Fréttir

true

Garðar leggur skóna á hilluna

Knattspyrnumaðurinn Garðar Bergmann Gunnlaugsson hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna. Þetta staðfestir Garðar í samtali við Skessuhorn. „Ég er að flytjast búferlum til Ítalíu og með tilliti til meiðslasögu minnar til síðustu tveggja ára þá þótti mér núna vera hentugur tími til að hengja skóna upp,“ segir hann og bætir því við að hann…Lesa meira

true

Snæfellskonur burstuðu Blika

Snæfell vann stórsigur á Breiðabliki, 76-48, þegar liðin mættust í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykkishólmi í gærkvöldi. Snæfellskonur voru sterkari allan leikinn og það var ekki nema í tvisvar í fyrri hálfleik að gestirnir sýndu einhverja viðspyrnu. Snæfell skoraði fyrstu sjö stigin en gestirnir minnkuðu síðan muninn í 10-7…Lesa meira

true

Naumt tap í fyrsta leik

Skallagrímskonur máttu sætta sig við sex stiga tap gegn Haukum, 66-72, eftir jafnan og spennandi baráttuleik í fyrstu umferð Domino‘s deildar kvenna. Leikurinn fór fram í Borgarnesi í gærkvöldi. Skallagrímskonur höfðu yfirhöndina í upphafi leiks, leiddu mest með tíu stigum í fyrsta leikhluta en höfðu fimm stiga forskot að honum loknum, 22-17. Gestirnir komust betur…Lesa meira

true

Hafnaði utan vegar eftir ofsaakstur og eftirför lögreglu

Í gær veitti Lögreglan á Vesturlandi ökumanni á stolnum bíl eftirför frá Akrafjalli að þjóðveginum við afleggjarann að Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Ökumaðurinn missti þar stjórn á bifreiðinni, ók út af og við það valt bifreiðin og endaði á hliðinni. Lögreglan greinir frá þessu á Facebook síðu sinni og segir að skömmu áður hafi verið tilkynnt…Lesa meira

true

Meta verulegan fjárhagslegan ávinning af fækkun sveitarfélaga

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur látið greina möguleg hagræn áhrif þess að lögfesta ákvæði um lágmarksíbúafjölda sveitarfélaga við töluna eitt þúsund. „Tvær aðferðir voru notaðar við greininguna sem gáfu til kynna að svigrúm til hagræðingar við að lögfesta ákvæðið getur orðið allt að 3,6-5 milljarðar króna á ári,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu. Tilkynningin er þannig…Lesa meira

true

Gönguferð um Borgarnes á Alþjóðadegi arkitektúrs

Í tilefni af Alþjóðlegum degi arkitektúrs mánudaginn 7. október nk. ætlar Arkitektafélag Íslands að bjóða upp á fimm ólíkar göngur fyrir unga sem aldna um arkitektúr. Farnar verða þrjár göngur í Reykjavík og ein í Garðabæ en sú fimmta verður um Helgugötu og Skúlagötu í Borgarnesi frá klukkan 17:30 til 18:30. Sigursteinn Sigurðsson arkitekt mun…Lesa meira

true

Unnu stórsigur á Levadia

Piltarnir í 2. flokki ÍA unnu stórsigur á eistneska liðinu Levadia Tallin, 4-0, þegar liðin mættust í fyrstu umferð unglingadeildar UEFA í gær. Leikið var á Akranesvelli. Skagamenn komust yfir á 22. mínútu þegar Sigurður Hrannar Þorsteinsson, markakóngur Íslandsmótsins, skoraði með skalla af stuttu færi eftir hornspyrnu. Fleiri mörk voru ekki skoruð í fyrri hálfleik,…Lesa meira

true

„Spennandi uppbygging framundan“

-segir Manuel Rodriguez, þjálfari karlaliðs Skallagríms Manuel Rodriguez er kominn í Borgarnes og mun þjálfa karlalið Skallagríms í 1. deildinni á komandi vetri. Manuel þekkja Borgnesingar vel. Hann þjálfaði kvennalið Skallagríms frá 2015-2017 með góðum árangri, kom liðinu upp í úrvalsdeild og leiddi það í úrslit bikarsins og í úrslitakeppnina um Íslandsmeistaratitilinn. Hann segist ánægður…Lesa meira

true

„Aðalmarkmiðið að búa til góða leikmenn“

– segir Vladimir Ivankovic, þjálfari karlaliðs Snæfells   „Ég held að við verðum betri en á síðasta ári. Við höfum bætt okkur á stöðum þar sem við vorum í vandræðum í fyrra, eins og undir körfunni, fengum leikmenn til að leysa þær stöður. Að því sögðu erum við ennþá með mjög ungt lið. Strákarnir í…Lesa meira

true

Umhverfismál sérstakt þema á haustþingi SSV

Haustþing Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi var haldið í félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík síðastiðinn miðvikudag. Þar voru saman komnir fulltrúar sveitarfélaganna í landshlutanum, ásamt starfsfólki SSV, til að ræða málefni landshlutans. Blaðamaður Skessuhorns var á staðnum og verður hér stiklað á mjög stóru um það sem fram fór á þinginu. Fyrir hádegi var fjárhagsáætlun SSV fyrir…Lesa meira