 17,5…Lesa meira

true

Hvessir síðar í dag

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris seinni partinn í dag og í kvöld fyrir sunnanvert landið, miðhálendið og Faxaflóasvæðið. „Suðaustan hvassviðri eða stormur, 18-25 m/s, hvassast sunnantil,“ við Faxaflóa. „Búast má við mjög snörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið yfir 35 m/s, einkum á Kjalarnesi og við Hafnarfjall. Varasamar aðstæður fyrir ökutæki, einkum fyrir…Lesa meira

true

Samæfing björgunarsveita verður á Snæfellsnesi á morgun

Á morgun, laugardaginn 5. október verður mikið um að vera í Snæfellsbæ þegar landsæfing Slysavarnafélagsins Landsbjargar fer þar fram. Undirbúningur að æfingunni og framkvæmd hennar er í höndum hóps á svæði fimm hjá Landsbjörgu og hafa fulltrúar björgunarsveitanna á Snæfellsnesi og í Dölum borið hita og þunga verkefnisins. Gert er ráð fyrir um 300 þátttakendum…Lesa meira

true

Íbúafundur í Stykkishólmi á þriðjudag

Boðað hefur verið til íbúafundar með Acadian Seaplants í Stykkishólmi um fyrirhugaða rannsóknar-, öflunar- og þörungaverksmiðju þar í bæ. Fundurinn verður haldinn í Amtsbókasafninu þriðjudaginn 8. október næstkomandi og hefst kl. 18:00. Stykkishólmsbær á nú í viðræðum við kanadíska fyrirtækið um framvindu í þessum málum. Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri mun setja fundinn en síðan heldur…Lesa meira

true

Nemendur unglingastigs GBN hönnuðu draumalandið

Vegna framkvæmda sem staðið hafa yfir við Grunnskólann í Borgarnesi var ákveðið að upphaf skólaárs unglingastigs færi fram í húsi Menntaskóla Borgarfjarðar. Hefðbundið skólastarf var því brotið upp fyrstu fjórar vikurnar í haust. Farið var af stað með stórt þemaverkefni sem nefnist Draumalandið, en það samþættir námsgreinar sem kenndar eru. Nemendum 8. til 10. bekkjar…Lesa meira

true

Kór ML syngur í Reykholtskirkju 12. október

Kór Menntaskólans að Laugarvatni hyggst bregða undir sig betri fætinum og ferðast í Borgarfjörð helgina 11.-13. október. Verður kórinn í æfingabúðum á Varmalandi en mun koma fram á tónleikum í Reykholtskirkju laugardaginn 12. október klukkan 15. Kór ML hefur notið mikillar athygli undanfarin ár og hlaut hann og stjórnandi hans Eyrún Jónasdóttir snemma á þessu…Lesa meira

true

Grunur um E-coli smit í Grábrókarveitu

„Óstaðfestur grunur um e-coli mengun er í vatni frá vatnsbóli í Grábrókarhrauni,“ er fyrirsögn á frétt sem Veitur birta á heimasíðu sinni í dag. Úr vatnsbólinu í Grábrókarhrauni kemur neysluvatn sem þjónar Borgarnesi, Bifröst, Varmalandi og fjölda sumarhúsa og lögbýla á þessari leið. Ekki er vitað með vissu hvort um mengun sé að ræða og…Lesa meira

true

Nálgunarbann gegn ólögráða pilti

Landsréttur staðfesti 1. október sl. úrskurð Héraðsdóms Vesturlands frá 23. september, sem hafði dæmt mann í þriggja mánaða nálgunarbann gegn ólögráða pilti. Er manninum óheimilt að koma að heimili piltsins, skóla og vinnustað, auk þess sem honum er bannað að nálgast piltinn eða veita eftirför, hafa samband við piltinn í síma, senda orðsendingar eða bréf,…Lesa meira